Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vantar andskotakornið engan bónda

Til er fólk sem velur þann starfa að bæta í mat­ar­kistu þjóð­ar­innar, þrátt fyrir litlar þakkir og léleg laun. Hvernig dettur ungu fólki að ger­ast bændur? Mannlíf fór á stúf­ana og hitti jákvæða og bjart­sýna ung­bændur sem hafa nýlega tekið þá ákvörðun að gera land­búnað að ævi­starfi sínu. Viðtölin munu birtst í næstu fjórum tölu­blöðum og við byrj­uðum á að hitta unga bændur í Suður-Þing­eyj­ar­sýslu.

Vantar andskotakornið engan bónda
|
Þær systur, Jóna Björg og Þóra Magnea, eru fæddar þar og upp­aldar, líkt og faðir þeirra, en sama fjöl­skyldan hefur búið að Björgum í yfir 100 ár.

Jóna Björg Hlöðvers­dóttir og yngri systir hennar eru fimmta kyn­slóð bænda í fjöl­skyld­unni og tóku form­lega við kúa­búi for­eldra sinna um ára­mótin, þótt þær hafi búið þar og starfað sein­ustu sjö árin. „Við stofn­uðum félagsbú um ára­mótin og erum í róleg­heitum að taka þetta skref þannig að pabbi og mamma fái eitt­hvað fyrir sinn snúð og við förum ekki á haus­inn við að kaupa þau út,“ útskýrir Jóna Björg. Hún er fædd 1985 og titlar sig nú sem ungan bónda, að Björgum í Kinn í Suður-Þing­eyj­ar­sýslu.

Þær systur, Jóna Björg og Þóra Magnea, eru fæddar þar og upp­aldar, líkt og faðir þeirra, en sama fjöl­skyldan hefur búið að Björgum í yfir 100 ár. Þriðja systirin, og sú elsta, er búsett í Reykja­vík. Jóna seg­ist aldrei hafa fundið fyrir þrýst­ingi frá for­eldrum sínum um að taka við búinu.

„Við getum ekki sagt að það hafi verið fyrir ein­hverja pressu frá for­eldrum okkar sem við urðum bændur, eins og oft var í gamla daga að fólk fékk ekki tæki­færi til að fara í burtu. Ég fékk alltaf mik­inn stuðn­ing og hvatn­ingu til að fara og læra það sem mig lang­aði til að læra og var spurð að því hvað ég virki­lega vildi læra og vinna við frekar en að það væri ætl­ast til að ég ynni á búinu,“ segir Jóna Björg.

Úr lög­fræði í land­bún­að­ar­há­skóla
Hún dreif sig í Háskól­ann í Reykja­vík að læra lög­fræði að loknu stúd­ents­prófi. „Það var áhuga­vert þó að ég hafi ekki alveg fundið mig í því svo ég fékk mér bara vinnu í Reykja­vík en alla föstu­daga dreif ég mig svo norður í sveit­ina og var þar í öllum fríum. Svo end­aði með því að ég hugs­aði: Bíddu, hvað er ég að gera? Langar mig til að búa og vinna í Reykja­vík? Hvers vegna ver ég öllum fríum í sveit­inni? Er þetta kannski eitt­hvað sem mig langar að gera? Og þá fann ég að svarið var já. Þetta er alltaf það sem ég sæk­ist í, að kom­ast heim til kúnna og fjöl­skyld­unnar og njóta nátt­úr­unnar og hlaða batt­er­íin.“ Þannig rann loks upp fyrir Jónu að hana lang­aði að vera bóndi svo hún fór í Land­bún­að­ar­há­skól­ann á Hvann­eyri og lauk BS-gráðu í búvís­indum.

„Sem betur fer er aðalinn­koma okkar af mjólk­ur­fram­leiðsl­unni þótt að sauð­fjár­ræktin hafi mikið að segja líka. En þegar við bárum saman töl­urnar síð­asta haust frá árinu áður, þá vorum við að fá hálfri milljón minna.“

Á Hvann­eyri fannst Jónu hún enda komin heim. „Í mennta­skóla og háskóla var maður oft svo­lítið að fela bak­grunn­inn, ekk­ert að aug­lýsa það beint að maður væri úr sveit. En á Hvann­eyri var maður allt í einu kom­inn inn í hóp sem hafði áhuga á því að tala um land­búnað og búskap og ræða öll þessi mál og skyndi­lega skipti það öllu hvar maður ætti heima og úr hvaða sveit og hvað maður ætti margar kýr. Og þetta var eitt­hvað sem mig lang­aði alltaf að tala um,“ segir Jóna hlæj­andi og bætir við að þær systur segi stundum í gríni að þær hafi gerst bændur því þeim líki betur við dýr en mann­fólk. En að öllu gríni slepptu hafa þær sér­stakt dálæti á kúm. „Okkur þykir þær alveg magn­aðar skepnur, svo miklir og ólíkir karakt­erar og allir vinir mínir vita að það þýðir ekk­ert að tala illa um kýr í mín eyru.“

Töluvert högg
Björg eru nokkuð stór jörð og búið með­al­stórt með 40 kúm og um 100 fjár. Hljóðið er ólíkt betra í kúa­bændum en sauð­fjár­bændum og Jóna Björg horfir fram á upp­bygg­ing­ar­tíma í sínum búskap. „Það er mik­ill aðstöðu­munur á þessum greinum og gríð­ar­lega erfið staða í sauð­fjár­rækt­inni því rekstr­ar­grund­völlur sauð­fjár­búa er bara eng­inn. Sem betur fer er aðalinn­koma okkar af mjólk­ur­fram­leiðsl­unni þótt að sauð­fjár­ræktin hafi mikið að segja líka. En þegar við bárum saman töl­urnar síð­asta haust frá því árinu áður, þá vorum við að fá hálfri milljón minna. Og sáum samt af okkar tölum að við hefðum í raun átt að fá um hálfri milljón meira því að lömbin voru stærri. Þetta var tölu­vert högg fyrir okkur en hvernig held­urðu að þetta hafi verið fyrir þá bændur þar sem þetta er öll þeirra inn­koma? Á meðan er mikil upp­bygg­ing í mjólk­ur­fram­leiðslu, á tíma­bili var bara vöntun á mjólk og því mik­ill hvati til að auka fram­leiðsl­una. Spurning hversu lengi það stendur, hvenær verður toppur í neysl­unni eða ferða­manna­fjölda, hvenær við þurfum að draga okkar fram­leiðslu saman en sem stendur er mik­ill hugur í kúa­bændum því þeir hafa getað bætt sína aðstöðu og aukið sína fram­leiðslu tals­vert.“

Krefj­andi að búa með for­eldrum sínum
Eins og fyrr segir hafa Jóna og systir hennar og mágur tekið að mestu við búinu en for­eldrar systr­anna búa þar enn að sjálf­sögðu og pabbi þeirra tekur enn þátt í bústör­f­unum. Mamma þeirra mjólk­aði kýr í 30 ár en hefur nú alveg dregið sig út úr bústör­f­unum og vinnur úti í frá. „Við búum hérna öll í stóru par­húsi, hvert í sínu horni, en borðum helstu mál­tíðir saman og ræðum hvað við ætlum að gera í búskapnum. Morg­un­verð­ur­inn er alveg heilög stund hér,“ segir Jóna en við­ur­kennir að eins og hjá öðrum geti þessi nána sam­búð tekið á.

„Þetta er ekki alltaf dans á rósum og það koma alveg upp árekstrar og eru oft mis­mun­andi mein­ingar milli kyn­slóða. Ég sakna þess stundum að búa út af fyrir mig. Það þarf að ger­ast á næstu árum því það er alveg krefj­andi að búa með for­eldrum sínum þegar þú ert komin á fer­tugs­aldur. Fyrir þeim er ég enn litla stelpan þeirra,“ segir Jóna og hlær. „En ann­ars erum við mjög sam­heldin fjöl­skylda en þegar við tölum um fjöl­skyldu nær það líka til systk­ina pabba sem koma við hvert tæki­færi svo þetta er stór hópur og gríð­ar­lega sam­held­inn. Allir eyða sum­ar­fr­í­unum hér, jóla­boðin eru fjöl­menn og ég þekki bara ekk­ert annað.“

„Þetta er ekki alltaf dans á rósum og það koma alveg upp árekstrar og eru oft mis­mun­andi mein­ingar milli kyn­slóða. Ég sakna þess stundum að búa út af fyrir mig.“

Hún segir þó nauð­syn­legt að kom­ast reglu­lega í burtu og það hjálpi að starfa svo mörg við rekst­ur­inn. „Ef þú ert heima ertu alltaf að vinna, það eru engir reglu­legir frí­dagar, en það er auð­veld­ara fyrir okkur að kom­ast að heiman fyrst við erum svona mörg. Ég myndi ekki leggja í þetta starf ein og kom­ast þá aldrei frá. Ef ég er alltaf hér heima með fjöl­skyld­unni fæ ég næstum inni­lok­un­ar­kennd. Ég verð að kom­ast að heiman reglu­lega, til að hitta annað fólk. Ég tek mik­inn þátt í félags­störfum þannig að ég fer mikið á fundi og mikið af starf­inu hjá Ungum bændum fer fram í Reykja­vík. Og það er gott að fara að heiman öðru hvoru til að finna hvað það er gott að koma heim.“

Þarf að þola spurn­ingar um maka­leit
Sem ung kona þarf Jóna einnig að fara út á lífið öðru hverju eða að minnsta kosti hitta vini og vin­konur. „Flestir vina minna búa hér á Norð­ur­landi á Húsvík eða Akureyri og þar í kring svo ég mæli mér oft mót við þá. Svo kíki ég ein­staka sinnum á djam­mið á Akureyri en ég finn að ég er farin að eld­ast, þetta er ekki jafn­auð­velt og í „gamla daga“ þannig að það er aðeins farið að róast hvort eð er,“ segir hún og virð­ist einskis sakna frá stór­borg­ar­líf­inu.

Og eins og svo margir ein­hleyp­ingar þarf Jóna að þola reglu­lega spurn­ingar um hvernig maka­leitin gangi. „Mér finnst þetta frekar gömul og þreytt lumma að fólk skuli alltaf vera að velta þessu fyrir sér og spyrja hvort mig vanti ekki bónda? Mig vantar ekki ein­hvern til að hjálpa mér í búskapnum, ef ég eign­ast maka yrði það frekar vegna félags­skap­ar­ins svo nei, mig vantar and­skota­kornið ekki bónda!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi