Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ærandi afskiptaleysi heilbrigðisyfirvalda

Ærandi afskiptaleysi heilbrigðisyfirvalda

For­síðu­við­tal Mannlífs í dag segir átak­an­lega sögu. Sögu sem við þekkjum öll frá annarri hlið. Hlið lækna og sér­fræð­inga í með­ferð á manni frá fjar­lægu landi. Manni sem ekki þekkti rétt sinn og var ekki fræddur um hvaða aðrir mögu­leikar stæðu til boða í hans veik­indum. Plast­barka­málið svo­kall­aða er skammar­blettur á íslensku og sænsku heil­brigð­is­kerfi og sú hlið sem birt­ist í við­tal­inu við Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase, eig­in­konu plast­barka­þeg­ans Andemari­ams Beyene sem lést af völdum heil­brigð­is­kerf­is­ins árið 2014, bætir enn svertu í þann skammar­blett.

Merhawit upp­lýsir í við­tal­inu að síðan Andemariam lést hafi eng­inn frá heil­brigð­is­kerf­inu haft sam­band við hana. Henni hefur ekki verið boðin hjálp af neinu tagi, hún hefur ekki verið upp­lýst um rétt sinn til bóta vegna dauða Andemari­ams og hvorki íslensk né sænsk heil­brigð­is­yf­ir­völd virð­ast hafa grennsl­ast af alvöru fyrir um örlög hennar og sona hennar þriggja eftir dauða eig­in­manns og föður.

Í skýrslum um málið kemur skýrt fram að Merhawit eigi mögu­lega rétt á bótum en við­bára heil­brigð­is­starfs­manna hefur verið sú að ekki hafi tek­ist að hafa upp á henni. Það hljómar ekki sér­lega sann­ferð­ugt því eins og fram kemur í við­tal­inu býr hún í Svíþjóð og vinnur þar fulla vinnu þannig að það ætti að vera hægð­ar­leikur að hafa upp á heim­il­is­fangi hennar og síma­núm­eri með lít­illi fyr­ir­höfn. Það reynd­ist blaða­manni Mannlífs að minnsta kosti auð­velt að finna þessa „týndu“ konu með lág­marks eft­ir­grennslan og ansi erfitt að trúa því að starfs­fólk Land­spít­al­ans hafi lagt sig mikið fram um að hafa upp á henni.

„Er enn verið að reyna að þagga þetta mál niður og gera sem minnst úr því? Láta eins og þessi skelfi­legu mis­tök og fúsk hafi aldrei átt sér stað?“

En hvað ætli valdi þá þessu afskipta­leysi? Gæti hluti af skýr­ing­unni verið sá að bæði Merhawit og eig­in­maður hennar eru frá Erítríu og að mestu ókunnug vest­rænu rétt­ar­kerfi og rétt­inum til bóta? Er áhugi heil­brigð­is­kerf­is­ins á því að upp­fylla þann ský­lausa rétt ekkj­unnar að fá bætur vegna hrapa­legra mis­taka lækna í Svíþjóð og einnig á Íslandi ekki meiri en svo að starfs­menn þess láta það drag­ast von úr viti að hafa sam­band við hana, skýra henni frá þeim rétti og aðstoða hana við að ná honum fram? Er enn verið að reyna að þagga þetta mál niður og gera sem minnst úr því? Láta eins og þessi skelfi­legu mis­tök og fúsk hafi aldrei átt sér stað?

Við skulum vona að það sé ekki skýr­ingin. En hafi íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd minnsta áhuga á því að upp­fylla skyldur sínar við fjöl­skyldu fórn­ar­lambs mis­tak­anna ættu þau að sjá sóma sinn í því að ganga í það mál með hraði. Skömm þeirra er nógu djúp­stæð fyrir.

Mynd / Árni Torfason

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi