Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjö manna fjölskylda flúði stressið og flakkaði um Spán

Sjö manna fjölskylda flúði stressið og flakkaði um Spán
||||||

„Við sem for­eldrar berum ábyrgð á menntun barn­anna og það er það sem ég vil gera með því að ferð­ast með þau um heim­inn, og auð­vitað allt Ísland, og kenna þeim í gegnum lífið, ekki í gegnum bækur, tölvur og fyr­ir­lestra, mötun á náms­efni og eyðu­fyll­ingar,“ segir Ágústa Margrét Arn­ar­dóttir.

Ágústa á fimm börn með eig­in­manni sínum, Guðlaugi Birg­is­syni. Fyrr á þessu ári ákváð fjöl­skyldan að rífa sig upp frá heim­ili sínu á Djúpa­vogi og flakka um Spán í fimm vikur. Fjöl­skyldan hefur leyft almenn­ingi að fylgj­ast með ferðum sínum á Facebook-síð­unni Whattodoin og sneri nýverið aftur heim til Íslands. Ágústa segir að aðdrag­and­inn að ferð­inni hafi í raun verið langur. Elsta dóttir þeirra hjóna, Vigdís, fædd­ist árið 2006 og í kjöl­farið eign­uð­ust þau þrjú börn á rétt rúm­lega þremur árum. Á sama tíma stofn­aði Ágústa hönn­unar- og fram­leiðslu­fyr­ir­tæki og Guð­laugur byrj­aði að kaupa sig inn í útgerð þar sem hann starf­aði sem skip­stjóri.

Börnin upp­lifðu alls kyns ævin­týri.

Hraðinn bitnaði á fjölskyldunni

„Ég fékk mikið hrós fyrir dugn­að­inn og elj­una, var þessi týpíska ofur­kona sem hélt ég gæti allt. Ég elska að vinna mikið, elskaði rekst­ur­inn minn og börnin, og allt sem ég var að gera og lang­aði svo ógeðs­lega mikið að gera allt og láta allt ganga, en það var engan veg­inn að ger­ast, þetta var bara allt of mikið. Hraðinn og álagið bitn­aði á fjöl­skyld­unni og and­legri og lík­am­legri heilsu minni auk þess sem upp­runa­leg mark­mið mín og lífs­sýn voru bara í dvala, nán­ast gleymd,“ segir Ágústa en meðal mark­miða hennar í líf­inu var að ferð­ast með börn­unum og eyða meiri tíma með þeim. Hún seg­ist hafa verið með ein­hvers konar fjöl­skyldu­ferð í bígerð lengi en alltaf litið á skóla­göngu barn­anna sem hindrun.

„Svo gerð­ist það að sonur minn var kom­inn á algjörar villi­götur, hafði illa stjórn á sér, brást reiður og illa við ýmsu og fún­ker­aði bara ekki vel. Hann var settur í pró­gramm sem sneri að lær­dómnum og hegðun í skól­anum,“ segir Ágústa. Í fram­hald­inu varði hún tæpum fjórum mán­uðum með syni sínum í skól­anum, í 95% kennslu­stund­anna, frí­mín­útum, tóm­stundum og öðru.

„Ég hlust­aði á ótal fyr­ir­lestra, hljóð­bækur, las rann­sóknir og annað. Líf okkar allra gjör­breytt­ist þarna og sýn mín á mennta­kerfið og allt lífið breytt­ist algjör­lega. Og eitt af því sem ég lærði á þessu er að skóla­ganga barn­anna minna er ekki hindrun í að við sem fjöl­skylda ferð­umst eða förum okkar leiðir í menntun þeirra.“

Fengu aldrei pásu frá hvert öðru

7 manna fjöl­skylda á ferða­lagi.

Það var svo áhugi Ágústu á heima­kennslu og menntun sem varð til þess að þau ákváðu að kasta sér ofan í djúpu laug­ina og ferð­ast, en Ágústa skipu­lagði ferð­ina í meira en ár. Þau sögðu börn­unum frá ferð­inni á aðfanga­dags­kvöld í fyrra og tveimur og hálfum mán­uði síðan fóru þau af stað á vit ævin­týr­anna.

„Við höfum alltaf verið mjög sam­heldin fjöl­skylda og mikið saman en að vera saman í fimm vikur á stað þar sem við þekktum enga og vorum hvorki í skóla, tóm­stundum, vinnu, né hittum vini eða fjöl­skyldu var allt annað en við erum vön. Helstu kost­irnir við svona lífs­stíl eru að við kynn­umst mun nánar og betur en hér heima, því það er engin truflun, ekki hægt að forða sér eða sækja í aðra ef eitt­hvað bjátar á. Auk þess hefur maður ótak­mark­aðan tíma til að sjá „mynstur“ í börn­unum og sjálfum sér – hvað er stressandi, hvað er slak­andi, hvað hefur góð og hvað hefur vond áhrif. Og ókost­irnir eru kannski að það er aldrei „friður“, við fáum aldrei pásu frá hvert öðru, sem hefur líka áhrif. Ef einn var í vondu skapi hafði það áhrif á alla og ef börnin eru pirruð, þreytt, svöng, leið eða eitt­hvað þá láta þau það bitna hvert á öðru,“ segir Ágústa og heldur áfram.

„Þetta var oft ofsa­lega erfitt og snéri þá aðal­lega að dags­formi hvers og eins. Hér heima get ég laumað mér í kaffi til vin­konu, þau leikið við vini eða heim­sótt ömmu og afa, farið í göngutúr ein, kveikt á sjón­varpi eða farið tölvur ef það er þreyta og pirr­ingur í gangi en þarna var ekk­ert svo­leiðis í boði. Við reyndum alltaf að setja dag­ana upp sem streytu­laus­asta og þægi­leg­asta fyrir alla en það sem hentar 1 árs barni, 3 ára, 8, 10 og 11 ára sem og for­eldrum á fer­tugs­aldri er ekk­ert alltaf það sama. Mála­miðl­anir voru stór partur af ferð­inni og að gefa öllum svig­rúmið sem þeir þurftu þótt það væri nán­ast ekk­ert svig­rúm eða tími. Maður metur tím­ann allt öðru­vísi eftir svona ferð.“

Sáu fátækt og fjölbreytileika

Ógleym­an­leg ferð.

Fjöl­skyldan ætl­aði fyrst að leigja íbúð í tvo til þrjá mán­uði en vegna breyt­inga í útgerð­inni hjá Guðlaugi þurfti þau að stytta dvöl­ina niður í fimm vikur. Þá voru þau búin að festa íbúð­ina og þurftu að greiða fyrir hana 450 þús­und krónur. Flugið var hins vegar tals­vert ódýr­ara en þau voru vön fyrir sjö manna fjöl­skyldu.

„Flugið fyrir okkur sjö kost­aði um 120 þús­und krónur með milli­lend­ingu og gist­ingu í Gatwick á leið­inni út og 102 þús­und krónur í beinu flugi heim. Ég var búin að kynna mér stað­setn­ingar og verð á nauð­synjum vel þannig að á svæð­inu sem við vorum var allt meira en helm­ingi ódýr­ara en hér heima. Við leigðum bíl, fórum á söfn, í hella­ferð og í garða sem kost­uðu og þar húrrað­ist kostn­að­ur­inn upp en þessu er alveg hægt að sleppa. Við nýttum okkur mikla ókeypis afþr­ey­ingu eins og almenn­ings­garða og strönd­ina og það er alveg enda­laust hægt gera eitt­hvað án þess að taka upp budd­una,“ segir Ágústa aðspurð um hvort þetta ævin­týri hafi ekki kostað skild­ing­inn. Hún seg­ist aðhyll­ast mínimal­ískan lífs­stíl og er ánægð með að leyfa börn­unum sínum að upp­lifa ýmis­legt sem kennir þeim virði pen­inga.

„Börnunum, sér­stak­lega þess­ari ell­efu ára, finnst við oft lifa eins og fátæk­lingar en hún hefur þó lært það af þessu að það þarf að for­gangs­raða og hafa fyrir hlut­unum. Í ferð­inni upp­lifðu þau svo að gista á geggj­uðu 4 stjörnu hót­el­inu niður í 0 stjörnu rottu­holu, þau sáu fátækt, betl­ara og miklu meiri fjöl­breyti­leika fólks en hér heima. Ég vil að þau kynn­ist þessu frekar en bið­röðum í Disney-garð­inum og pen­ingaplokki í alls konar over prized-görðum og skemmt­unum. Ég hef samt ekk­ert á móti því og allt í lagi að upp­lifa það líka, en við bjuggum oft til bestu stund­irnar með nesti í almenn­ings­görðum og það var æði.“

Heimurinn opnaðist

En hvað stóð upp úr á þessu fimm vikna ferða­lagi?

Lífið er ljúft á strönd­inni.

„Það sem stendur upp úr er áhrifin á börnin, hvernig þau upp­lifðu hlut­ina, hvað þeim fannst merki­legt, hvernig þau þrosk­uð­ust og lærðu. Það var mik­ill munur á þeim fyrstu dag­ana og þá síð­ustu, ver­öldin stækk­aði og heim­ur­inn opn­að­ist ein­hvern veg­inn fyrir þeim. Í byrjun fannst mér þau bara frekar áhuga­laus og hug­mynda­snauð, vildu til dæmis alltaf fara í sama garð­inn og á sama veit­inga­stað­inn frekar en að kanna svæðið og prófa eitt­hvað nýtt. Þetta pirraði mig en svo fatt­aði ég að þau höfðu engin við­mið, þau vissu ekk­ert hvað var handan við hornið, þau eru alin upp í pínu­litlum bæ þar sem allt er alltaf eins, rútínan, við­burðir, fólk, staðir og dýr. Þannig að við fórum meira og með­vitað að kanna ný svæði, prófa nýja hluti, tala meira um allt sem mögu­legt er í heim­inum og leyfa líf­inu að koma okkur á óvart án þess að hafa plön eða vera aft­ur­haldsöm. Þetta skil­aði sér í því að undir lokin var þessi 10 ára far­inn að skipu­leggja ferð til Týndu borg­ar­innar, 11 ára til Hawaii og við hin roadtrip um Banda­ríkin. Þetta opn­aði heim­inn fyrir þeim, og okkur,“ segir Ágústa og bætir við að ferðin hafi haft góð áhrif á fjöl­skyld­una í heild.

„Við erum klár­lega sam­heldn­ari, það er meira umburð­ar­lyndi eða alla vega þekk­ing og skiln­ingur á hinum.“
Sápu­kúlu­stuð.

Allir tilbúnir að koma heim

En hvernig var svo að koma aftur í raun­veru­leik­ann á Djúpa­vogi?

„Við vorum síð­ustu dag­ana í Barcelona, borgin var troðin af fólki, mikil umferð, hraði og allt miklu dýr­ara en á hinum stöð­unum og miklu heit­ara og óþægi­legra veður. Það voru því allir frekar til­búnir að koma heim, spenntir og ánægðir. Þannig að heim­ferðin og allt eftir það hefur gengið vel. Við fundum svo rosa­lega vel hvað úti­vera, birta og gróður er ólýs­an­lega mikli­vægt þannig að nú er mark­mið að halda þessum „úti“ lífs­stíl áfram, en hingað til hef ég verið kulda­skjóða og nenni alls ekki út í vondu veðri eða myrkri. En nú þurfum við bara að læra að lifa með því, því það er lík­legra að ég geti breytt um hug­ar­far en veð­ur­far.“

Fjöl­skyldan heldur úti vef­síðu sam­fara fyrr­nefndri Facebook-síðu, þar sem hún ætlar að fara vel og vand­lega yfir ferða­lagið á næst­unni. Ágústa mælir hik­laust með svona flótta úr hvers­dags­leik­anum fyrir hvern sem er.

Skemmti­leg mynd.

„Já, maður verður svo samdauna sam­fé­lag­inu og fer ósjálfrátt í far­veg­inn sem hinir eru í eða far­veg­inn sem í boði er ef maður er alltaf á sama staðnum, sér­stak­lega litlum stöðum. Að fara í burtu, núll­stilla allt, tengj­ast á annan hátt og upp­lifa annað er góð byrjun til að rjúfa rútín­una sem maður er í ef maður kýs það.“

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi