Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Magnað að leikur sem maður bjó til sé spilaður 2000 sinnum á dag“

Nýr íslenskur tölvu­leikur á meðal áhuga­verð­ustu „indí“-leikja á Norð­ur­lönd­unum.

„Magnað að leikur sem maður bjó til sé spilaður 2000 sinnum á dag“
|

Íslenski tölvu­leik­ur­inn Out of the Loop, eða Úti á túni, sem kom út á dög­unum hefur verið val­inn til þátt­töku á leikja­ráð­stefn­unni Nordic Game Conference sem fer fram í Malmö í Svíþjóð á næsta ári. Leik­ur­inn verður á sýn­ingu helg­aðri áhuga­verð­ustu „indí“-leikj­unum á Norð­ur­lönd­unum.

„Það er Yond­erplay sem stendur fyrir val­inu, en Yond­erplay er nýja nafnið á Nordic Indie Sensation sem velur mest spenn­andi leik­ina sem eru gefnir sjálf­stætt út á Norð­ur­löndum,“ útskýrir Sig­ur­steinn Gunn­ars­son, annar hönn­uða leiks­ins. „Það er ótrú­legur heiður að verða fyrir val­inu.“

Sig­ur­steinn lýsir Out of the Loop sem staf­rænum spurn­inga­borð­spila­leik í nokkrum umferð-um fyrir síma, sem 3-9 geta spilað í einu og fá allir nema einn leik­manna eitt leyni­orð í hverri umferð. „Leik­menn­irnir eiga síðan að svara spurn­ingum sem tengj­ast hverju leyni­orði og reyna þannig að finna út hvern vantar leyni­orðin, þ.e. hver er úti á túni, á meðan sá reynir að veiða leyni­orðin upp úr þeim svo þeir fatti það ekki,“ útskýrir hann og bætir við að Out of the Loop sé í ætt við tölvu­leik­inn Spyfall sem sumir íslenskir „spil­arar“ ættu að kann­ast við.

„Í raun­inni jafn­ast þó ekk­ert á við að að sjá fólk hlæja og skemmta sér í leiknum sem maður bjó til.“
Out of the Loop hlaut á dög­unum við­ur­kenn­ingu frá Copenhagen Game Collective.

Out of the Loop hefur verið í þróun í níu mán­uði og er annar leik­ur­inn sem Sig­ur­steinn og Torfi Ásgeirs­son, félagi hans og með­eig­andi leikja­fyr­ir­tæk­is­ins Tasty Rook, senda frá sér. Fyrri leikur þeirra félaga, spæj­ara­leik­ur­inn Triple Agent, er að sögn Sig­ur­steins í svip­uðum stíl og Out of the Loop en hann komst líka inn á sömu sýn­ingu í fyrra og hefur hlotið góðar við­tökur. „Triple Agent hefur verið sýndur á þónokkrum hátíðum erlendis og frægur YouTube- gagn­rýn­andi, Totalbiscuit, valdi hann sem einn af tíu bestu leikjum árs­ins í fyrra, en það er svo­lítið magnað að vita til þess að leikur sem maður bjó til sé spil­aður 2000 sinnum á dag,“ segir hann og brosir.

Spurður hvaða þýð­ingu þátt­taka á Nordic Game Conference komi til með að hafa fyrir Out of the Loop og fyr­ir­tækið Tasty Rook, segir Sig­ur­steinn að þeir Torfi séu þessa dag­ana á fullu að kynna leik­inn og við­ur­kenn­ingar af þessu tagi hjálpi klár­lega til. „Auðvitað er alltaf ótrú­lega gaman þegar það sem maður er að gera vekur áhuga og hrifn­ingu en í raun­inni jafn­ast þó ekk­ert á við að að sjá fólk hlæja og skemmta sér í leiknum sem maður bjó til,“ segir hann glaður.

Aðalmynd: Sig­ur­steinn Gunn­ars­son og Torfi Ásgeirs­son, með­eig­endur leikja­fyr­ir­tæk­is­ins Tasty Rook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi