Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skeljungsfléttan sem gerði fimm einstaklinga ofurríka

Skeljungsfléttan sem gerði fimm einstaklinga ofurríka
|

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara réðst í umfangs­miklar aðgerðir í síð­ustu viku vegna Skelj­ungs­máls­ins svo­kall­aða. Fléttan sem ofin var í mál­inu er talin hafa falið í sér sölu hlut á und­ir­verði, ólög­mæta nýt­ingu á fjár­munum Skelj­ungs, þynn­ingu á veði kröfu­hafa og um 850 millj­óna króna greiðslu til hvers þeirra þriggja starfs­manna banka sem seldu nýjum eig­endum Skeljung.

Fimmtu­dag­inn 31. maí réðst emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í umfangs­miklar aðgerðir vegna máls sem hafði verið til skoð­unar þar frá miðju ári 2016. Málið snérist um meint umboð­svik, meint skila­svik, mögu­leg mútu­brot og mögu­legt brot á lögum um pen­inga­þvætti þegar olíu­fé­lagið Skelj­ungur og tengd félög voru keypt og seld á árunum 2008 til 2013. Við brot­unum getur legið allt að sex ára fang­els­is­vist.

Fimm ein­stak­lingar eru með stöðu sak­born­ings við rann­sókn máls­ins. Tvö þeirra, hjónin Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir og Guð­mundur Þórð­ar­son, voru hand­tek­inn á fimmtu­dag. Hin þrjú; Einar Örn Ólafsson, Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir og Kári Guð­jóns­son, sem unnu saman í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis fyrir um ára­tug, voru boðuð til skýrslu­töku sama dag.

Fólkið er grunað um að hafa mis­notað aðstöðu sína til að koma eignum út úr banka á und­ir­verði, að hafa nýtt sam­eig­in­legar eignir Skelj­ungs og bank­ans til að greiða fyrir kaup í félag­inu, að hafa vilj­andi rýrt eignir Íslands­banka og að hafa gert með sér sam­komu­lag þar sem Svan­hildur Nanna og Guð­mundur afhentu hinum þremur sem seldu þeim Skeljung yfir 800 millj­ónir króna hverju fyrir sig fyrir þeirra aðkomu að mál­inu.

Á sama tíma og hand­tök­urnar áttu sér stað fóru fram hús­leitir víða um höf­uð­borg­ar­svæðið í tengslum við rann­sókn máls­ins. Engar eignir voru þó kyrr­settar á þessu stigi máls­ins, en fólkið hefur allt efn­ast mjög hratt á síð­ustu árum. Og öll þau umsvif hófust með Skelj­ungs­við­skipt­unum sem nú þykir rök­studdur grunur um að hafi ekki stað­ist lög.

Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir er í dag í stjórn VÍS, en hún og eig­in­maður hennar eru stórir hlut­hafar í félag­inu. Hún sagði af sér stjórn­ar­for­mennsku fyrir viku síðan í kjöl­far þess að hún var hand­tekin af emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara.

Bestu og verstu viðskiptin

Salan á Skelj­ungi og P/F Magn vöktu eðli­lega mikla athygli í lok árs 2013. Þau voru valin bestu við­skipti árs­ins 2013 af Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti. Í rök­stuðn­ingi dóm­nefnd­ar­manna sagði m.a. „Ef rétt er að þau [hjónin Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir og Guð­mundur Örn Þórð­ar­son] hafi fengið tíu millj­arða króna fyrir félagið (með skuldum) eru þau rétt­nefndir snill­ingar!“ og „Eigendur Skelj­ungs koma vel frá borði — fengu ríf­lega greitt fyrir sinn hlut.“

Við­skiptin voru líka ofar­lega á blaði yfir verstu við­skipti árs­ins, en í þeim flokki lentu þau í öðru sæti. Þar var þó átt við að við­skiptin hefði verið léleg fyrir kaup­end­urna, sem að mestu voru líf­eyr­is­sjóðir. Í umsögn sagði að félagið hafi verið lít­ils virði nokkrum árum áður, en nið­ur­fell­ingar skulda og kaup­gleði fag­fjár­festa hefði gert eig­endum félags­ins kleift að ná fram einum bestu við­skiptum síð­ustu ára. „Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru stút­fullir af pen­ingum og virð­ast vera að kaupa Skeljung á allt of mikið“ var haft eftir einum dóm­nefnd­ar­manni Mark­að­ar­ins.

Kjarninn fer ítar­lega yfir flétt­una í fjórum skrefum í Mannlífi sem kom út föstu­dag­inn 8. júní og á vef sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi