Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hættum að ljúga að börnunum okkar

Hættum að ljúga að börnunum okkar
Ólafur Arnalds

Ólafur Arnalds semur tón­list­ina við kvik­mynd­ina Lof mér að falla, en hún fjallar um unga stúlku sem leið­ist út í fíkni­efna­neyslu. Hann segir ugg­væn­legt að fylgj­ast með auk­inni útbreiðslu harðra efna á Íslandi.

Lof mér að falla, nýrrar kvik­myndar leik­stjór­ans Baldvins Z, er beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu en hún verður frum­sýnd 7. sept­em­ber á þessu ári. Myndin lýsir hroll­vekj­and og nap­ur­legum veru­leika íslenskra ung­menna sem leið­ast út fíkni­efna­neyslu og er byggð á raun­veru­legum sögum stúlkna sem hafa verið í neyslu. Tón­list­ar­mað­ur­inn Ólafur Arnalds er í miðjum klíðum við að semja tón­list mynd­ar­innar sem hann segir að muni end­ur­spegla drunga­legt við­fangs­efnið.

„Ég er að svo­lítið að vinna með sak­leysi ungu per­són­anna í meló­díum, sem eru krútt­legar á köflum,“ lýsir hann, „og svo nota ég hljóð­heim til að brjóta þetta sak­leysi smám saman niður og gera það ljót­ara.“

Umfjöll­un­ar­efnið er klár­lega inn­legg inn í umræð­una sem í þjóð­fé­lag­inu um aukna neyslu ávana­bind­andi efna, sér í lagi meðal ung­menna. Spurður hvað honum finn­ist um þá þróun sem er að eiga sér stað í þeim efnum dregur Ólafur ekki dul á það að honum líst illa á blik­una. „Það er ömur­legt að sjá þessi hörðu efni verða að ein­hvers konar tísku­efnum,“ segir hann hrein­skil­inn. „Hlut­irnir geta nefni­lega verið ansi fljótir að breyt­ast til hins verra fyrir fólk sem er að fikta með þau.“

Hvað finnst þér þá um umræð­una sem hefur verið um þessi mál und­an­farið?

„Mér finnst að við ættum að hætta að ljúga að börn­unum okkar með drauga­sögum og ein­fald­lega sýna og segja þeim sann­leik­ann um öll efni – líka áfengi,“ svarar hann ákveð­inn. „Það gerir engum gagn að setja ein­hvers­konar stimpil á öll fíkni­efni sem segir: „Ef þú prófar hass einu sinni þá endarðu í ræs­inu í næstu viku“. For­varnir þurfa að byggja á sann­leika, ekki ýkjum. Þannig byggjum við upp traust milli okkar og þeirra sem þurfa á for­vörn­unum að halda. Bæði barna og for­eldra.“

Lof mér að falla er ekki fyrsta sam­starfs­verk­efni þeirra Ólafs og leik­stjór­ans Balds­vins Z, þeir félagar hafa unnið saman að ýmsum verk­efnum í gegnum árin þar á meðal tón­list­ar­mynd­inni Island Songs sem Ólafur fram­leiddi enn fremur og kvik­mynd­inni Von­ar­stræti sem bæði hlaut ein­róma lof gagn­rýnenda og vann til fjölda verð­launa á Eddu­verð­launa­há­tíð­inni árið 2015. Ólafur segir góða vin­áttu lyk­il­inn að þessu gift­ur­sam­lega sam­starfi þeirra Baldvins. Auk þess skipti gríð­ar­legu máli það full­komna list­ræna frelsi sem hann hefur fengið við tón­smíð­arnar, en hann leggur mikla áherslu á það bæði þegar í sam­starfi við inn­lenda og erlenda aðila.

Talandi um það, þú hefur einmitt samið tals­vert af tón­list fyrir erlenda aðila. Hver er mun­ur­inn á því og að starfa með inn­lendum aðilum?

„Ja, ætli helsti mun­ur­inn sé ekki sá að erlendu verk­efnin, sjón­varps­þætt­irnir og bíó­mynd­irnar, sem ég hef verið að semja tón­list við eru yfir­leitt miklu stærri en gengur og ger­ist á Íslandi. Það gerir það að verkum að oft hafa fleiri leik­stjórar og fram­leið­endur eitt­hvað um tón­list­ina að segja en á sama tíma gefur það manni meira svig­rúm til að reyna hluti sem ekki væri kannski hægt að prófa í minni og ódýr­ari verk­efnum,“ segir hann og bætir við að hann hafi eitt prinsipp að leið­ar­ljósi.

„Ég tek ekki að mér verk­efni yfir­höfuð þar sem ég er ein­fald­lega „work for hire“ eftir höfði ein­hvers ann­ars. Sama hvort það er íslenskt eða erlent. Hingað til hef ég verið hepp­inn með það.“

Lof mér að falla kemur út í haust. Hægt er að heyra brot úr tón­list­inni í nýlegu sýn­is­horni úr mynd­inni.

Mynd / Heiða Helga­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi