Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eiturhressi Eurovision-leikur Mannlífs og algjörlega tilgangslaus fróðleikur

Eiturhressi Eurovision-leikur Mannlífs og algjörlega tilgangslaus fróðleikur
|||

Stærsti dagur Eurovision-aðdá­enda um heim allan, samt mest­megnis bara í Evrópu, er á næsta leiti. Því sá Mannlíf sig knúið í að búa til eit­ur­hressan og skemmti­legan Eurovision-leik til að gera keppn­ina og öll Eurovision-partíin aðeins skemmti­legri.

Leik­ur­inn er þannig gerður að bæði er hægt að spila hann meðal full­orð­inna í hressum teitum þar sem svo­kallað partígos er við hönd eða í stórum fjöl­skyldu­boðum þar sem krakk­arnir eru útúr­tjún­aðir af snakk- og nammi­áti. Góða skemmtun!

1. Við byrjum þetta rólega. Gefið næsta manni „high five“ í hvert sinn sem minnst er á Salvador Sobral, sig­ur­veg­ara síð­asta árs.

2. Drekkið tvo sopa, hvort sem það er partígos eða strang­heið­ar­legt vatn, í hvert sinn sem þið skiljið ekki texta í lög­unum.

3. Troðið munn­inn á ykkur fullan af snakki alltaf þegar portú­gölsku kynn­arnir reyna að vera fyndnir en mis­tekst hrapal­lega.

4. Klappið í hvert sinn sem sungið er um ást eða heims­frið. Bara ekki klappa of hátt, eða verið í vett­lingum – þetta verður ansi hreint mikið klapp!

5. Klárið úr glas­inu ykkar þegar Gísli Marteinn minn­ist á hve Ari stóð sig frá­bær­lega eða þegar hann ber saman stjórn­mál og Eurovision eða þegar hann gerir grín að klæða­burði kepp­enda.

6. Standið upp og dansið fugla­dans­inn í hvert sinn sem eldur er á svið­inu.

7. Ef þið hafið ekki hug­mynd um hvar eitt­hvað land er stað­sett í Evrópu, eða hvort það er á annað borð í Evrópu, verðið þið að róa ykkur niður og fá ykkur þrjá sopa.

8. Fimm sopar á haus í hvert sinn sem stiga­kynnir reynir fyrir sér á tungu­máli heima­manna, portú­gölsku, með mis­góðum árangri. Bón­us­sopi ef portú­gölsku kynn­arnir skilja ekki bofs í stiga­kynn­inum. #áframeddasif!

9. Tvær, vænar lúkur af nammi í skolt­inn á ykkur ef ein­hverjir tækni­legir örð­ug­leikar verða þegar stigin eru kynnt. Jebb, það fer eng­inn í megrun á Eurovision!

10. Og svo verðið þið að blanda ykkur glæ­nýjan drykk og skála í botn í hvert sinn sem þjóð gefur nágranna­þjóð sinni 12 stig.

Tíminn líður hratt …

Ísland tók fyrst þátt í Eurovision árið 1986 með lagið Gleði­bank­inn. Þá voru aðeins tutt­ugu lög í keppn­inni og Ísland lenti í hinu alræmda sext­ánda sæti með nítján stig. Þá var …

… for­sæt­is­ráð­herra okkar, Katrín Jak­obs­dóttir, aðeins 10 ára.

…. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra okkar, Bjarni Bene­dikts­son, 16 ára.

… félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra okkar, Ásmundur Einar Daðason, aðeins 4 ára gam­all.

… utan­rík­is­ráð­herra okkar, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, á 19 ald­ursári.

… umhverfis- og auð­linda­ráð­herra okkar, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, 9 ára gam­all.

… sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra okkar, Kristján Þór Júl­í­us­son, 29 ára.

… mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra okkar, Lilja Alfreðs­dóttir, 13 ára gömul.

… dóms­mála­ráð­herra okkar, Sigríður Á. Andersen, rétt nýfermd, eða að verða 15 ára.

… sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra okkar, Sigurður Ingi Jóhanns­son, 24 ára.

… heil­brigð­is­ráð­herra okkar, Svandís Svav­ars­dóttir, 22 ára.

… ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra okkar, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ekki fædd.

Endurkomur allra endurkoma

Eins og margir vita reynir Norð­mað­ur­inn Alex­ander Rybak að end­ur­taka leik­inn í ár með lagið That’s How You Write a Song, eftir að hafa sigrað í Moskvu árið 2009 með lagið Fairytale.

Hann er langt frá því að vera fyrsti Eurovision-kepp­and­inn sem snýr aftur, og örugg­lega ekki sá sein­asti. Raunar hafa tæp­lega tvö hund­ruð kepp­endur snúið aftur í keppn­ina með mis­góðum árangri. Flestum vegnar verr í annað sinn, en svo eru aðrir sem ná að vinna huga og hjörtu Eurovision-aðdá­enda aftur og aftur.

Þrenna til Írlands
Eins og írski söngv­ar­inn Johnny Logan. Hann vann Eurovision fyrst árið 1980 með lagið What’s Another Year. Sjö árum seinna tók hann aftur sig­ur­inn heim með Hold Me Now og árið 1992 sigr­aði Linda Martin með lag­inu Why Me, úr smiðju fyrr­nefnds Johnnys.

Númer 1
Hin gríska Helena Paparizou átti líka stór­kost­lega end­ur­komu í Eurovision árið 2005, eftir að hafa lent í þriðja sæti með stúlkna­sveit­inni Antique árið 2001. Árið 2005 nefni­lega kom, sá og sigr­aði Helena með goð­sagna­kennda lagið My Number 1 sem enn er spilað við góðar und­ir­tektir á Eurovision-böllum um heim allan.

Alltaf í topp fimm
Önnur stór­söng­kona, Carola Hägg­kvist frá Svíþjóð, hefur keppt í Eurovision hvorki meira né minna en þrisvar sinnum. Fyrst árið 1983 með lagið Främling sem lenti í þriðja sæti, aðeins sextán stigum frá sigrinum. Svo sneri hún aftur árið 1991 með lagið Fångad av en storm­vind. Þá var jafn­tefli milli Sví­þjóðar og Frakk­lands en Svíar hlutu loks doll­una þegar búið var að telja hvort landið fékk fleiri tíu stig, enda löndin jöfn að fjölda 12 stiga atkvæða. Árið 2006 kom Carola síðan aftur í Eurovision eins og storm­sveipur með lagið Invincible sem lenti í fimmta sæti.

Skautað til sig­urs
Það væri hægt að halda enda­laust áfram í end­ur­kom­unum, en við verðum að minn­ast á rúss­neska hjartaknúsar­ann Dima Bilan sem lenti í öðru sæti árið 2006 með lagið Never Let You Go, eftir eft­ir­minni­lega atriðið þar sem kona reis upp úr píanói. Tveimur árum seinna sneri Dima aftur með fiðlu­leik­ara og list­dans­skaut­ara, negldi lagið Believe og færði Rússum sig­ur­inn.

Hvernig sigrar maður í Eurovision?

Ef við lítum á keppn­irnar frá árinu 1998, þegar síma­kosn­ingu var hrint af stað, þá er sig­ur­strang­leg­ast að keppa í seinni und­an­úr­slit­ar­iðl­inum. Af þeim tutt­ugu lögum sem hafa unnið frá árinu 1998 hafa fjórtán þeirra keppt í seinni riðl­inum, en aðeins sex í þeim fyrri, þar á meðal hinn portú­galski Salvador Sobral sem vann í fyrra. Öll lögin hafa keppt í seinni helm­ingi síns rið­ils, nema tvö – Dana International með lagið Diva, árið 1998, og Sertab Erener með lagið Everyway that I can, árið 2003.

Þrumur = gott, sól­skin = vont
Þá er ýmis­legt í texta lags­ins sem getur verið lík­legt til sig­urs. Það er til dæmis mjög sig­ur­strang­legt að syngja um vont veður, eins og þrumur, eld­ingar og ský. Þá er einnig gott að hafa ein­hvers konar eld í atrið­inu. Það er hins vegar ekki væn­legt til árang­urs að syngja um sól­skin. Það er slæmt að hlaupa eða ganga til ein­hvers en mjög gott að syngja um flug. Þá er afleitt að syngja um að tala með hjart­anu og betra að tala með hug­anum, aug­unum eða öðrum lík­ams­pörtum ef sigur er mark­miðið.

Popplag í D-moll
Lög geta verið í dúr og moll. Lög í dúr eru yfir­leitt glað­leg en í moll eru þau frekar dökk og drunga­leg. Maður myndi halda að lögin í dúr væru þá lík­legri til vin­sælda í Eurovision, en svo er ekki, alla­vega frá alda­mót­unum 2000. Þá hafa örfá lög í dúr sigrað en flest sig­ur­lag­anna verið í moll. Og ef þið ætlið að semja Eurovision-lag, hefur D-moll verið ansi vin­sæl tón­teg­und síð­ustu ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi