Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég er með hreina samvisku“

„Upp­lifunin eins og fólk væri á leið­inni heim til mín með heykvísl­arnar.“

„Ég er með hreina samvisku“
|
Arnar Pét­urs­son stefnir á Ólymp­íu­leik­ana í Tókýó 2020.

Arnar Pét­urs­son er einn af bestu lang­h­laup­urum lands­ins og stefnir að því að ná ólymp­íu­lág­marki í mara­þoni fyrir Ólymp­íu­leik­ana í Tókýó 2020. Hann á að baki ótal titla, vann níu Íslands­meist­aratitla á síð­asta ári og á besta tíma Íslend­ings í mara­þoni sem hlaupið hefur hér­lendis. Í við­tali við Mannlíf gerir hann upp ásak­an­irnar um svindl í bæði í Reykja­vík­ur­mara­þoni og Víða­vangs­hlaupi ÍR.

Til að ná ólymp­íu­lág­mark­inu í mara­þoni þarf Arnar að hlaupa undir tveimur klukku­stundum og nítján mín­útum. Til við­mið­unar má nefna að Íslands­met Kára Steins Karls­sonar er 2.17.12 sem hann setti í Berlín árið 2011 og heims­metið, 2.02.57, á Dennis Kimetto frá Kenía, sett í Berlín 2014. Síðustu helg­ina í apríl hljóp Arnar sitt besta hlaup til þessa, 2.24.13, sem er þriðji besti tími Íslend­ings frá upp­hafi, og bætti sig um fjórar mín­útur. „Mark­miðið var að setja tíma sem sýnir bæði mér og öðrum að ég get náð ólymp­íu­lág­mark­inu. Ég ætl­aði að vera á bil­inu 2.19-2.24 og það náð­ist. Hlaupið var jafnt og ég í topp­standi og get því ekki annað en verið ánægður,“ segir Arnar sem stefnir að því að að ná lág­mark­inu á næsta eða þarnæsta ári en hann getur í fyrsta lagi náð því í jan­úar 2019. „Martha Ern­stdóttir sem aðstoðar mig, er búin að kenna mér að vera alltaf ánægður með bæt­ingu, annað væri dóna­skapur, ekki síst gagn­vart fólki sem myndi gefa allt til að geta bætt sig einu sinni enn. Einn dag­inn mun nefni­lega koma að því að maður hættir að gera betur og með því að vera óánægður með bæt­ingu er maður óbeint að móðga þá sem ekki geta bætt sína bestu tíma lengur. Ég hef tamið mér þetta, er ánægður með hlaupið í Hamborg og stefni hærra.“

Refsing ann­arra íþrótta
Arnar er fæddur árið 1991 og byrj­aði íþrótta­fer­il­inn í fim­leikum hjá Gerplu. Þegar hann var fimm ára bætt­ist fót­bolt­inn við og síðar körfu­bolt­inn en þá hætti hann í fim­leik­unum. Þegar hann var fimmtán ára ákvað hann svo að fók­usera alfarið á körf­una og átti mik­illi vel­gengni að fagna þar. „Ég hafði eins mikla for­dóma fyrir hlaupum og hægt er að finna. Hlaup voru refs­ing ann­arra íþrótta, þegar ég var að æfa fót­bolta og körfu þá var okkur refsað með hlaupum ef okkur illa gekk. Ég var því óbeint alinn upp við að hafa óbeit á hlaupum. Ég tók samt þátt í mörgum hlaupa­keppnum á þessum árum, ekki síst þegar mamma var að draga mig í hin og þessi götu­hlaup en ég á henni mikið að þakka að ég skuli vera í hlaupum núna. Ég vann oft í mínum ald­urs­flokki og þess háttar og það var mjög gaman en ég gat ekki hugsað mér að æfa þetta. Svo þegar ég var 17 ára þá tók pabbi þátt í heilu mara­þoni í Reykja­vík­ur­mara­þoni og ég hugs­aði með mér að fyrst hann gæti þetta þá ætti ég að drífa þetta líka. Ég skráði mig í heilt mara­þon ári síðar þegar ég hafði aldur til, þremur vikum fyrir hlaupið. Það kom mér veru­lega á óvart að heim­ilið fór á hvolf við þessa ákvörðun. Það var eins og ég hefði sagt þeim að ég ætl­aði að stökkva í fall­hlíf­ar­stökki án fall­hlífar. Þau sögðu: „Arnar þú verður að drekka á öllum drykkj­ar­stöðvum, þú verður að stoppa og borða ban­an­ann þar sem hann er í boði. Ég skildi ekki þessar áhyggjur, ég ætl­aði bara að fara og haka við þetta á bökketlist­anum. Í raun­inni var eina mark­miðið að klára hlaupið og svo væri fyndið að ná að vera á for­síðu Morg­un­blaðs­ins á mynd af upp­hafi hlaups­ins. Eini und­ir­bún­ing­ur­inn var að gera góðan laga­lista og ég kom mér svo fyrir fram­ar­lega í star­t­inu. Ég bombaði síðan af stað og náði að vera með þeim fyrstu í smá­tíma, hélt að svo myndi strollan bara koma fram úr mér en það gerð­ist ekki. Ég vissi hins vegar ekk­ert hvað ég var að gera og sá hlaupara fyrir framan mig sem virk­aði mjög pró, með gelið utan á sér og vatns­brúsa, þannig að ég ákvað að elta hann. Þetta var þá Jóhann Gylfason sem er mik­ill hlaupa­garpur. Ég gerði hins vegar eins og for­eldrar mínir sögðu og stopp­aði á öllum drykkj­ar­stöðvum og gekk meðan ég borð­aði ban­an­ann. Þá missti ég Jóhann alltaf langt frá mér en svo tætti ég af stað og náði honum aftur. Seinna frétti ég að hann hafi alltaf orðið jafn­hissa þegar ég kom alltaf aftur. Ég kláraði hlaupið og leið bara vel þegar ég kom í mark á tím­anum 2.55. Mér til mik­illar undr­unar kom í ljós að ég hafði komið annar í mark af Íslend­ing­unum og slegið 30 ára gam­alt Íslands­met í mara­þoni 18-20 ára og 20-22 ára.“

Arnar byrj­aði að æfa hlaup þegar hann var ekki val­inn U-20 lands­lið í körfu­bolta en hann hafði fram að þeim tíma haft for­dóma fyrir hlaupum.

Örlögin taka í taumana
Þarna sá Arnar að hlaupin lágu vel fyrir honum og hann var hvattur til að fara að æfa hlaup. „Að sama skapi var ég í yngri lið­unum í lands­lið­inu í körfu­bolta, varð tvisvar Norð­ur­landa­meist­ari og var fyr­ir­lið­inn í mínu liði í meist­ara­flokki. Mér fannst að hlaupa­æf­ingar gætu ekki verið skemmti­legar – átti ég að hlaupa á æfingu, hlaupa á æfing­unni sjálfri og hlaupa svo heim aftur? Og hvað var svo á dag­skrá dag­inn eftir, já, meiri hlaup,“ segir Arnar hlæj­andi.
Tímamót urðu hins vegar í lífi hans við tví­tugs­ald­ur­inn þegar verið var að velja í U-20 lands­liðið í körfu­bolta. Arnar end­aði sem þrett­ándi maður en tólf fóru á mótið. Valið stóð á milli hans og Martins Her­manns­sonar. „Martin er í dag einn af okkar bestu körfu­bolta­mönnum og einn af aðal­mönn­unum í lands­lið­inu. Ég er virki­lega ánægður fyrir hönd okkar beggja að þetta fór svona. Það var eins og örlögin hefðu gripið inn í. Ég ákvað, fyrst ég komst ekki með, að prófa að æfa af alvöru fyrir Reykja­vík­ur­mara­þon í stað­inn. Ég bað Birgi Sæv­ars­son, frænda minn og hlaupara, að gera fyrir mig æfingaplan. Ég hafði aldrei séð æfingaplan fyrr og mis­skildi það þannig að ég æfði tvö­falt eða þrefalt meira en ég átti að gera fyrstu þrjár vik­urnar. Þá gafst ég næstum upp, því þetta var svo hrika­lega erfitt. Enda hváði Biggi þegar ég sagði honum það. Það var mik­ill léttir þegar hið sanna kom í ljós og ég átt­aði mig á að ég þurfti ekki að hlaupa á morgn­ana, í hádeg­inu og eftir vinnu alla daga,“ segir hann og hlær. Sumarið 2011 byrj­aði Arnar að æfa hlaup, hljóp Reykja­vík­ur­mara­þon og sigr­aði á tím­anum 2.43. Ári seinna hætti hann í körf­unni og sneri sér alfarið að hlaup­unum.

„Þarna fékk ég for­smekk­inn af því hvernig er að vera í brennid­epl­inum í umræð­unni og við­ur­kenni að mér leið ekki vel.“

Sakaður um svindl
Hver skraut­fjöð­urin á fætur annarri hefur bæst í hatt Arnars síðan hann byrj­aði að æfa hlaup og vinn­ings­hlaupin skipta tugum ef ekki hund­ruðum. En hann hefur líka upp­lifað mót­læti. Tvisvar sinnum hefur hann verið ásak­aður um að svindla í keppn­is­hlaupi. Þó að málin hafi á sínum tíma tekið and­lega á Arnar þá mætti hann þeim með æðru­leysi.
„Fyrsta atvikið kom upp þegar ég hljóp fyrsta mara­þonið 18 ára en þá tikk­aði ekki ein tímamottan inn og milli­tím­inn skráð­ist ekki. Þá voru ein­hverjir sem efuð­ust um að ég hefði hlaupið allt hlaupið því tím­inn var svo góður en áður­nefndur Jóhann Gylfason stað­festi að ég hljóp fyrir aftan hann allan tím­ann, ég hefði kannski átt að sjá þarna í hvað stefndi,“ segir Arnar og brosir út í annað þegar hann rifjar þessi atvik upp. Fimm árum seinna kom svo annað málið upp, einnig í Reykja­vík­ur­mara­þoni þar sem nið­ur­staða hlaups­ins var kærð þar sem faðir hans hafði hjólað með honum hluta af leið­inni. „Í öllum svona hlaupum er alltaf mann­eskja á hjóli eða mót­or­hjóli á undan fyrsta manni. Í stórum hlaupum fær meira að segja þjálf­ar­inn oft að vera á hjóli með. Ég hafði frétt að von væri á sterkum erlendum hlaup­urum í hlaupið og vissi að ég myndi því lík­lega hlaupa einn með ekk­ert hjól á undan mér. Ég bað því pabba um að vera á hjóli til að halda mér félags­skap, það er erfitt að vera aleinn í svona löngu hlaupi. Ef fleiri kepp­endur hefðu verið á sama róli og ég þá hefði ekki verið neinn til­gangur með þessu. Pabbi sinnti sama hlut­verki fyrir mig og hjólið fyrir fyrsta mann. Í raun­inni hefði verið eðli­legt að hjólað hefði verið fyrir framan mig líka þar sem ég var fyrsti Íslend­ing­ur­inn. Það höfðu hins vegar verið settar reglur um hlaupið að það mættu ekki vera hjól­reiða­fólk á braut­inni nema á vegum hlaups­ins, meðal ann­ars til að það væri ekki fyrir. En ég var bara einn og pabbi var ekki fyrir einum eða neinum. Svo sprakk þetta bara upp þegar aðil­inn sem var tæpum tíu mín­útum á eftir mér í hlaup­inu kærði nið­ur­stöð­una og við tók mikil og nei­kvæð umræða í fjöl­miðlum og sam­fé­lag­inu í minn garð. Þarna fékk ég for­smekk­inn af því hvernig er að vera í brennid­epl­inum í umræð­unni og við­ur­kenni að mér leið ekki vel. Kærður, það var eins og ég væri fyrir dóm­stólum. Yfir­leitt þegar svona kemur upp í frjáls­í­þrótta­heim­inum þá er þetta ekki teiknað upp eins og við­kom­andi sé kærður heldur er nið­ur­staðan kærð. Ég var á fyr­ir­lestri í skól­anum þegar ég sá á tölvu­skjá hjá sam­nem­anda fyrir framan mig fyr­ir­sögn á frétt: „Svindl í Reykja­vík­ur­mara­þoni“. Ekki kærður, meint svindl eða spurn­ing­ar­merki. Úrskurður ÍSÍ í þessu máli varð hins vegar að ekk­ert þótti athuga­vert við þetta og við unnum málið.“

Arnari finnst miður að mjög lítil áhersla sé lögð á lang­hlaup í frjáls­í­þróttum krakka og þau hafi því litla mögu­leika á að ná langt á því sviði fyrr en þau verða full­orðin.

„Ég varð skúrk­ur­inn“
Þriðja atvikið kom svo upp í Víða­vangs­hlaupi ÍR vorið 2015 þegar í kjöl­far hlaups­ins var birt mynd­band af Arnari og keppi­nauti hans koma í mark. Þar sést greini­lega að Arnar fer öfugu megin við staur þegar þeir félagar taka níu­tíu gráðu beygju rétt áður en þeir koma í mark. „Þetta mál var í raun­inni enn skraut­legra þar sem ég var þarna kom­inn með ein­hverja for­sögu. Á mynd­band­inu leit þetta eins illa út og hægt var, ekki einu sinni ég sjálfur hélt með gæj­anum sem fór öfugu megin við staur­inn og sigr­aði í kjöl­farið hlaupið. Ég átt­aði mig hins vegar strax á þessu þegar ég kom í mark og benti móts­höld­urum á að þetta þyrfi að laga svo aðrir myndu ekki lenda í þessu og á mynd­band­inu sést braut­ar­vörð­ur­inn sem var á röngum stað færa sig til að laga þessi mis­tök. Í lokin á þessu hlaupi vorum við örugg­lega á 22 km hraða – próf­aðu að fara á bretti, stilla á 22, hlaupa af stað og reyna svo að taka ein­hverjar skyn­sam­legar ákvarð­anir. Ég var ekk­ert að hugsa þarna, sá þennan staur ekki fyrr en hann var beint fyrir framan mig og ég sveigði frá. Braut­ar­vörð­ur­inn hefði átt að vera þarna eða borði, þar sem þetta var níu­tíu gráðu beygja, það átti ekki að vera mögu­leiki að fara út fyrir braut­ina enda við­ur­kenndi ÍR eftir hlaupið að mis­tökin voru þeirra. Það hefði verið eðli­leg­ast að ég hefði verið dæmdur úr leik og ég hefði þurft að sækja mál mitt vegna mis­taka í braut­ar­vörslu. Ég hefði að öllum lík­indum unnið það mál því ég gerði ekk­ert rangt, þetta var klúður í braut­ar­vörslu og ég hefði ekki átt að líða fyrir það. En í stað­inn kemur þetta mynd­band á Netið og allt springur og ég er vondi gæinn. Margir af þekkt­ustu mönnum þjóð­ar­innar tjáðu sig um málið og þetta var mjög súr­r­eal­ískt. Ég var bara svindl­ari og átti að sjá sóma minn í að skila titl­inum. Ég skrif­aði hins vegar pistil á Netið og fór í við­tal í Ísland í dag þar sem ég útskýrði mál mitt. Þar með var mál­inu lokið af minni hálfu þar sem ég var með hreina sam­visku og ef fólk vill enn trúa öðru þá verður svo að vera. Þar sem eng­inn kærði mig þá var ég ekki dæmdur úr leik og því stóð sig­ur­inn. Ég varð því skúrk­ur­inn í stað­inn fyrir að vera sá sem var að sækja rétt sinn. Málið end­aði svo þannig að sex mán­uðum seinna fór málið fyrir stjórn Frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins, ég var sviptur til­t­inum og ég var ósáttur við það enda tel ég að mis­tökin hafi legið hjá móts­höld­urum.
Þetta er hins vegar ein­hver besta og verð­mætasta upp­lifun sem ég hef upp­lifað því ég lærði að láta ekki álit ann­arra hafa áhrif á mína líðan. Í öllum þessum málum er ég með hreina sam­visku. Ég vissi að ég hafði ekki reynt að ná for­skoti af yfir­lögðu ráði og verið „gómaður“. Ég hugs­aði að nú væri alvöru­mót­læti og spurn­ingin bara hvernig ég ætl­aði að vinna úr því. Ætlaði ég að brotna niður eða halda haus? Ég ákvað strax að þetta myndi ekki skil­greina mig, ég skyldi halda ótrauður áfram, halda áfram að taka þátt í hlaupum og vinna hlaup, helst öll. Fólk skyldi sjá að ég þyrfti ekki að „svindla“ til að ná árangri. Það var áhuga­verð reynsla að vera svona milli tann­anna á fólki – upp­lifunin var sú að fólk væri við það að koma heim til mín með heykvísl­arnar og það vegna götu­hlaups. Verst var að horfa upp á áhrifin sem þetta hafði á þau sem stóðu mér næst, ekki síst mömmu. Henni þótti erfitt að horfa upp á þessar ásak­anir gagn­vart syni sínum.
Þessi lífs­reynsla styrkti mig og ég hef reynt að gera bara grín að þessu. Fólkið sem var næst mér var mjög skiln­ings­ríkt enda er ég mjög hepp­inn með fólkið í kringum mig. Innan hlaupa­heims­ins höfðu sumir meira að segja á orði að þetta væri bara flott enda lang­mesta umfjöllun sem götu­hlaup hefði nokkru sinni fengið. RÚV fylgd­ist meira að segja með Íslands­mót­inu í víða­vangs­hlaupi helg­ina eftir. Þar vann ég og það var bara gert grín að þessu í við­tali á eftir, ég var spurður hvort braut­ar­varslan hefði ekki verið í lagi þarna og þess háttar. Það er mik­il­vægt að sjá bros­legu hlið­arnar á þessu.“

„Ég hugs­aði að nú væri alvöru­mót­læti og spurn­ingin bara hvernig ég ætl­aði að vinna úr því. Ætlaði ég að brotna niður eða halda haus?“

Lang­hlaup krakka litin horn­auga
Arnar leggur mik­inn metnað í allt sem hann gerir og menntun hans er þar ekki und­an­skilin. Hann er með grunn­nám í hag­fræði með 24 auka­ein­ingum og er núna að klára þrjár meistara­gráður á þremur árum; í reikn­ings­skilum og end­ur­skoðun, fjár­málum fyr­ir­tækja og kennslu­rétt­indum fyrir fram­halds­skóla­stig. „Ég er orð­inn nokkuð sáttur með mína menntum og held að ég muni ekki setj­ast aftur á skóla­bekk í bráð. Mig langar að taka lög­gild­ing­una, verða lög­giltur end­ur­skoð­andi, þó að planið sé ekk­ert endi­lega að starfa við það nákvæm­lega. Ég er með fínan grunn til að vinna við hvað sem er á fjár­mála­svið­inu,“ segir Arnar.
Hann hugsar vel um matar­æðið og heldur æfinga­dag­bók um líðan sína. Hann passar að nær­ingin sé rétt og að drekka nóg vatn. En matar­æðið var ekki alltaf svona. „Þegar ég var að reyna að þyngja mig á mennta­skóla­ár­unum hugs­aði ég mun minna út í hvað ég lét ofan í mig þótt ég hafi alltaf tekið lýsi. Nánast dag­lega borð­aði ég Chicago Town Pizza, Fries to go-örbylgju­franskar, Prins polo og kók. Það var mjög algengt að vera með bruna­sár í munn­inum eftir ost­inn þar sem ég gat aldrei beðið með að rífa pizzuna í mig um leið og hún kom úr ofn­inum,“ segir hann hlæj­andi. „Þegar ég kom inn í hlaupin þá breytt­ist matar­æðið ósjálfrátt með. Ef matar­æðið er ekki í lagi þá starfar lík­am­inn ekki jafn vel á æfingum og ég hætti fljót­lega að nenna því. Í kjöl­farið gengu æfing­arnar betur, svefn­inn varð betri og svo fram­vegis því þetta hangir allt saman. Áfengi drekk ég í hófi. Tveimur mán­uðum fyrir stóra keppni þá er ekki farið á djam­mið en ég fæ mér alveg einn og einn bjór með mat eða þegar maður kíkir í pott­inn eftir erf­iðar æfingar.“
Arnari finnst miður að mjög lítil áhersla sé lögð á lang­hlaup í frjáls­í­þróttum krakka og þau hafi því litla mögu­leika á að ná langt á því sviði fyrr en þau verða full­orðin. „Litið er horn­auga að krakkar æfi lang­hlaup og hlaupi tíu kíló­metra á dag en ef þau eru að hlaupa á eftir bolta þá er það allt í lagi. Í frjálsum íþróttum eru fjöl­margar greinar sem eru allar kynntar fyrir krökk­unum, nema lang­hlaup, þrátt fyrir að það sé í raun langstærsta greinin. Þessar greinar tengj­ast flestar sprengi­krafti á einn eða annan hátt þannig að ef þú hefur ekki góðan sprengi­kraft og ert byggður fyrir lang­hlaup þá færðu ekki tæki­færi til að spreyta þig. Með þessu eru til dæmis svo til engar líkur á því að við getum sent ein­hvern 18 ára á Ólymp­íu­leik­ana í 5000 m eða 10.000 m en til þess að geta það þarftu að vera búinn að byggja hlaupa­grunn í að minnsta kosti 6-8 ár. Eins og kepp­endur frá Afríku sem hafa vegna aðstæðna und­ir­búið sig fyrir þessi hlaup því þeir þurftu alltaf að hlaupa fram og til baka í skól­ann. Þeir sem hafa orðið góðir hér hafa orðið það eig­in­lega óvart, eins og ég sem var að æfa tvær bolta­í­þróttir og byggði því grunn­inn fyrir hlaupin þar,“ segir Arnar sem alltaf hefur verið með mikið keppn­is­skap. „Ég var mjög orku­mik­ill krakki og mamma sendi mig oft út að hlaupa hring um hverfið til að ná mér niður. Ef ég vildi ekki fara þá sagð­ist hún ætla að taka tím­ann og þá var ég þot­inn af stað. Keppn­is­skapið hefur hjálpað mér mikið, sér­stak­lega eftir að ég lærði að láta það vinna með mér. Ég man alltaf eftir atviki þegar ég var efni­legur 11 ára piltur í körfu­bolta. Þá kom þjálf­ari hins liðs­ins til mín eftir leik, þar sem ég hafði fengið fimm villur og þess vegna ekki náð að spila allan leik­inn. Hann sagði: „Þú er allt of góður til að láta keppn­is­skapið fara svona með þig.“ Þetta hefur alltaf setið í mér, að ein­hver svona utan­að­kom­andi sæi eitt­hvað í mér og gæfi mér ráð sem hefur fylgt mér alla ævi. Ég hef reynt að temja mér þetta sjálfur sem og að hrósa öðrum.“

„Hlaup eru miklu félags­legri en margir halda, getu­stigið spannar allt bilið og eng­inn er að dæma annan. Í keppn­is­hlaupum koma allir í mark sem sig­ur­veg­arar enda taka allir þátt á sínum for­sendum.“
Arnar hefur í sam­vinnu við Íslands­banka heim­sótt fjöl­marga hlaupa­hópa um land allt í vor til að kynna Reykja­vík­ur­mara­þon og gefa hlaup­urum góð ráð.

Vill sjón­varpa Reykja­vík­ur­mara­þoni Íslands­banka
Íslands­banki hefur fengið Arnar til liðs við sig í ár og hann hefur að und­an­förnu farið inn í hlaupa­hópa víða um land til að kynna Reykja­vík­ur­mara­þon Íslands­banka og gefa hlaupa­fólki góð ráð. „Við viljum meðal ann­ars vekja athygli á þeim fjöl­mörgu hlaupa­hópum sem starf­andi eru um land allt og hvetja áhuga­sama til að ganga til liðs við þá. Þetta hefur verið virki­lega skemmti­legt verk­efni og gengið frá­bær­lega vel enda er gríð­ar­lega jákvæð orka inni í þessum hópum. Hlaup eru miklu félags­legri en margir halda, getu­stigið spannar allt bilið og eng­inn er að dæma annan. Í keppn­is­hlaupum koma allir í mark sem sig­ur­veg­arar enda taka allir þátt á sínum for­sendum.
Einnig er í píp­unum að gera heilu mara­þoni í Reykja­víku­mara­þoni hærra undir höfði, eitt­hvað í lík­ingu við það sem fólk þekkir í stóru hlaup­unum erlendis og það eru margar hug­myndir á lofti hvað það varðar. Einnig myndi ég vilja sjá RÚV líkja eftir því sem þýsku sjón­varps­stöðv­arnar gera og hafa þriggja til fjög­urra tíma útsend­ingu í kringum keppn­ina enda er þarna enda­laust af sögum og sjón­varps­efni. Hægt væri að hafa eina mynda­vél á fyrsta fólki og klippa inn á það annað slagið en mest væru þetta við­töl við þátt­tak­endur sem eru til dæmis að hlaupa til styrktar ein­hverju mál­efni, slökkvi­liðs­fólkið sem hleypur í bún­ing­unum, fólkið á hvatn­inga­stöðv­unum og svo fram­vegis. Þetta hefur allt að bera til að verða mjög skemmti­legt sjón­varps­efni og væri kjörin leið til að hefja menn­ing­ar­næt­ur­dag­skrána,“ segir Arnar.
„Fram undan er svo íslenska hlaupa­sum­arið en það er skemmti­leg­asti tími árs­ins. Planið er að fara í æfinga­búðir um mitt sumar sem verða með svip­uðu sniði og í Suður-Afríku um ára­mótin en þá var ég í tvær vikur að hlaupa 200 km og 205 km á viku. Ég stefni að því að hlaupa í Reykja­vík­ur­mara­þoni Íslands­banka í ágúst og svo hugs­an­lega annað mara­þon erlendis í sept­em­ber eða októ­ber. Þá verður mark­miðið að höggva enn nær ólymp­íu­lág­mark­inu enda er draum­ur­inn að keppa fyrir Íslands hönd á stærsta svið­inu. Þangað til mun ég halda áfram að mæta í götu­hlaupin á Íslandi en þar ber helst að nefna Powerade-sum­ar­móta­röð­ina og Hleðslu­hlaupið. Ef fólk vill fylgj­ast betur með mér og fá góð hlaupa­ráð þá er ég virkur á Instagram undir nafn­inu @arnarpetur. Ég von­ast til að sjá sem flesta í götu­hlaup­unum í sumar og hvet alla til að mæta þegar ég fer aftur í heim­sóknir í hlaupa­hópa um allt land.“

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi