Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Saknar þess að leika á íslensku

Leik­ar­inn Sindri Swan land­aði bita­stæðu hlut­verki í breskum vís­inda­trylli.

Saknar þess að leika á íslensku

„Þetta er vís­inda­skáld­skapur, tryllir sem ger­ist í fram­tíð­inni og fjallar um öfl­ugar verur sem telja mann­kynið ófært um að hugsa um jörð­ina og vaka af þeirri ástæðu yfir því. Ein þess­ara vera sér hins vegar það góða í mann­fólk­inu og trúir að maður nokkur að nafni Daniel, sem ég leik, geti breytt öllu með því að færa valdið aftur í hendur þess,“ segir Sindri, spurður út í mynd­ina.

THEM er að hans sögn sjálf­stætt fram­leidd kvik­mynd og önnur kvik­mynd spænska leik­stjór­ans Ignacio Maiso í fullri lengd. Án þess að vilja fara nánar út í sög­ur­þráð­inn segir hann að hand­ritið sé mjög for­vitni­legt og frá­brugðið þeim verk­efnum sem hann hefur feng­ist við hingað til vegna þeirra ögrandi heim­speki­legu spurn­inga sem sagan velti upp. Svo hafi hlut­verkið sjálft líka verið krefj­andi þar sem per­sóna hans gangi í gegnum mikil umskipti í mynd­inni. Byrji sem maður sem lifir til­tölu­lega áhyggju­lausi lífi en verði tauga­hrúga þegar hann upp­götvar að hann hefur örlög jarð­ar­búa í hendi sér.

„Coogan var mjög hóg­vær, nán­ast feim­inn en Reilly heils­aði upp á alla og var afar við­kunn­an­legur. Þeir voru báðir frá­bærir.“

„Fram að þessu hef ég kannski verið að taka þátt í hefð­bundn­ari verk­efnum, ef svo má að orði kom­ast, þar sem áherslan hefur meira verið á fólk og sam­skipti,“ lýsir hann og nefnir í því sam­hengi sjón­varps­efni fram­leitt af þýsku sjón­varps­stöð­inni ZDF um Díönu prinsessu þar sem hann leikur trún­að­ar­vin hennar. „Sömu sögu er að segja um mynd­ina Stan & Ollie þar sem ég fer með lítið hlut­verk en sú mynd kemur út á næsta ári og skartar John C. Reiley og Steve Coogan í aðal­hlut­verkum.“

Já! Hvernig var að hitta stjörnur eins og Reiley og Coogan? „Magnað,“ svarar hann. „Coogan var mjög hóg­vær, nán­ast feim­inn en Reilly heils­aði upp á alla og var afar við­kunn­an­legur. Þeir voru báðir frá­bærir.“

Sindri er búsettur í London og starfar þar bæði sem leik­ari og ljós­mynd­ari og segir það ganga vel þótt vissu­lega sé ákveð­inn línu­dans að sinna báðum störfum. „Kost­ur­inn er sá að maður getur stýrt sínum tíma að ein­hverju leyti og mætt í prufur og tökur. En það er líka ókostur því maður mætir ekki í fasta vinnu og fær borgað um hver mán­að­ar­mót heldur þarf að elt­ast við verk­efni og það getur verið tíma­frekt.“

Á heild­ina litið seg­ist hann þó vera ánægður og hafa nóg að gera. Það sé kannski helst að hann sakni þess að vinna á Íslandi. „Ég væri alveg til í að taka að mér ein­hver verk­efni þar. Ég sakna þess að leika á íslensku.“

En hvenær er von á THEM? „Tja, tökur standa yfir í London eins og er en ef allt gengur vel reikna fram­leið­end­urnir með að klára mynd­ina fyrir 2019,“ segir hann hress, „og gefa út seint sama ár, eða snemma 2020. Það kemur í ljós.“

Mynd / Daníel Starra­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi