Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óánægja meðal kvikmyndagerðarmanna

Reiði meðal kvik­mynda­gerð­ar­manna vegna ráðn­ingar nýs ráð­gjafa hjá Kvik­mynda­mið­stöð Íslands.

Óánægja meðal kvikmyndagerðarmanna

Mikil óánægja ríkir meðal kvik­mynda­gerð­ar­manna vegna ráðn­ingar nýs ráð­gjafa hjá Kvik­mynda­mið­stöð Íslands. Felst óánægjan meðal ann­ars í því að starfið skuli ekki hafa verið aug­lýst laust til umsóknar. Kvik­mynda­gerð­ar­maður sem Mannlíf ræddi við og ekki vill láta nafns síns getið segir marga kvik­mynda­gerð­ar­menn setja spurn­inga­merki við fag­lega þekk­ingu og hæfi Önnu Maríu Karls­dóttur fram­leið­anda sem var ráðin til að gegna stöð­unni. „Hún kemur í stað Martins Schlüter sem hefur farið yfir styrk­um­sóknir fyrir heim­ilda­myndir,“ segir við­kom­andi. „Margir voru ósáttir við að aðili sem hefur ekki víð­tæk­ari þekk­ingu en hún á heim­ilda­mynda­gerð skuli vera ráðin í þá stöðu að veita ráð­gjöf varð­andi klipp­ingu og hand­rita­gerð slíkra mynda. Þegar athuga­semd var gerð við þetta var starfs­lýs­ing­unni skyndi­lega breytt og hún ein­fald­lega titluð sem ráð­gjafi og gefið í skyn að fyr­ir­komu­lagið væri bara til bráða­brigða til að fylla upp í eyð­una sem varð þegar Martin hætti. Þetta er allt saman stór­skrítið, því eins og þetta lítur út núna er eins og þetta sé klíku­starfs­semi og fólk er brjálað út af þessu. Það hefði klár­lega mátt fyr­ir­byggja stöð­una sem er komin upp með því að aug­lýsa starfið laust til umsóknar.“

Misskilningur á ferð

Mannlíf náði sam­bandi við Laufeyju Guð­jóns­dóttur, for­stöðu­mann Kvik­mynda­mið­stöðvar Íslands, sem segir í skrif­legu svari að um sé að ræða tíma­bundna ráðn­ingu „til sex mán­aða og heim­ilt að ráða þannig án aug­lýs­ingar. Sá sem gegndi starf­inu þurfti að hætta með mjög stuttum fyr­ir­vara vegna ann­arra starfa og því töldum við áríð­andi að fylla í skarðið sem fyrst. Það er sem sagt milli­bils­á­stand núna en má vænta breyt­inga og verður aug­lýst eitt­hvað síðar.“

Laufey segir jafn­framt að við­kom­andi sem var ráðin búi yfir viða­mik­illi þekk­ingu á flestum sviðum kvik­mynda­gerðar síð­ast­liðin u.þ.b. 25 ár auk þess að vera vel að sér í kvik­mynda­sögu og menn­ingu. „Reynslan er meðal ann­ars í þróun verk­efna, fram­leiðslu, kynn­ingu og mark­aðs­setn­ingu. Það er rétt að mest­an­part hafa það verið leiknar myndir þótt hún hafi líka komið að heim­ilda­mynda­gerð. Það má vænta þess að bak­grunnur hennar sé þannig að hún hafi for­sendur til að vinna á fag­legum nótum – þótt vissu­lega þurfi flestir að taka á þegar feng­ist er við nýtt starf,“ svarar hún og bendir m.a. á að hand­rit, efn­is­tök og strúktúr hvers verk­efnis sé metið af kvik­mynda­ráð­gjafa auk fram­leiðslu-, kostn­aðar- og dreif­ing­ar­máta, o.s.frv. Það gæti því ef til vill smá­mis­skiln­ings „að við­kom­andi eigi að veita rágjöf um klipp­ingu og vinnslu mynd­ar­innar, það er alltaf á höndum hvers leik­stjóra eða þeirra sem hann velur með sér til verks­ins.“

Getur ekki tjáð sig um einstök mál

Mannlíf hafði sam­band við Margréti Örn­ólfs­dóttur, for­mann Félags leik­skálda og hand­rits­höf­unda vegna máls­ins. Hún sagð­ist ekki geta tjáð sig um þetta ein­staka mál, en það láð­ist að koma því á fram­færi við vinnslu frétt­ar­innar. Margrét sagði að almennt væri gott ef allir verk­ferlar væru skýrir til að fyr­ir­byggja mis­skiln­ing. „Ég tel mjög mik­il­vægt að starf ráð­gjafa sé aug­lýst. Að það sé farið eftir verk­ferlum sem eru gegn­sæir,“ segir Margrét. „Þetta er lít­ill sjóður, fáir ráð­gjafar og mikið undir hjá fólki, því ráð­gjaf­arnir hafa úrskurð­ar­vald um fram­tíð verk­efn­anna sem fólk er að vinna að. Það er því skilj­an­legt að fólki sé ekki sama hvernig staðið er að þessu. Þetta verður að vera fag­legt og uppi á borðum og það er slæmt ef ein­hver vafi leikur á því að þetta sé í lagi,“ bendir hún á. „Ég get ekki tjáð mig um ráðn­ingar ein­stakra ráð­gjafa, en það er mik­il­vægt að svona ferli séu skýr svo það komi ekki upp ein­hver mis­klíð sem fer að bein­ast að per­sónum sem eiga í hlut. Því á end­anum snýst hlut­verk Kvik­mynda­sjóðs um að styðja við íslenska kvik­mynda­gerð, svo við höldum áfram að efl­ast og þroskast sem atvinnu­grein.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi