Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ferðaþjónustuaðilar bera ábyrgð ef eitthvað bjátar á

Formaður félags leið­sögu­manna segir það á ábyrgð fyr­ir­tækja sem standa fyrir skipu­lögðum ferðum ef eitt­hvað komi upp á. Nýverið kom upp atvik þar sem fyr­ir­tæki fór ekki að settum reglum.

Ferðaþjónustuaðilar bera ábyrgð ef eitthvað bjátar á
|
Indriði H. Þor­láks­son, for­maður Félags leið­sögu­manna. Mynd / Skjáskot tekið úr við­tali í Kast­ljós­inu.

Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri sem nýverið tók við sem for­maður Félags leið­sögu­manna, segir að ef eitt­hvað komi upp á í skipu­lögðum ferðum sé það á ábyrgð þeirra sem að þeim standi. Hann leggur áherslu á að fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu verði að gera sér grein fyrir ábyrgð­inni sem á þeim hvílir. „Það gildi engin lög um rétt­indi eða kröfur gerðar til þeirra sem vilja kalla sig leið­sögu­menn,“ nefnir hann sem dæmi. „Í raun getur sá sem skipu­leggur og selur ferðir dubbað hver sem er upp sem leið­sögu­mann.“

„Við­kom­andi fyr­ir­tæki sem gerir ferð­ina út er líka ábyrgt fyrir athöfnum þeirra sem það ræður til starfa.“

Á sunnu­dags­kvöld hafði Varð­skipið Týr afskipti af far­þega­bát hvala­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Láki Tours austur af Rifi, en fyr­ir­tækið gerir út frá Snæ­fells­nesi. Leyfi var fyrir 30 manns í bátnum en um borð voru 40 far­þegar og fjög­urra manna áhöfn, að því er fram kom í til­kynn­ingu frá Land­helg­is­gæsl­unni. Gísli Ólafsson, skip­stjóri og eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins, lét hafa eftir sér í fjöl­miðlum að hann hafi sótt um trygg­ingu eins og alltaf fyrir 45 far­þega á bát­inn en trygg­inga­fé­lag hans sent inn vit­lausa til­kynn­ingu til sam­göngu­stofu. Fyr­ir­tækið sé með leyfi fyrir 45 manns en 40 hafi verið um borð. En í til­kynn­ingu Land­helg­is­gæsl­unnar segir enn fremur að tveir af fjórum í áhöfn hafi ekki verið lög­skráðir og eng­inn þeirra með rétt­indi til að gegn stöðu vél­stjóra.

Gísli skip­stjóri er sjálfur með vél­stjóra- og skip­stjóra­rétt­indi fyrir báta að 12 metrum. Báturinn sem Land­helg­is­gæslan stöðv­aði var hins vegar fjórum metrum lengri. Gísli sagð­ist vera með rétt­indi fyrir stærri báta en hafi átt eftir að fá skír­teinið afhent. Hann sagði mis­tökin liggja hjá Sam­göngu­stofu en lög­skrán­ing­ar­kerfið hafi legið niðri um helg­ina. Hann tók fram í sam­tali við mbl.is að far­þegar hafi ekki verið í neinni hættu.

Indriði áréttar ábyrgð­ar­hluta fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu. „Það er ekki ábyrgð­ar­laust að ráða til starfa fólk án þess að vita hvort það er full­fært um að gegna því hlut­verki sem það er ráðið til. Við­kom­andi fyr­ir­tæki sem gerir ferð­ina út er líka ábyrgt fyrir athöfnum þeirra sem það ræður til starfa,“ segir hann og bendir á að leið­sögu­menn og fyr­ir­tækin séu ábyrg fyrir þeim sem þeir leið­segja. „Að þessu leyti er staðan í ferða­þjón­ustu arfa­slök. Engar reglur gilda. Það eru til skólar sem útskrifa leið­sögu­menn og miða við ákveð­inn staðal sem er við­ur­kenndur í Evrópu. En það er engin kvöð sem hvílir á þeim sem ráða leið­sögu­menn að ráða þá í þjón­ustu sína. Þeir hafa algjör­lega frjálsar hendur. En þótt þetta sé ekki nið­ur­skrifað í lögum þá eru almenn ábyrgð­ar­sjón­ar­mið fyrir hendi í ferða­þjón­ustu,“ segir Indriði

Ekki náð­ist í Sam­göngu­stofu vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi