Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Baðaði sig aðeins í aðdáun í joggingbuxum og íþróttaskóm

Gildran eftir Lilju Sig­urð­ar­dóttur hefur verið til­nefnd til Gullna rýt­ings­ins í flokki þýddra bóka. Í sam­tali við Mannlíf segir rit­höf­und­ur­inn til­nefn­ing­una hafa komið algjör­lega flatt upp á sig. Hún sé þó him­in­lif­andi með hana enda sé um að ræða ein eft­ir­sótt­ustu alþjóð­legu glæpa­sagna­verð­laun heims.

Baðaði sig aðeins í aðdáun í joggingbuxum og íþróttaskóm
||

„Ég er auð­vitað him­in­lif­andi. Þetta er mik­ill heiður þannig að ég er upp með mér yfir þessu en ég er líka afskap­lega þakk­lát. Svona vel­gengni er ekki sjálf­sögð. Þetta er vís­bend­ing um að bókin hafi fallið í kramið en líka að hún sé vel þýdd hjá Quentin Bates, sem er auð­vitað til­nefndur með mér, þar sem það er í raun bókin sem fær til­nefn­ing­una og í alþjóð­lega flokknum þá eru það bæði höf­undur og þýð­andi,“ segir Lilja og bætir við að það sé ekki leið­in­legt að fyrsta bókin hennar sem kemur út á ensku nái svona braut­ar­gengi en Gullni rýt­ing­ur­inn, The CWA International Dagger, er verð­laun Samtaka breskra glæpa­sagna­höf­unda, veitt ann­ars vegar fyrir bækur sem eru skrif­aðar á ensku og hins vegar bækur þýddar á ensku og eru talin vera ein eft­ir­sótt­ustu alþjóð­legu glæpa­sagna­verð­laun heims.

Á meðal rit­höf­unda sem eru líka til­nefndir í ár má nefna Henning Mankell, Pierre Lemaitre, Fred Vargas, Roslund og Hell­ström og Arnald Ind­riða­son fyrir bók­ina Skugga­sund en þýð­andi hennar, Victoria Cribb, er til­nefnd með Arnaldi. Lilja seg­ist hrein­lega eiga bágt með að koma því heim og saman í hausnum á sér að vera á lista með þessum stóru nöfnum í brans­anum, frá­bærum höf­undum sem hún hefur lesið sér til ánægju og litið upp til. Það sé frá­bært að vera í slag­togi með Arnaldi.

„En að kom­ast inn á enska mál­svæðið og að það myndi ganga svona rosa­lega vel flaug mér ekki í hug. Og verð­laun eru ein­hvern veg­inn ekki eitt­hvað sem manni dettur í hug, sér­stak­lega ekki í þessu rosa­lega stóra sam­hengi.“

„Það er alltaf gaman,“ segir hún glað­lega. „Arnaldur er nátt­úr­lega ótví­ræður kon­ungur íslensku glæpa­sög­unnar og mik­ill braut­ryðj­andi fyrir okkur hin. Hann er eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur fengið Rýting, fyrir bók sína Graf­ar­þögn árið 2005 og verið til­nefndur nokkrum sinnum að auki,“ segir hún og þegar blaða­maður spyr þá hvort hún viti til þess að fleiri íslenskir höf­undar hafi verið til­nefndir til verð­laun­anna í gegnum tíð­ina seg­ist hún halda að hún sé annar Íslend­ing­ur­inn sem fær til­nefn­ingu til þeirra. „En ég má svo til með skjóta því inn að við Arnaldur höfum sama rit­stjór­ann, Sigríði Rögn­valds­dóttur hjá For­lag­inu, sem má þá, held ég, fara að telj­ast drottn­ing íslenskra glæpa­sagna­rit­stjóra!“

Kom til­nefn­ingin á óvart? „Já, hún kom algjör­lega flatt upp á mig,“ við­ur­kennir hún. „Ég var á Crimefest í Bristol en til­nefn­ing­ar­at­höfnin var á föstu­deg­inum sem var frí­dag­ur­inn minn svo ég spurði útgef­and­ann hvort ég þyrfti nokkuð að mæta á athöfn­ina og hún sagði að það væri allt í lagi að sleppa því. Svo ég fór niður í bæ til að kaupa smá­ræði sem mig vant­aði og var nýkomin aftur á stað­inn en ekki búin að skipta um föt fyrir kvöld­dag­skrána. Ég sat á kaffi­hús­inu niðri með nokkrum kunn­ingjum og sötr­aði kaffi þegar það kom SMS frá útgef­and­anum: Þú ert til­nefnd! Svo ég þaut upp í kok­teil­boðið, enn á íþrótta­skóm og í jogg­ing­buxum, til að baða mig aðeins í aðdáun og knúsum.“

Ótrúleg velgengni

Þegar Lilja ákvað að skrifa Gildruna, sem fjallar í stuttu máli um Sonju, les­bíu og ein­stætt for­eldri sem leið­ist út í eit­ur­lyfja­smygl, seg­ist hún ekki hafa séð fyrir sér að vera til­nefnd til verð­launa af þess­ari „stærð­argráðu“. Þvert á móti. „Þegar ég skrif­aði Gildruna var ég að skrifa fyrir íslenska les­endur þó að auð­vitað von­ist flestir íslenskir höf­undar eftir því að fá útlendan samn­ing. En að kom­ast inn á enska mál­svæðið og að það myndi ganga svona rosa­lega vel flaug mér ekki í hug. Og verð­laun eru ein­hvern veg­inn ekki eitt­hvað sem manni dettur í hug, sér­stak­lega ekki í þessu rosa­lega stóra sam­hengi.“

Búrið.

Óhætt er að segja að Gildran sé búin að njóta mik­illar vel­gengni frá því að hún leit dags­ins ljós árið 2015, en sem dæmi um það er bókin nú líka til­nefnd til franskra glæpa­sagna­verð­launa, Prix Meilleur Polar hjá Points og er þar á tíu bóka lista sem verður styttur þegar líður á árið. Auk þess er Gildran komin út á ensku, norsku, dönsku og tékk­nesku og er nú unnið að því að þýða hana á pólsku og Makedónsku, en til stendur að þýða fram­halds­bæk­urnar Netið og Búrið á sömu tungu­mál. Miðað við ánægju útgef­enda með Gildruna seg­ist Lilja telja að salan gangi vel. Sjálfri finn­ist henni þetta spenn­andi og ekki síst sú stað­reynd að les­enda­hóp­ur­inn skuli stækka og stækka. Það sé dásam­leg til­finn­ing fyrir íslenskan höf­und. Þá kveðst hún líka vera dauð­spennt fyrir sjón­varps­þátta­röð sem er í und­ir­bún­ingi og byggir á Gildrunni, enda sé hún algjör sjón­varps­fík­ill og sjái sög­urnar sínar alltaf fyrir sér mynd­rænt. Það verði því gaman að sjá útkom­una. En er nýtt verk í vinnslu um þessar mundir?

„Ég var að skila inn nýrri bók til For­lags­ins, stakri bók, sem sé ekki hluti af bóka­flokki, en hún kemur út í októ­ber,“ svarar hún. „Þetta er spennu­saga með póli­tísku ívafi um konu sem tekur við inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu sem utan­þings­ráð­herra og rekst þar á sam­særi og að auki kemur gam­alt mál um dul­ar­fullt dauðs­fall í fjöl­skyldu hennar upp á yfir­borðið,“ lýsir hún og seg­ist ekki vera reiðu­búin að gefa meira upp – að sinni.

Talið berst því aftur að til­nefn­ing­unni til Gullna rýt­ings­ins, en Lilja upp­lýsir blaða­mann um að það séu tíu bækur á þessum lista. Þetta sé svo­kall­aður „long­list“ sem verði svo innan nokk­urra vikna styttur í „short­list“ þar sem eru sex titlar og verð­launa­haf­inn komi til með að vera val­inn af þeim lista. „Ég geri mér ekki miklar vonir um að fara áfram á stutt­list­ann en bara það að vera til­nefnd með þessu gengi er algjör draumur.“

Spurð hvar verð­launa­af­hend­ingin fari fram og hvort hún ætli að vera við­stödd, segir Lilja það vera ágæta spurn­ing sem hún viti hrein­lega ekki svarið við. „Ég ætti kannski að senda línu á útgef­and­ann minn og spyrja að þessu,“ segir hún og hlær. „Afhend­ingin er ein­hvern tíma í sumar eða haust. Ég er með stranga dag­skrá á kynn­ing­ar­ferða­lögum og er í raun­inni upp­bókuð fram í jan­úar á næsta ári svo ég veit ekki hvernig þetta kemur heim og saman við það, en það væri ofur­gaman að vera við­stödd, hver sem vinnur.“

Gildran og Netið hafa notið mik­illa vin­sælda og sömu­leiðis Búrið, sem er síð­asta bókin í þrí­leiknum.

Aðalmynd: Lilja Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur og Quentin Bates, þýð­andi bók­ar­innar, kát með til­nefn­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi