Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skiptir lögfræði út fyrir sirkusnám

Skiptir lögfræði út fyrir sirkusnám
||

Bryndís Torfa­dóttir, mastersnemi í lög­fræði og með­limur í Sirkus Íslands, tekur sér eins árs frí frá lög­fræði­námi til að nema sirku­slistir í skól­anum AFUK í Kaup­manna­höfn.

„Þetta var algjör skyndi­á­kvörðun. Ég sá aug­lýstar prufur í skól­anum úti og var búin að hafa auga­stað á því í smá­tíma, en pruf­urnar voru í apríl á þessu ári. Daginn fyrir prufur ákvað ég að panta mér flug og fljúga út í pruf­urnar,“ segir Bryndís. Við tóku þriggja daga prufur sem reyndu hressi­lega á.

„Í pruf­unum var sviðs­fram­koma, lík­am­leg hæfni og sam­hæf­ing prófuð; til dæmis dans, þrek og jöggl. Þetta var frekar krefj­andi,“ segir Bryndís og hlær. „Þetta voru langir dagar, en ég var að jafna mig á ökkla­broti síðan í jan­úar og gat ekki alveg verið hopp­andi og skopp­andi út um allt. En ég náði að sýna eitt­hvað af því sem ég get,“ bætir hún við, hóg­værðin upp­máluð. Svo fór að Bryndís komst inn í sirkus­námið, sem er eitt ár. „Ég var ekki búin að reikna með að kom­ast inn og leiddi ekk­ert hug­ann að því. Ég var því byrjuð að gera önnur plön en þegar ég fékk frétt­irnar hik­aði ég ekki við að segja já.“

Bryndís ásamt Thomas Burke.

Lögfræði og sirkus eiga lítið sameiginlegt

Bryndís byrjar í sirkus­nám­inu í lok ágúst en hún er einnig mastersnemi í lög­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík. Hún fer því í náms­leyfi í eitt ár, en hingað til hefur hún náð að sam­eina þessi tvö ólíku fög.

„Því miður eiga lög­fræði og sirkus voða­lega lítið sam­eig­in­legt, ég hef alla­vega ekki fundið neitt hingað til. Þetta eru mjög ólíkir hlutir en blanda af báðum gefur manni gott jafn­vægi í líf­inu. Það er mjög krefj­andi að blanda þessu saman þar sem bæði fögin eru afar tíma­frek en það hefur sem betur fer gengið hingað til. Ég vona að það gangi áfram.“

Byrjaði í sirkus fyrir tilviljun

Fjölhæf stúlka.

Bryndís hefur verið hluti af sirkus­hópnum Sirkus Íslands í að verða þrjú ár, en byrj­aði að æfa með hópnum af ein­skærri til­viljun.

„Ég hafði verið að æfa súlu­fimi og á loft­fim­leika­hring í súlu­fim­istúd­íói í nokkurn tíma. Þegar þjálf­ar­inn minn hætti fór ég að hugsa um hvað ég ætti að gera. Þá mundi ég eftir Sirkus Íslands og ákvað að senda tölvu­póst og spyrja hvort ég mætti koma á æfingu. Ég mætti á æfingu sam­dæg­urs og hef mætt síðan þá,“ segir Bryndís, en hennar sér­grein í sirku­snum eru loft­fim­leikar og akró; jafn­væg­is­fim­leikar á gólfi. „Ég var í fim­leikum þegar ég var yngri sem hjálpar mikið. Ég lærði hins vegar hell­ing af þeim sem ég æfi með í sirku­snum og hafa ekki sér­stakan bak­grunn í fim­leikum. Þannig að það er alls ekki nauð­syn­legt.“

Mikið frelsi í sirkusnum

Sirkus Íslands fagnar tíu ára afmæli um þessar mundir og heldur upp á áfang­ann með afmæl­is­sýn­ingum í sumar, bæði í Reykja­vík 13. til 22. júlí, og á Akureyri um versl­un­ar­manna­helg­ina. Hópurinn setur ann­ars vegar upp fjöl­skyldu­sýn­ingu sem heitir Áratugur af sirkus og hins vegar full­orð­ins­sýn­ing­una Skinn­semi. Bryndís segir að sýn­ingar sum­ars­ins verði blanda af nýjum og klass­ískum atriðum, en stífar æfingar standa nú yfir. Það stendur ekki á svör­unum þegar blaða­maður spyr af hverju sirkus­inn togi svona í hana.

„Þetta er ótrú­lega gaman. Sirkus­inn reynir á lík­am­legan styrk og ég er alltaf að læra eitt­hvað nýtt og ná árangri. Ég vinn líka með ofboðs­lega skemmti­legu fólki. Þetta er um margt svipað og fim­leik­arnir nema í sirku­snum hef ég svo mikið frelsi. Það þarf ekki að gera allt rétt heldur getur maður gert hlut­ina á sinn hátt. Það er það sem gerir þetta svona sér­stakt.“

Myndir / Daníel Hauksson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi