Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

FUR-liðar höguðu sér vel meðan á tökum stóð

Íslenskur ljós­mynda­nemi mynd­aði bresku hljóm­sveit­ina FUR við gerð nýjasta mynd­bands sveit­ar­innar.

FUR-liðar höguðu sér vel meðan á tökum stóð
|

Ingimar Þór­hall­son mynd­aði bresku sveit­ina FUR við gerð nýjasta mynd­bands hennar við lagið What would I do. „Það var gaman að fá tæki­færi til að kynn­ast þeim við þessar kring­um­stæður,“ segir hann hress. „Þetta eru afskap­lega skemmti­legir strákar, kurt­eisir og hóg­værir og það auð­veld­aði vinn­una.“

Verk­efnið fékk Ingimar í gegnum tví­bura­bræður sína Jakob og Jónas Þór­halls­syni sem störf­uðu með sveit­inni síð­ast­liðið haust þegar þeir gerðu mynd­band við lag hennar, If you know that I‘m lon­ely. Það var til­nefnt til fjölda verð­launa og átti þátt í því að koma FUR á kortið. Í ljósi ánægju með sam­starfið leit­uðu með­lim­irnir aftur til bræðr­anna með næsta videó og þeir ákváðu að fá Ingimar, sem er á loka­ári í ljós­mynda­námi við hinn virta háskóla Camberwell College of Arts í London, til að mynda það sem gerð­ist á bak við tjöldin. Þannig að skyndi­lega var ljós­mynda­nem­inn staddur í stúd­íói í Norður-London fyrir þremur vikum í miðri hita­bylgju að mynda eina af heit­ustu upp­renn­andi rokksveitum Bret­lands.

„Þetta eru afskap­lega skemmti­legir strákar, kurt­eisir og hóg­værir og það auð­veld­aði vinn­una.“

Ingimar við­ur­kennir að þetta hafi verið svo­lítið súr­r­eal­ísk upp­lifun. „Ég pass­aði bara að láta lítið fyrir mér fara og reyndi að ná öllum þessum óvæntu augna­blikum sem komu upp í sam­skiptum sveit­ar­innar, leik­stjór­ans og fólks­ins undir hans stjórn,“ rifjar hann upp og segir að tækni­lega séð hafi þetta verið örlítið krefj­andi verk­efni, því hann hafi not­ast við Leicu M-mynda­vél og prime-linsur og því sjálfur þurft að stilla allt ljósop, hraða og fókus, auk þess sem hit­inn hafi verið hrika­legur. „En svið­setn­ingin leit vel út frá mínum bæj­ar­dyrum séð og þetta gekk allt saman vel að lokum.“

Náttúran og sam­spil manns og nátt­úru eru Ingimari hug­leikin.

Þetta er ekki fyrsta verk­efnið af þessu tagi sem Ingimar hefur feng­ist við því hann mynd­aði líka gerð mynd­bands við Unbroken með Maríu Ólafs­dóttur, fram­lag Íslands til Eurovision-söngvakeppn­innar árið 2015. „Það var meðal ann­ars tekið upp í gömlu sem­ents­verk­smiðj­unni á Akranesi og fjöldi fólks kom að gerð þess til að tryggja að það yrði klárað í tæka tíð fyrir Eurovision,“ segir hann og bætir við að án nokk­urs vafa sé gerð þess mynd­bands stærsta „á bak við tjöldin“-verk­efnið sem hann hafi komið að.

Auð­heyri­legt er að Ingimar hefur í nógu að snú­ast. Fyrir utan að vera í fullu námi er hann með nokkur járn í eld­inum, meðal ann­ars gerð spila­stokks með nátt­úru­myndum sem hann er að vinna með breskum hönn­uði, og ljós­mynda­bók sem kemur til með að inni­halda myndir úr íslenskri nátt­úru. Þá hefur hann verið í sam­starfi við fyr­ir­tækið Sól­ar­filmu um gerð vara sem eru skreyttar myndum eftir hann og nýverið mynd­aði hann háhita­svæði á Íslandi, en útkoman, 72 ljós­myndir, prýða veggi nýlegs hót­els.

En hvenær kemur mynd­bandið með FUR út og hvar verður hægt að skoða mynd­irnar? „Þær eru í höndum leik­stjór­ans sem ræður því hvernig þær verða not­aðar,“ svarar hann. „En mynd­bandið kemur út í júlí, skilst mér, og ég hlakka mikið til að sjá útkom­una því þetta var skemmti­legt verk­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi