Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ýtti leikmönnum út fyrir rammann

Heim­ild­ar­myndin Síðasta áminn­ingin er ný íslensk kvik­mynd sem Haf­steinn Gunnar Sig­urðs­son gerði í sam­vinnu við Guðmund Björn Þor­björns­son og frum­sýnd var í vik­unni. Þar velta þeir félagar fyrir sér tengslum íslenska þjóð­söngs­ins og árang­urs íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta og kom­ast, að sögn Haf­steins, að óvæntri nið­ur­stöðu.

Ýtti leikmönnum út fyrir rammann
|

„Þetta byrj­aði þannig að ég fékk sím­tal í jan­úar frá Sig­ur­jóni Sig­hvats­syni fram­leið­anda þar sem hann setti fram hug­mynd um að gera eitt­hvað út frá þessu fót­bolta­dæmi en beina samt fók­u­snum meira að sam­fé­lag­inu út frá þess­ari Ösku­busku­sögu sem árangur íslenska lands­liðs­ins í fót­bolta er,“ segir Haf­steinn Gunnar Sig­urðs­son kvik­mynda­leik­stjóri um til­urð heim­ilda­mynd­ar­innar Síðasta áminn­ingin sem nú er sýnd í Bíó Paradís.

„Ég var nýbú­inn að hlusta á þætt­ina hans Guð­mundar á Rás 1, Mark­manns­hansk­arnir hans Alberts Camus, og datt í hug að það gæti verið snið­ugt að fá hann til sam­starfs við mig við gerð mynd­ar­innar, því ég veit í raun og veru ekk­ert um fót­bolta,“ útskýrir Haf­steinn. „Ég horfi bara á stór­mótin og hef enga þekk­ingu á því hvernig þetta virkar, ég er betri í að búa til bíó­myndir.“

Boðar auð­mýkt og líti­læti
Spurður um grunn­konseptið að baki mynd­inni segir Haf­steinn að þeir hafi lagt út frá þjóð­söng Íslend­inga sem er það síð­asta sem leik­menn­irnir heyra áður en þeir hefja leik á fót­bolta­vell­inum og þaðan sé nafn mynd­ar­innar, Síðasta áminn­ingin, dregið.

Í mynd­inni er rætt við þrjá liðs­menn lands­liðs­ins auk nokk­urra þjóð­þekktra ein­stak­linga sem sumir tengj­ast knatt­spyrnu en aðrir alls ekki.

„Þjóð­söngur okkar er ólíkur flestum öðrum þjóð­söngvum þar sem hann er byggður á sálmi,“ segir Haf­steinn. „Flestir aðrir þjóð­söngvar eru ein­hvers konar ætt­jarð­ar­söngvar þar sem verið er að upp­hefja föð­ur­landið og þjóð­ina sem þar býr, eða þá stríðs­marsar þar sem menn eru hrein­lega hvattir til þess að fara út á víg­völl­inn og drepa and­stæð­ing­inn. Okkar þjóð­söngur hins vegar boðar auð­mýkt og líti­læti og minnir mann­eskj­una á hversu lítil hún er gagn­vart sköp­un­ar­verk­inu. Við fórum að velta því fyrir okkur hvort það fælist ekki þver­sögn í því að þetta væri síð­asta áminn­ingin sem leik­menn íslenska liðs­ins fá áður en þeir fara út á völl­inn að reyna sig við útlend­inga sem eru mjög oft miklu betri en þeir í fót­bolta. Við fórum að skoða þetta betur og í fram­haldi af því verður myndin ferða­lag þar sem við skoðum íslenskt sam­fé­lag og hug­ar­far út frá þessu og hvort Íslend­ingar hafi nokkurn tím­ann til­einkað sér þessa auð­mýkt og líti­læti sem þjóð­söng­ur­inn boðar.

Hugs­an­lega komumst við að þeirri nið­ur­stöðu að kannski eru með­limir lands­liðs­ins þeir einu sem hafa raun­veru­lega gert það. Hvort það sem hafi komið þeim áfram sé að þeir þekki sín tak­mörk,“ segir Haf­steinn dul­ar­fullur.

Ýttu leik­mönnum út fyrir rammann
Í mynd­inni er rætt við þrjá liðs­menn lands­liðs­ins auk nokk­urra þjóð­þekktra ein­stak­linga sem sumir tengj­ast knatt­spyrnu en aðrir alls ekki.

„Við fylgjum þessum þremur leik­mönnum, sem kannski eru ekk­ert endi­lega alltaf mest í sviðs­ljós­inu,“ segir Haf­steinn. „Einn þeirra spilar í Tyrk­landi, annar hér heima á Íslandi, sá eini sem spilar hér reyndar, og sá þriðji spilar í Englandi. Hug­myndin var að fá þá til að velta vöngum yfir íslensku þjóð­fé­lagi og fá þá til að tala um hluti sem þeir eru ekki endi­lega alltaf að ræða í þessum við­tölum sem þeir fara í, þetta eru oft dálítið stöðluð við­töl sem birt­ast í íþrótta­tengdu efni, þannig að við reyndum svo­lítið að ýta þeim út fyrir það svið og fá að sjá aðrar hliðar á þeim en við gerum venju­lega. Síðan vorum við með sjö aðra við­mæl­endur sem eru þjóð­þekktir ein­stak­lingar sem tengj­ast fót­bolta nán­ast ekki neitt, eða jú, sumir eitt­hvað en aðrir ekki.“

Flestir, ef ekki allir, við­mæl­endur voru spenntir fyrir heims­meist­ara­mót­inu.
„Ég held það sé ein­hver ógur­legur fiðr­ingur í flestum gagn­vart þessu.“

Ekki að skoða þjóð­rembu
Spurður hvort myndin komi eitt­hvað inn á það hvernig þessi árangur lands­liðs­ins ýti undir þjóð­rembu Íslend­inga dregur Haf­steinn við sig svarið.
„Já og nei,“ svarar hann véfrétt­ar­lega og heldur áfram. „Einn við­mæl­and­inn nefnir að í kringum íþróttir skap­ist eini vett­vang­ur­inn þar sem það þyki í lagi að vera þjóð­veld­is­sinni að ein­hverju leyti og leyfa stór­karla­legum hug­myndum um sam­fé­lagið að brjót­ast fram, en við köfum ekki djúpt í tengsl þjóð­ern­is­kenndar og íþrótta í þess­ari mynd.“

Sitt af hverju, eins og óvænt tengsl, kom á óvart við gerð Síðustu áminn­ing­ar­innar.
„Já, kannski bara þessi nið­ur­staða sem við komumst að í mynd­inni um tengsl þjóð­söngs­ins og þess­arar taktíkur sem liðið spilar,“ segir Haf­steinn. „Það komu óvænt tengsl þar upp sem ég vil ekki upp­ljóstra um hér, enga spoilera, takk. En þetta var mjög skemmti­legt ferða­lag og líka skemmti­legt að það skuli vera hund­rað ára afmæli full­veld­is­ins sem er gott augna­blik til að líta í speg­il­inn, dvelja aðeins við og hugsa um hver við erum og hvert við viljum stefna.“

„Hug­myndin var að fá þá til að velta vöngum yfir íslensku þjóð­fé­lagi og fá þá til að tala um hluti sem þeir eru ekki endi­lega alltaf að ræða í þessum við­tölum sem þeir fara í, þetta eru oft dálítið stöðluð við­töl sem birt­ast í íþrótta­tengdu efni, þannig að við reyndum svo­lítið að ýta þeim út fyrir það svið og fá að sjá aðrar hliðar á þeim en við gerum venju­lega.“

Lætur heill­ast í augna­blik­inu
Haf­steinn ætlar að sjálf­sögðu að fylgj­ast með leikjum lands­liðs­ins á HM.
„Ég segi nú ekki að ég muni setja upp vík­inga­hjálm­inn, en þetta er spenn­andi móment sem maður fylgist auð­vitað með. Ég á reyndar ekki lands­lið­s­treyju, því miður, en þegar við fórum til Tyrk­lands að heim­sækja Theodór Elmar keyptum við okkur allir tyrk­neska upp­hit­un­ar­gall­ann og ég verð kannski bara í honum,“ bætir hann við og glottir.

Ef við gefum okkur að Íslend­ingar kom­ist ekki í úrslit þarf Haf­steinn að finna sér annað lið til að halda með því hann á ekk­ert sér­stakt upp­á­halds­lið.

„Yfir­leitt ger­ist það eftir að ég fer að fylgj­ast með þessum stór­mótum að ég verð ást­fang­inn af ein­hverju liði í augna­blik­inu og læt það heilla mig til fylgilags svo það fær mitt atkvæði þegar upp er staðið. Ég verð bara að sjá til eftir að mótið byrjar hvaða liði tekst það í þetta sinn.“

Síðasta áminn­ingin var frum­sýnd í Bíó Paradís í vik­unni og er nú þar í almennum sýn­ingum en verður einnig sýnd í sjón­varpi, bæði hér heima og erlendis fljót­lega.

„Hún verður sýnd á RÚV síðar og það er líka búið að selja hana til bæði dönsku og norsku rík­is­stöðv­anna, þar sem hún verður sýnd á næstu dögum,“ segir Haf­steinn. „Þannig að þetta er allt að fara af stað.“

Aðalmynd  /  Haf­steinn Gunnar Sig­urðs­son kvik­mynda­leik­stjóri gerði mynd­ina í sam­vinnu við Guðmund Björn Þor­björns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi