Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Maður getur eiginlega ekki hætt“

Til er fólk sem velur þann starfa að bæta í mat­ar­kistu þjóð­ar­innar þrátt fyrir litlar þakkir og léleg laun. Hvernig dettur ungu fólki að ger­ast bændur? Mannlíf fór á stúf­ana og hitti jákvæða og bjart­sýna ung­bændur sem hafa nýlega tekið þá ákvörðun að gera land­búnað að ævi­starfi sínu. Síðast hittum við bændur í Suður-Þing­eyj­ar­sýslu. Nú er kast­ljós­inu beint að ungum bónda að Hrúta­tungu í Hrúta­firði.

„Maður getur eiginlega ekki hætt“
||
Kærustuparið Þorbjörg Helga Sig­urð­ar­dóttir og Jón Kristján Sæmunds­son.

„Ég fór ekk­ert að velta fyrir mér að verða bóndi fyrr en ég var orð­inn full­orð­inn,“ segir Jón Kristján Sæmunds­son, 25 ára bóndi að Hrúta­tungu í Hrúta­firði. Jón er Borg­nes­ingur, lærði fyrst vél­virkjun í Fjöl­brauta­skóla Vest­ur­lands á Akranesi og hóf að starfa við þá grein í Borg­ar­nesi. En að hans sögn var hann samt alltaf að „skjót­ast“ hingað og þangað í sveita­störf.

„Ég fór alltaf í sveit á sumrin og flakk­aði á milli ætt­ingja sem stunda búskap. Amma mín í móð­ur­ætt býr á sveitabæ í Fnjóska­dal og svo bjó afa­bróðir minn hér að Hrúta­tungu. Þannig að ég var alltaf að skjót­ast í sveit­ina og fannst þetta gaman svo ég ákvað að skella mér á Hvann­eyri og lærði búfræð­ing­inn þar.“

Það stóð þó ekki endi­lega til að ger­ast bóndi strax en þannig vildi til að afa­bróðir Jóns veikt­ist af krabba­meini og ákvað að bregða búi sama ár og Jón átti að útskrif­ast frá Hvann­eyri. „Það flýtti svo­lítið ferl­inu, ég ætl­aði nú kannski ekki að kaupa jörð strax en þarna var ann­að­hvort að hrökkva eða stökkva,“ segir Jón og rifjar upp að hann hafi í raun ekki getað flutt norður fyrr en 6. maí því að skól­inn klárað­ist ekki fyrr, þótt sauð­burður hafi verið kom­inn á fullt.

„Ég bjó í raun þarna með frænda mínum og kon­unni hans um vorið og hann hjálp­aði mér mikið um sum­arið, við hey­skap­inn og svona, kom mér inn í hlut­ina meðan ég var að koma mér fyrir. En nú eru þau flutt til Selfoss.“

„Ég var mjög mót­fall­inn búvöru­samn­ing­unum, finnst þeir van­hugs­aðir og illa skipu­lagðir og bænda­for­ystan ekki að standa sig, að mínu mati. En bændur sam­þykktu þetta svo maður gerir lítið í því úr þessu.“

Vinnur í Stað­ar­skála til að ná endum saman
Þetta var fyrir tveimur árum þegar Jón var 23 ára og tók hann við búi með 350 kindum. Hann hefur síðan fjölgað fénu upp í 450 ær og er með nokkur hross líka. „Ég fjölga ekki meira í bili alla­vega, ég er búinn að fylla allt húsa­pláss sem ég hef, ég þyrfti þá að byggja og sauð­fjár­bú­skapur stendur bara ekki undir neinum fram­kvæmdum þessa dag­ana. Hann stendur eig­in­lega ekki undir sjálfum sér,“ segir þessi ungi bóndi og spurður hvort að það hafi þá ekki verið vit­leysa að ger­ast bóndi svarar hann að for­send­urnar hafi gjör­breyst á þessum stutta tíma.

„Það var svo­lítið mikið annað útlit þegar ég keypti jörð­ina fyrir tveimur árum. Á þeim tíma sem er lið­inn hafa nýir búvöru­samn­ingar tekið gildi, sem komu sér mjög illa fyrir mig. Svo hefur afurða­verð lækkað um rúm 30% síðan ég keypti. Fyrsta haustið sem ég lagði inn í slát­ur­hús var 8% lækkun og svo núna síð­ast 28% lækkun í við­bót. Allar for­send­urnar sem voru þegar ég keypti eru bara ekki til staðar lengur.“

Jón er ómyrkur í máli þegar talið berst að nýju búvöru­samn­ing­unum og greini­legt að þeir hafa snert hann illa. „Ég var mjög mót­fall­inn búvöru­samn­ing­unum, finnst þeir van­hugs­aðir og illa skipu­lagðir og bænda­for­ystan ekki að standa sig, að mínu mati. En bændur sam­þykktu þetta svo maður gerir lítið í því úr þessu. Ég keypti mikið ærgildi sem fylgir jörð­inni, sem er í raun­inni rík­is­stuðn­ingur. Og á samn­ings­tíma­bil­inu, sem er 10 ár, á að eyða þessum ærgildum út. Miðað við hvernig dæmið leit út fyrir mig þegar búvöru­samn­ing­arnir komu út, þá í lok tíma­bils­ins mun ég fá um 30% minna í rík­is­stuðn­ing en þegar ég byrj­aði og það er dálítið stór biti því ofan á það kemur svo lækk­unin frá slát­ur­hús­inu svo þetta verður í raun ansi mikil launa­lækkun.“

Hann vinnur því í Stað­ar­skála á vet­urna til að ná endum saman. „Búið rekur sig og svo rek ég mig. Svo hefur kærastan líka unnið úti. Staðan er bara þannig núna að ég vinn launa­laust við búið,“ útskýrir Jón. Kærastan heitir Þorbjörg Helga Sig­urð­ar­dóttir og er einnig flutt að Hrúta­tungu.

Jón Kristján Sæmunds­son, 25 ára, er bóndi að Hrúta­tungu í Hrúta­firði. Þegar afa­bróðir hans veikt­ist af krabba­meini tók hann við búi hans. „Ég ætl­aði nú kannski ekki að kaupa jörð strax en þarna var ann­að­hvort að hrökkva eða stökkva,“ segir Jón. Myndin var tekin þegar hann hlaut við­ur­kenn­ingu fyrir tamn­ingu þegar hann var við nám við bænda­skól­ann.

„Maður verður bara að spýta í lóf­ana“
Jón seg­ist þó ekki sjá eftir því að hafa keypt jörð­ina og farið út í búskap. „Mér líður svo sem ágæt­lega með ákvörð­un­ina, mér hefur gengið ágæt­lega. Afurð­irnar eru að aukast, frjó­semin hækkað og slíkt. Það sem ég get gert í þessu er að skila sér og hefur gengið vel það sem ég hef vald yfir,“ segir hann og bætir við að þótt hann vildi, væri það engin lausn að hætta búskapnum. „Maður getur eig­in­lega ekki hætt. Það er eng­inn til að kaupa ef maður skyldi vilja selja. Maður verður bara að spýta í lóf­ana og halda áfram, eða það er það sem ég sé í þessu.
Það hlýtur að hækka verðið aftur, ein­hvern tíma. Vonandi.“

Þau skötu­hjúin sjá því fyrir sér að búa að Hrúta­tungu næstu fimm­tíu árin eða svo. „Ja, alla­vega eitt­hvað svo­leiðis,“ segir Jón og hlær. Honum þykir hann ekk­ert til­tölu­lega ungur til að vera orð­inn bóndi, margir vinir hans frá Hvann­eyri séu í svip­uðum sporum. „Einn skóla­fé­lagi minn þaðan, yngri en ég, er nú að fara að taka við kúa­búi for­eldra sinna á Suð­ur­landi. Og ein skóla­systir mín keypti kúabú rétt hjá Hólmavík nýlega, og það eftir að nýju búvöru­samn­ing­arnir tóku gildi svo hún hlýtur að vita út í hvað hún er að fara,“ segir Jón og hlær aftur.

Ungir bændur hafa ef til vill ekki eins mik­inn tíma eða tæki­færi til að fara út á lífið eins og margir jafn­aldrar þeirra í þétt­býl­inu, saknar Jón þess ekk­ert? „Nei, það hefur ekk­ert háð mér. Ég djamm­aði mikið þegar ég var yngri en maður er bara búinn með mestan part­inn af því.“

Hann segir eitt annað ungt par stunda búskap í Miðfirði en að öðru leyti eru ekki margir af nágrönn­unum á svip­uðum aldri og Jón. Hann seg­ist finna fyrir stuðn­ingi frá sam­fé­lag­inu í kringum sig og síst af öllu sé reynt að gera lítið úr honum eða þekk­ingu hans á bústörfum þótt nýgræð­ingur sé. „Nei, ég hef ekki orðið var við það, frekar að þeir séu bara hjálp­samir. Ég myndi segja að ég væri nokkuð hepp­inn með nágranna og það er alveg nauð­syn­legt í sveit.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi