Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Missti báða eggjaleiðarana og bjó til ævintýrapersónu

Missti báða eggjaleiðarana og bjó til ævintýrapersónu
|||

Anna Bergljót Thoraren­sen semur nýjasta verk Leik­hóps­ins Lottu. Þetta er átt­unda verkið sem hún skrifar fyrir hóp­inn og segir sitt eigið líf farið að bland­ast inn í ævin­týra­heim leik­hóps­ins. Í nýjasta verkin er per­sóna sem þráir að eign­ast börn en getur það ekki, en Anna Begga missti báða eggja­leið­ar­ana á síð­asta ári.

Aðalmynd: Hér er Anna Begga í miðj­unni ásamt leik­ur­unum sex sem skipta öllum hlut­verkum í sýn­ing­unni á milli sín.

„Við grín­uð­umst með það að þegar yfir lyki væri senni­lega hægt að lesa ævi­sögu mína út úr hand­rit­unum sem ég læt eftir mig. En það er nú bara þannig að mér finnst skemmti­legra að skrifa um það sem stendur mér nærri,“ segir Anna Bergljót Thoraren­sen, eða Anna Begga eins og hún er oft kölluð, heil­inn á bak við leik­hóp­inn Lottu og brosir.

Gosi og allir hinir í Ævin­týra­skóg­inum.

Leik­hóp­ur­inn leggur land undir fót tólfta sum­arið í röð með glæ­nýja fjöl­skyldu­sýn­ingu þar sem áhorf­endur fá að kynn­ast spýtu­stráknum Gosa betur.

„Við erum að vinna eftir sömu upp­skrift og við höfum oft gert áður, það er að blanda saman nokkrum ævin­týrum og reglum úr ævin­týrum og binda þær saman með einum rauðum þræði. Já, eða nokkrum þráðum sem síðan flétt­ast í eina fal­lega fléttu með þykktum enda­hnúti,“ segir Anna Begga og heldur áfram. „Inni­halds­efnin eru hins vegar marg­breyti­leg og þegar ég er búin að týna þau til þá finnst mér oft eins og þau taki yfir og ákveði svo­lítið sjálf hvert þau vilja fara með sög­una.“

Garðabrúða með stórt hlutverk

Anna Begga segir að auk Gosa spili Garða­brúða stórt hlut­verk í sýn­ingu sum­ars­ins, sem og ævin­týrið Óskirnar þrjár.

„Í sumar erum við að vinna með spýtu­strák­inn Gosa og hans sterkasta ævin­týraminni sem er nefið sem stækkar þegar hann lýgur. Ég ákvað síðan að leyfa Garða­brúðu að fá stórt hlut­verk í leik­rit­inu í ár. Garða­brúða er stúlkan sem er föst uppi í turni og kastar niður hár­inu sínu til að hægt sé að kom­ast í og úr honum. Eina leiðin til að kom­ast upp til hennar er sem sagt að klifra upp hárið hennar. Þessar tvær hindr­anir eða þessi tvær reglur sem höf­undur þarf að vinna eftir setja mik­inn svip á það hvert verkið fer og ákveða ekki síður en höf­und­ur­inn hvert verkið vill fara. Í sumar er líka auka­saga inni í verk­inu okkar sem heitir Óskirnar þrjár,“ segir Anna Begga og verður dul þegar ég inni hana eftir frek­ari upp­lýs­ingar um fram­vindu verks­ins.

„Óskirnar þrjár þekkja ekki margir. Til dæmis voru ekki nema tvö úr sjö manna leik­hóp sem þekktu hana áður en við hófum æfingar og því vil ég ekk­ert vera að rifja hana neitt upp fyrir fólki hér í þessu við­tali. Hún fær bara að koma skemmti­lega á óvart.“

Veit hvað persónurnar ganga í gegnum

Anna Begga er leik­stjóri og höf­undur verks­ins. Það væri svo sem ekki í frá­sögur fær­andi nema fyrir þær sakir að þetta er átt­unda verkið sem hún skrifar fyrir leik­hóp­inn.

Hress hópur.
„Ég var einmitt að tala um það við vin­konu mína um dag­inn að leik­ritin mín væru farin að lit­ast í meira mæli af því hvað er að ger­ast í mínu lífi,“ segir Anna Begga. Hún sækir inn­blástur bæði í gleði­stund­irnar í líf­inu, en einnig þær erf­iðu og átak­an­legu.

„Fyrir tveimur sumrum settum við upp Litaland þar sem ein per­sónan var ófrísk og átti meira að segja barn á miðju svið­inu. Þessi ákveðna per­sóna var skrifuð beint þarna inn svo ég gæti tekið þátt það sum­arið af því að ég var sjálf nýbúin að kom­ast að því að ég væri ólétt. Á síð­asta ári missti ég síðan báða eggja­leið­ar­ana vegna utan­legs­fóst­urs og stóð síðan sjálfa mig að því að vera komin með per­sónu inn í Gosa sem þráir það að eign­ast barn en getur ekki eign­ast barn,” segir Anna Begga og bætir við. „Þannig flétt­ast mitt líf stundum inn í ævin­týrin líka en mik­il­væg­ast finnst mér þó að þeir sem horfi á hafi gaman að en ekki síður að verkið skilji eftir spurn­ingar eða boð­skap sem hægt er að nýta sér.“

En er ekk­ert erfitt að nýta eigin reynslu í svona létt­leik­andi verk? Hefur það kannski með­ferð­ar­gildi?

„Ég held alla vega að ég nái extra miklu út úr leik­ur­unum þegar ég veit hvað karakt­er­arnir eru að ganga í gegnum.“

Nefið stækkar og stækkar.

Gosi í hnotskurn

Fjöldi sýn­ing? Um 100.
Hvar? Út um allt land og leikið undir berum himni.
Síðasta sýn­ing? 29. ágúst.
Hvar sé ég sýn­ing­arplan? leik­hop­ur­inn­lotta.is
Leikarar? Bergdís Júlía Jóhanns­dóttir, Björn Thoraren­sen, Huld Ósk­ars­dóttir, Sig­steinn Sig­ur­bergs­son, Stefán Benedikt Vil­helms­son og Thelma Hrönn Sig­ur­dórs­dóttir.
Tónlist? 10 ný lög samin af Önnu Beggu, Stefáni Benedikt og Baldri Ragn­ars­syni.
Dansar? Ó, já. Dans­höf­undur er Berglind Rafns­dóttir.
Ég kann­ast við þetta nafn, hvað annað hefur Leik­hóp­ur­inn Lotta sett upp? Til dæmis Ljóta and­ar­ung­ann, Hróa Hött, Stíg­vélaða kött­inn og Mjall­hvíti.

Myndir / Leik­hóp­ur­inn Lotta

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi