Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Söðlaði um, gerðist eplabóndi og býður nú í ævintýraferð

Söðlaði um, gerðist eplabóndi og býður nú í ævintýraferð
|||

Erla Hjördís Gunn­ars­dóttir söðl­aði um fyrir þremur árum, pakk­aði niður í töskur og gerð­ist eggja- og epla­bóndi í smá­bænum Álavík í Noregi ásamt eig­in­manni sínum. Nú býður hún Íslend­ingum í ævin­týra­lega epla­ferð um vest­ur­strönd Noregs.

Aðalmynd: Hér sést Erla (til vinstri) ásamt Ingi­björgu Pét­urs­dóttur, for­rit­ara hjá Bænda­sam­tökum Íslands. Í bak­grunni eru dætur Erlu, þær Dagbjört Dís og Glódís Björt.

Kári Kiljan, yngsta barn Erlu, ánægður með upp­sker­una í Álavík.

„Ég er skipu­leggj­andi og far­ar­stjóri og var búin að hugsa þetta nokkrum sinnum, að aug­lýsa slíka ferð þar sem ég er eggja- og epla­bóndi í smábæ í Harð­ang­urs­firð­inum og hafði tekið eftir miklum áhuga gesta á okkur, sér­stak­lega á epla­rækt­inni. Þannig að mín hug­mynd er að geta kynnt epla­rækt­ina enn frekar fyrir Íslend­ingum og leyfa þeim að taka þátt í upp­sker­unni með því að ganga um epla­ak­ur­inn, tína sér nesti í poka og kom­ast þannig í sann­kallað návígi við eplin,“ segir fjöl­miðla­konan og bónd­inn Erla Hjördís Gunn­ars­dóttir. Erla skipu­leggur nú epla­upp­skeru- og ævin­týra­ferð til Noregs dag­ana 3. til 7. októ­ber. Það eru þó ekki aðeins eplin sem spila stórt hlut­verk í ferð­inni.

„Að auki ætlum við að heim­sækja bændur sem selja beint frá býli, heim­sækja epla­víns­verk­smiðju, stoppa á ekta norsku sveita­kaffi­húsi og fá þjóð­legar veit­ingar, kynn­ast jarð­gangna- og brú­ar­gerð á heims­mæli­kvarða, skoða tign­ar­lega norska fossa, fá kynn­is­ferð um Oleana-prjóna­verk­smiðj­una sem er ein af fáum fata­fram­leið­endum í Noregi sem enn fram­leiða allar sínar vörur í heima­land­inu, skoða staf­kirkju í Bergen og kynn­ast borg­inni betur ásamt fleiru,“ segir Erla full til­hlökk­unar og bætir við: „Þetta verður sann­kölluð ævin­týra­ferð á vest­ur­strönd Noregs, nánar til­tekið í kringum Bergen og Harð­ang­urs­fjörð­inn.“

500 eplatré og 7500 varphænur

Erla telur að ferð sem þessi höfði til Íslend­inga þar sem lítið sé um skipu­lagðar ferðir á milli þess­ara nágranna­landa. Sjálf er hún hug­fangin af Noregi eftir að hún og fjöl­skylda hennar, sem telur eig­in­mann og þrjú börn stökk ofan í djúpu laug­ina fyrir þremur árum síðan.

„Við fjöl­skyldan fluttum hingað fyrir þremur árum af hreinni ævin­týra­mennsku og við hjónin ákváðum að ger­ast bændur sem við höfðum ekki prófað áður heima. Þetta tæki­færi kom í gegnum vinn­una mína hjá Bænda­sam­tökum Íslands og eftir dágóða umhugsun ákváðum við að slá til og prófa því við vissum að þetta tæki­færi myndi ekki koma aftur,“

segir Erla og sér ekki eftir því að hafa látið slag standa þegar færi gafst.

„Við erum hér í smá­bænum Álavík sem telur nálægt þús­und íbúum og er sveita­bær­inn stað­settur í miðju bæj­ar­ins. Við erum með 7500 varp­hænur og um 500 epla­tré og með okkar eigin rekstur í kringum búskap­inn. Við próf­uðum einnig að rækta hind­ber í gróð­ur­húsi en það var ekki arð­bært svo við snerum snar­lega út úr því. Hér var okkur rosa­lega vel tekið og hefur gengið mjög vel með börnin okkar þrjú svo við sjáum ekki eftir að hafa stokkið á þetta tæki­færi, við verðum öll reynsl­unni rík­ari eftir þessa upp­lifun.“

Ekki leið­in­legt útsýni hjá bænd­unum í Álavík.

Hjartað slær á Íslandi

Hún segir þó að Ísland togi enn í fjöl­skyld­una, enda mikið og stórt bak­land sem þau eiga þar af ætt­mennum og vinum.

„Við litum alltaf á þetta sem tíma­bundið ævin­týri og gerum enn og hjartað slær óneit­an­lega heima á Íslandi. Við tökum eitt ár í einu, aðal­lega vegna þess að hæn­urnar eru rétt rúmt ár inni í húsi og síðan er þeim skipt út. Svo það verður að koma í ljós hvað við gerum, hér er ákaf­lega gott að vera en heima er best og fyrir okkur er það Ísland.“

Þeir sem vilja fræð­ast meira um ferð­ina geta haft sam­band við Erlu í gegnum net­fangið [email protected] eða í síma 563 0320.

15 tonn af eplum

Erla og fjöl­skylda hennar rækta 15 tonn af eplum á ári en í Harð­ang­urs­firði eru kjörað­stæður til ávaxta­rækt­unar, sér­stak­lega epla-, peru-, plómu- og kirsu­berja­rækt­unar.

Fjöl­skyldan ræktar nokkrar mis­mun­andi teg­undir af eplum.

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi