Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

10 ráð til að losna við Eurovision-þynnkuna

10 ráð til að losna við Eurovision-þynnkuna
|

Það er alltaf erfitt að vakna dag­inn eftir að Ísland dettur úr Eurovision. Alveg sama hve oft það ger­ist, það bara er ekki hægt að venj­ast því. Von­brigðin eru svo yfir­gengi­lega mikil og fyrsta sem maður gerir er að líta á alla helstu vef­miðla og full­vissa sig um að kynn­ir­inn hafi óvart sagt Írland þegar hann ætl­aði í raun að öskra ÍSLAND!

Nú er eyði­merk­ur­ganga Íslands í Eurovision orðin aðeins of löng, og ættum við því að vera orðin vön því að keppa ekki í úrslit­unum. En auð­vitað bindum við alltaf vonir við að okkar lög kom­ist áfram, sér­stak­lega þegar þau eru flutt jafn óað­finn­an­lega og Ari Ólafsson flutti Our Choice í gær.

Þannig að þegar að von­brigðin, svokölluð Eurovision-þynnka, skellur á erum við á Mannlífi með tíu ráð til að vinna á timb­ur­mönn­unum bug:

1. Aragríma í seinni riðlinum

Byrjaðu strax að hlusta á öll lögin í seinni und­an­úr­slit­ar­iðl­inum, veldu þér upp­á­halds sem á jafn­framt góðan séns á að kom­ast áfram sam­kvæmt veð­bönkum, til dæmis Noregur eða Svíþjóð, og haltu með því eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn. Ef það hjálpar get­urðu alltaf klippt út and­litið á Ara og fært það með skjánum þegar upp­á­haldið þitt er að syngja svo flytj­and­inn virð­ist vera íslenskur.

2. Svona semurðu lag

Sestu niður í góðu tómi og hlust­aðu á sig­ur­lög síð­ustu tutt­ugu ára eða svo. Punktaðu niður hvað þau eiga sam­eig­in­legt og reyndu síðan að semja besta Eurovision-lag allra tíma!

3. Það geta ekki allir verið gordjöss

Hringdu í Pál Óskar og biddu hann um að syngja fyrir þig. Sendu honum svo besta Eurovision-lag allra tíma sem þú varst að semja.

Eurovision-Palli kemur þér í stuðið.

4. Gefðu þér tíma til að syrgja

Farðu í vinn­una og láttu eins og ekk­ert hafi í skorist. Þegar ein­hver byrjar að tala um Eurovision, afsak­aðu þig og farðu inn á kló­sett til að gráta.

5. Ömurleg hugmynd

Farðu niður í Hörpu og finndu allar ástæður fyrir því að það væri ömur­leg hug­mynd ef Ísland myndi vinna Eurovision. En ekki láta gabb­ast og ráða þig í vinnu sem þjón­ustu­full­trúi!

6. Ekki ýta á takkann!

Ekki kveikja á útvarpi, sjón­varpi eða lesa vef­miðla í dag. Það ýfir bara upp sárar minn­ingar. Sárar, sárar minn­ingar.

7. Skamm, Magnús Geir

Skrifaðu mjög harð­ort bréf til Magnúsar Geirs, sjón­varps­stjóra, þar sem þú heimtar taf­ar­laust að fá að sitja í val­nefnd fyrir þessi blessuðu lög sem keppa í Söngvakeppn­inni, og bendir honum jafn­framt á að Ísland hafi aðeins kom­ist einu sinni upp úr und­an­riðl­inum eftir að hann tók við störfum.

8. Þú hefur valið…

Prófaðu að taka text­ann úr Our Choice og syngja hann við ísra­elska lagið TOY með henni Nettu. Það er sjúk­lega fyndið og á bókað eftir að koma þér í betra skap – sér­stak­lega þegar þú ímyndar þér Ara að gagga eins og hæna uppi á sviði.

9. Fánamóment

Vefðu íslenska fán­anum um lík­ama þinn og hugs­aðu um allt það góða í líf­inu.

10. Is It True?

Svo verður þú að horfast í augu við það að Ísland keppir ekki á laug­ar­dag­inn. Og það gæti farið svo að Ísland kom­ist ekki heldur í úrslit á næsta ári, og þarnæsta og þarþarnæsta. Skrifaðu bréf sem þú átt aldrei eftir að senda þar sem þú listar upp allar til­finn­ingar sem bær­ast innra með þér er þú hugsar raun­sætt um hlut­ina. Leyfðu þér að skrifa hvað sem er, og taktu þér allan tím­ann í heim­inum sem þú þarft til að losa um til­finn­ing­arnar. Þú mátt gráta, þú mátt hlæja, þú mátt syrgja. Náðu síðan í kveikjara, settu Is It True? á fón­inn og kveiktu í bréf­inu. Brenndu sorg­ina í burtu og byrj­aðu að plana Eurovision-mat­inn fyrir fimmtu­dag­inn og laug­ar­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi