Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Siðferðislega ögrandi veruleiki og svartur húmor

Ása Bald­urs­dóttir, dag­skrá­stjóri Bíó Para­dísar, deilir sínum sak­bitnu sælum með les­endum.

Siðferðislega ögrandi veruleiki og svartur húmor

Happiness (1998)
Philip Seymour Hoffman (blessuð sé minn­ing hans) situr alltaf í mér í þess­ari mynd. Leik­stjór­inn Todd Solondz setur áhorf­and­ann á óþægi­legan stað, sama hvort þú fílar þessa mynd eða ekki, því það er listi­lega gert með atriðum þar sem maður veit hrein­lega ekki hvernig maður á að bregð­ast við eða hvað manni á að finn­ast. Það er svo erfitt að segja hvaða tónn er sleg­inn í mynd­inni, er þetta írónísk gam­an­mynd eða svip­mynd af til­vist­ar­kreppu manns­ins þar sem allir eru á end­anum ein­mana? Hún er eig­in­lega alveg sér á báti þar sem fólk á erfitt með að átta sig á því hvort myndin snú­ist um að vera átak­an­leg harm­saga eða kómedía. Það er í raun nör­da­brautin sem þessi kvik­mynd tekur á end­anum. Það er svo ruglað að vita ekki enn, eftir 20 ár, hvað manni í raun og veru finnst!

Bad Boy Bubby (1993)
Svartasta gam­an­mynd sem þú hefur séð eða Kafka-ísk martröð? Maður spyr sig. Hún fékk sjúk­lega lélega dóma á sínum tíma og sjokker­aði marga. Bubby hefur aldrei farið út úr skítugri íbúð­inni þar sem hann býr með móður sinni í mjög und­ar­legri ver­öld, sið­ferð­is­lega ögrandi veru­leika. Þegar pabbi hans dúkkar upp kynn­ist hann heim­inum í fyrsta sinn, menn­ingu, öðru fólki, kyn­lífi, vís­indum, trú­ar­brögðum og tón­list. Þetta er ein sú besta, rugl­að­asta og költ­að­asta mynd sem hef séð og ég elska!

Fucking Åmål (1998)
Frumraun sænska leik­stjór­ans Lukas Moodyson er alger­lega sak­bitin sæla hjá mér. Hún fjallar um tvær stúlkur í smábæ í Svíþjóð, önnur er vin­sæl og ham­ingju­söm en hin ein­mana og vinafá. Það er svo listi­lega vel gert að gera mynd sem ger­ist á litlum stað sem samt snertir svo við öllu mann­legu og þar af leið­andi er myndin alþjóð­leg. Myndin fjallar um fyrstu ást­ina – án þess að verða of fók­useruð á það að hún sé „gay“ eða fjalli um les­b­íur. Það í raun skiptir ekki máli. Ég get horft á þessa mynd aftur og aftur og aftur og aftur. Scandinavian Pain eftir Ragnar Kjart­ans­son kemur reglu­lega upp í hug­ann líka þegar ég horfi á hana.

The Room (2003)
Hvað getur maður sagt? Þetta ER ein besta VERSTA mynd allra tíma. Ég set bara nokkrar beinar til­vitn­anir í mynd­ina, þær tala sínu máli: „Everybody betra­yed me! I’m fed up with this world!“ – „I def­in­antly have bre­ast cancer“ – „You’re tear­ing me apart, Lisa!“ –„In a few moments, bitch!“  –  „Anyway, how is your sex life?“ Ég vil bæta því við að við verðum með þátt­töku­sýn­ingu á mynd­inni á föstu­dagspar­tí­sýn­ingu 6. júlí næst­kom­andi klukkan 20!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi