Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lói 2 á leiðinni?

Fram­halds­mynd teikni­mynd­ar­innar vin­sælu mögu­lega í bígerð.

Lói 2 á leiðinni?
|
Hilmar Sig­urðs­son, for­stjóri Sagafilm.

Íslenska teikni­myndin Lói – þú flýgur aldrei einn, sem var frum­sýnd hér­lendis í febr­ú­ar­mán­uði, hefur notið mik­illa vin­sælda víðs­vegar um heim það sem af er árs og í ljósi þess íhuga aðstand­endur hennar nú að gera fram­hald. „Það ræðst ein­fald­lega með haustinu þegar hún hefur verið tekin til sýn­inga á stærstu evr­ópsku mörk­uð­unum,“ stað­festir Hilmar Sig­urðs­son, for­stjóri Sagafilm, sem er annar fram­leið­andi mynd­ar­innar, í sam­tali við Mannlíf. „En jú, við erum að skoða mögu­leik­ana á því að gera Lóa 2.“

Að sögn Hilmars hefur myndin þegar verið tekin til almennra sýn­inga á tíu mörk­uðum. „Og eitt­hvað fleiri löndum, því til dæmis eru skrán­ingar í Rúss­landi yfir öll fyrrum ríki Sov­ét­ríkj­anna,“ bendir hann á. Í öllum til­fellum hefur myndin verið á meðal tíu aðsókn­ar­mestu mynda á frum­sýn­ing­ar­helgi og í átta af tíu hefur hún verið á lista yfir tíu aðsókn­ar­mestu mynd­irnar fyrstu þrjár vikur sýn­ing­ar­tím­ans. Meðal þeirra landa sem myndin hefur komið út í má nefna Mexíkó, Tyrkland, Argent­ínu, Úkraínu og Slóveníu. En sam­tals er búið að selja bíómiða á mynd­ina fyrir um 2,4 millj­ónir Banda­ríkja­dala eða sem sam­svarar 254.175.000 íslensku krónum og því óhætt að segja að myndin sé búin að gera það gott í miða­söl­unni.

„… myndin virð­ist heilla áhorf­endur óháð landa­mærum og ganga vel upp, ekki síst í þeim löndum þar sem hún hefur verið tal­sett. Almennt heyrum við að hún sé heill­andi og hlý.“

„Við erum mjög þakk­lát fyrir að myndin sé að gera sig í kvik­mynda­húsum erlendis og ekki síður hér heima þar sem tæp­lega 24.000 manns hafa séð hana í kvik­mynda­húsum,“ segir Hilmar. „Það er auð­vitað hluti af því að ráð­ast í svo viða­mikið verk­efni að það falli í kramið og við erum þakk­lát fyrir mót­tök­urnar.“

Hann kveðst ekki síður vera ánægður með að myndin skuli hafa unnið aðal­verð­launin á barna­kvik-mynda­há­tíð­inni í Krist­i­ans­and í Noregi á dög­unum. „Okkur fannst umsögn dóm­nefnd­ar­innar mjög skemmti­leg en í henni sagði eitt­hvað á þá leið að Lói væri eins­konar Pixar-mynd með íslensku ívafi, en myndin virð­ist heilla áhorf­endur óháð landa­mærum og ganga vel upp, ekki síst í þeim löndum þar sem hún hefur verið tal­sett. Almennt heyrum við að hún sé heill­andi og hlý.“

Fyrir utan mögu­lega fram­halds­mynd segir Hilmar fram­leiðslu­fyr­ir­tækið GunHil, sem er hluti af Sagafilm-sam­steyp­unni, vera að þróa teikni­mynda­þátta­röð fyrir sjón­varp sem verður kynnt á Cartoon Forum í Frakk­landi í haust. „Þátta­röðin ger­ist á Para­dís­ar­völlum sem við þekkjum úr mynd­inni um Lóa, þótt hann sé ekki í þátta­röð­inni. Þarna verða þó allar skemmti­legu auka­per­són­urnar, auk ann­arra nýrra.“

Myndin sjálf verður síðan frum­sýnd í Póllandi um næstu helgi og sýnd víðar í sumar, meðal ann­ars í Bret­landi, Frakk­landi, Þýska­landi, Belgíu, Hollandi, Búlgaríu, Rúmeníu, Malasíu, Víetnam, Singa­pore, Tékk­landi og á Spáni en alls hefur myndin hefur verið seld til kvik­mynda­sýn­inga í yfir 50 löndum. Þá segir Hilmar að myndin verði sýnd á fjölda kvik­mynda­há­tíða á næstu miss­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi