Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Verður tvítug tveggja barna móðir í sumar: „Rosalega mikið sjokk“

Verður tvítug tveggja barna móðir í sumar: „Rosalega mikið sjokk“
|||

„Mér hefur oft fund­ist ég hafa misst af ein­hverju sem aðrir á mínum aldri eru að gera en ég hef allt lífið framundan og nægan tíma til þess að gera alls­konar hluti,“ segir Karen Eva Þór­ar­ins­dóttir.

Karen var aðeins átján ára þegar hún eign­að­ist son sinn, Elmar Þór Róberts­son, með kærasta sínum Róbert Smára Har­alds­syni. Í dag er Karen tví­tug og Róbert 23ja ára og þau eiga von á sínu öðru barni þann 11. júní næst­kom­andi. Karen segir það hafa verið ákveðið áfall að kom­ast að því að hún gengi með annað barn svo ung.

Karen og Elmar í kósí­heitum.

„Þetta var rosa­lega mikið sjokk fyrst þar sem ég er svona ung og ég taldi mig engan veg­inn til­búin í það að eign­ast annað barn, enda algjör­lega að læra á lífið og allt um upp­eldi á eldri stráknum mínum. Mamma mín, sem er mín stoð og stytta, studdi mig í gegnum sjokkið eins og hún gerði á fyrri með­göng­unni og er ég enda­laust þakk­lát fyrir hana. Við­horfið mitt var mjög fljótt að breyt­ast enda er strák­ur­inn minn það allra besta í líf­inu mínu og ég er umvafin ynd­is­legu fólki sem vill allt fyrir okkur gera,“ segir Karen.

Krefjandi að vera ung móðir

Elmar sonur hennar verður aðeins nítján mán­aða gam­all þegar að nýja barnið kemur í heim­inn, en Karen segir það vissu­lega reyna á að verða móðir svona ung.

„Það er mjög krefj­andi að vera ung móðir og ég held að margir átti sig ekki á því hversu mikið maður þarf að þroskast á stuttum tíma til þess að takast á við for­eldra­hlut­verkið, nýskriðin í full­orð­ins­aldur. Þetta tekur mikið á oft á tímum og maður fær að kynn­ast hvað þreyta er,“ segir Karen og hlær. „En á sama tíma er þetta svo rosa­lega gef­andi, að fá að elska sitt eigið barn, að lít­ill ein­stak­lingur þarfn­ist manns.“

Karen seg­ist ekki hafa fundið fyrir for­dómum í sinn garð fyrir að byrja barn­eignir á þessum aldri.

„Ég hef ekki fundið mikið fyrir for­dómum, nema kannski þegar ég fæ svip frá fólki hér og þar. Sumir verða mjög hissa að ég af öllum skuli vera ung móðir þar sem ég var vand­ræða­gems­inn í 10. bekk. Sumir hafa gert létt grín að þessu en alls ekk­ert á for­dóma­fullan hátt. Ég fékk oft að heyra hvernig ég ætti að hafa hlut­ina og fékk upp­eld­is­ráð sem mér fannst per­sónu­lega úrelt og ákvað sjálf að taka ekki til mín,“ segir Karen.

Gerólíkar meðgöngur

Elmar virðir fyrir sér litla systkinið.

Karen er búin að vera óvinnu­fær síðan í febr­úar vegna með­göngu­kvilla, en hún segir þessar tvær með­göngur ger­ó­líkar eins og oft vill verða.

„Fyrri með­gangan mín var algjör draumur og gekk frá­bær­lega, engir fylgi­kvillar og allt gekk eins og í sögu. Það sama átti við um fæð­ing­una. Ég þurfti ekk­ert verkja­still­andi nema baðið og glað­loft. Seinni með­gangan er hins­vegar allt önnur. Morg­unó­gleðin byrj­aði snemma og ég var með hana í þrjá mán­uði. Þá tók við grind­ar­gliðnun, sem er orðin mjög slæm núna og fer versn­andi með tím­anum. Í kringum 20. vik­una byrj­aði ég síðan að fá sam­drætti með miklum verkjum sem að hræddi mig rosa­lega þar sem ég fékk aldrei neina fyr­ir­vara­verki á fyrri með­göngu. Ég er búin að vera í góðu eft­ir­liti hjá ynd­is­legu ljós­mæðr­unum mínum og það er passað vel uppá mig þar,“ segir Karen sem hefur líka þurft að passa uppá and­legu hlið­ina á þess­ari með­göngu.

„Það er ekki hægt að vera alltaf í góðu skapi þegar maður er í sárs­auka alla daga og verkja­lyf gera tak­markað gagn. En ég held í von­ina að fæð­ingin verði góð í þetta skiptið líka.“

Draumurinn að vinna við förðun

Karen og Róbert búa saman á Selfossi, þar sem Karen hefur búið meira og minna alla sína tíð. Hún útskrif­að­ist sem förð­un­ar­fræð­ingur frá Mask Academy í des­em­ber í fyrra og stefnir á frek­ari frama í þeim bransa.

„Draum­ur­inn er að vinna við eitt­hvað förð­un­ar­tengt, mögu­lega opna mitt eigið fyr­ir­tæki eða eitt­hvað skemmti­legt. Mig langar rosa­lega að klára fram­halds­skóla og mun ég senni­lega vinna í því hægt og rólega,“ segir Karen, sem snappar um líf sitt og til­veru undir nafn­inu kareneva98.

Snappar um allt milli him­ins og jarðar.

„Ég snappa um allt sem mér dettur í hug; barnið mitt, með­göng­una, förðun, and­lega heilsu, hvað ég geri á dag­inn og ýmis­legt,“ segir Karen og bætir við að Snapchat hafi verið hennar leið til að vinna bug á feimni. „Ég ákvað að koma mér út úr þæg­ind­ara­mm­anum og feimn­inni sem ég glími við og finna mér eitt­hvað skemmti­legt að gera á dag­inn. Ég byrj­aði á opnu snappi með öðrum frá­bærum mömmum, madres101, og er ég þar inni reglu­lega. Ég snappa líka á mínu eigin snappi á hverjum degi.“

Áður en ég kveð Karen verð ég að spyrja hvort hún hyggi á að fjölga enn frekar í barna­hópnum í nán­ustu fram­tíð.

„Nei, alla­vega ekki næstu árin. Okkur langar að koma undir okkur fótum og kaupa hús­næði. Mig langar að finna mér góða atvinnu áður en við hugum að öðru barni á eftir þessu kríli.“

Myndir / Fyr­ir­myndir og úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi