Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bannaði fólki að snerta börnin

Stefanía Guðrún Hall­dórs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Lands­virkjun, segir að Íslend­ingar geti lært mikið af Kín­verjum en hún bjó ásamt fjöl­skyldu sinni í Sjanghæ í þrjú ár. Stefanía seg­ist hafa þurft að hafa sig alla við í að lesa í fólk og aðstæður þar sem mik­ill munur sé á sam­skiptum þjóð­anna tveggja, Íslend­inga og Kínverja. Stundum hafi legið nærri árekstrum.

Bannaði fólki að snerta börnin
||||||
Stefanía Guðrún Hall­dórs­dóttir er nýtekin við starfi fram­kvæmda­stjóra mark­aðs- og við­skipta­þró­unar hjá Lands­virkjun eftir átta ár starf hjá tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­inu CCP.

Stefanía Guðrún Hall­dórs­dóttir er nýtekin við starfi fram­kvæmda­stjóra mark­aðs- og við­skipta­þró­unar hjá Lands­virkjun eftir átta ára starf hjá tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­inu CCP. Þar var hún meðal ann­ars þró­un­ar­stjóri á skrif­stofu fyr­ir­tæk­is­ins í Sjanghæ, þar sem hún bjó í þrjú ár með manni og þremur börnum. Hvernig stóð á því að hún tók þessa U-beygju úr tölvu­leikja­þróun yfir í orku­geir­ann?

„Áður en ég fór að vinna hjá CCP var ég í tíu ár í orku­geir­anum þannig að CCP var í raun­inni U-beygjan,“ segir Stefanía og hlær. „Það má eig­in­lega segja að ég sé komin aftur heim með þessu starfi hjá Lands­virkjun. Ég var átta ár hjá Orku­stofnun, byrj­aði þar á meðan ég var í háskóla­námi og gerði bæði BSc- og masters-verk­efnið mitt þar. Tók svo síðar við sem yfir­verk­efn­is­stjóri í upp­lýs­inga­tækni, því ég var að brúa bilið milli vís­inda og upp­lýs­inga­tækni í mínu námi, bland­aði fyrst saman landa­fræði og tölv­un­ar­fræði í BSc-verk­efn­inu og í masters-verk­efn­inu bland­aði ég svo saman umhverf­is­fræði og tölv­un­ar­fræði og útskrif­að­ist úr verk­fræði, en mér finnst rosa­lega gaman að blanda saman svona ólíkum hlutum. Nú er alltaf verið að tala um að það sé svo mik­il­vægt að fólk vinni þver­fag­lega og það hentar mér virki­lega vel. Það er mjög gaman að koma aftur inn í orku­geir­ann átta árum seinna og þá sér­stak­lega að koma inn í við­skipta- og mark­aðs­hlið starf­sem­innar.“

„Fólk vildi líka fá að koma við þau og tala við þau og mér fannst oft erfitt hvað fólk fór gjör­sam­lega yfir mörkin í því. Eitt af því fyrsta sem ég lærði að segja á kín­versku var „ekki snerta þau“.“

Réðu ekki hvernig sagan þróað­ist

Starfs­heiti Stefaníu hjá Lands­virkjun er framkvæmda­stjóri mark­aðs- og við­skiptaþróunar, hvað felst í því?

„Við erum fimm fram­kvæmda­stjórar sem heyrum undir for­stjór­ann og hlut­verk mark­aðs- og við­skipta­þró­un­ar­sviðs er að hámarka tekjur Lands­virkj­unar. Við erum að greina ný við­skipta­tæki­færi, erum í vöru­þróun og kynn­ingu og kynn­ingu og sölu á vörum og þjón­ustu og svo þurfum við líka að reka raf­orku­samn­ing­ana við núver­andi við­skipta­vini.“

Það er greini­legt að þetta er fjölbreytt starf og kannski ekk­ert svo ólíkt því sem Stefanía var að gera hjá CCP, eða hvað?

„Þegar ég byrj­aði hjá CCP var ég að koma frá upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tæki þar sem ég hafði unnið mikið að tækni­lausnum fyrir orku­fyr­ir­tæki en þegar ég kom inn í CCP tók ég við sem deild­ar­stjóri í hönnun sem var í raun­inni mín leið til þess að kom­ast aðeins meira inn í hönnun og list­sköpun, sem mér finnst svo mik­il­vægt að tengja saman í allri tækni. Það er lyk­il­at­riði í allri vöru­þróun að skilja báða heima, finnst mér, og þetta var mitt tæki­færi til þess að ná heild­ar­mynd­inni; að fara úr tækn­inni yfir í sköp­un­ina.“

Stefanía segir erfitt að alhæfa um reglur í sam­skiptum í sam­fé­lag­inu í Sjanghæ almennt, þar sé slíkur ara­grúi af fólki með alls konar bak­grunn og mis­jafnt hvað hverjum hóp þykir við hæfi.

Í starfi sínu sem hönn­un­ar­stjóri hjá CCP vann Stefanía náið með sögu­höf­undum leiks­ins Eve Online og hún segir það hafa verið ómet­an­lega reynslu.

„Þessi leikur er nátt­úr­lega svo ótrú­legur,“ segir hún. „Maður getur enda­laust fundið upp á nýjum hlutum þarna inni þannig að það var rosa­lega gott fyrir mig að kynn­ast því að búa til tölvu­leik frá þess­ari hlið. Með allar þessar sögur og öll þessi kerfi. Svo bjuggum við eitt­hvað til og settum það út en af því að leik­ur­inn er svo dýnamískur þá veit maður aldrei hvað spil­ar­arnir gera á end­anum við það og það kemur manni oft á óvart hvernig fram­vindan verður. Eitt af því sem var svo spenn­andi við að búa þennan leik til var að við réðum því ekk­ert endi­lega hvernig sagan þró­að­ist.“

Mállaus á for­eldra­fundi

Saga Stefaníu sjálfrar þró­að­ist þannig að hún varð yfir­þró­un­ar­stjóri Eve Online á Íslandi og síðan flutti hún til Kína þar sem hún færði sig meira yfir í við­skipta­þróun fyrir CCP. Þar kynnt­ist hún enn einni hlið­inni á þessum heimi.

„Í stúd­íó­inu í Sjanghæ voru um sex­tíu manns og ég var að stýra útgáfu Eve Online í Kína vegna þess að Kín­verjar mega ekki spila á alþjóð­lega ser­vernum þannig að það þarf að spegla allt yfir til Kína og við sem vest­rænt fyr­ir­tæki máttum ekki gefa út leik­inn sjálf svo að við unnum það með kín­verskum útgef­anda sem var sér­fræðngur í kín­verska mark­að­inum.“

Það hlýtur að hafa verið tölu­vert átak að taka sig upp með mann og þrjú börn og flytja til Sjanghæ. Fékk hún ekki menn­ing­ar­sjokk?

„Ég kunni afskap­lega vel við mig í Kína. Mér fannst gaman að læra kín­versku, það er eins og það opn­ist annar heimur við að læra táknin. En eftir þrjú ár er maður svo­lítið upp­gef­inn á meng­un­inni. Hún er bara óbæri­leg. Það er óbæri­legt að reyna að fá börnin sín til að vera með önd­un­ar­grímur þegar þau fara út.“

„Jú, þetta var menn­ing­ar­sjokk fyrir alla, það verður bara að við­ur­kenn­ast,“ segir Stefanía glað­beitt. „Maðurinn minn vann líka hjá CCP og við þurftum að skipu­leggja líf okkar þannig að við gætum bæði sótt vinnu allan dag­inn þótt við værum með þrjú börn á ýmsum aldri. Yngsta barnið var ekki orðið tveggja ára. Hún fór strax á kín­verskan leik­skóla og ég byrj­aði að læra kín­versku og var að læra hana allan tím­ann sem við vorum þarna, enda fannst mér það mik­il­vægt upp á það að skilja menn­ing­una og kom­ast inn í sam­fé­lagið og það var í raun­inni nauð­syn­legt. En fyrstu mán­uð­ina sem við bjuggum í Sjanghæ var dóttirin sem sagt á kín­verskum leik­skóla og ég ekki farin að tala neina kín­versku og það var mjög erfitt að geta ekki átt sam­skipti við fólkið sem pass­aði barnið manns á hverjum degi. Þau voru stundum að senda mér bréf heim og ég fór þá með þau í vinn­una og lét þýða þau þar. Þau lögðu líka afar mikið upp úr því að ég kæmi á for­eldra­fund sem ég gerði auð­vitað. Þar fór að sjálf­sögðu allt fram á kín­versku og ég skildi ekki neitt.“

Er kín­verskan ekki hrika­lega erfitt mál að læra?

„Jú, mér fannst það erfitt. Þetta er samt ekk­ert brjál­æð­is­lega erfitt tungu­mál þegar maður er far­inn að skilja hljóðin. Það tók mig svo­lít­inn tíma. En eftir að maður nær þeim verður þetta auð­veld­ara. Litlan mín var fljót að ná kín­versk­unni mjög vel en strák­arnir, sem voru þá níu og fjórtán ára, fóru í alþjóð­legan skóla þar sem kennt var á ensku. Þannig að það voru í raun­inni bara við mæðgur sem töl­uðum kín­versku. Við vorum með heim­il­is­hjálp eins og er mjög algengt í Kína og hún tal­aði enga ensku sem ýtti líka á mig að læra að tjá mig. Hún tók á móti Katrínu litlu á hverjum degi þegar hún kom heim úr leik­skól­anum og pass­aði hana þangað til við komum heim og þær urðu rosa­lega góðar vin­konur. Það var stundum svo­lítið erfitt að koma því til skila hver setti regl­urnar á heim­il­inu. Til dæmis sagð­ist sú stutta mega fá ís eftir leik­skóla, en ég hafði sagt að hún ætti að fá jógúrt. Það tók mig smá­tíma að vinda ofan af svona hlutum, en hún var bara strax miklu betri en ég í tungu­mál­inu.“

Segja já þótt þeir meini nei

Kínverskt samfélag er ansi ólíkt því íslenska, hver fannst Stefaníu vera mesti mun­ur­inn?

„Sjanghæ er nátt­úr­lega svo brjáluð borg. Þar er svo margt fólk, tutt­ugu og sex milljón manns, og það er mjög mik­ill munur á því hvernig fólk lifir innan Sjanghæ eftir hverfum. Maður stendur fyrir framan gríð­ar­lega flottar Gucci-búðir og gengur svo eina götu og er þá kom­inn í hverfi þar sem fólk er að vaska upp fyrir utan húsin sín þar sem ekki er renn­andi vatn inni í hús­unum og svo fram­vegis. Maður sér ekki ofboðs­lega mikla fátækt en maður sér hvað það er mik­ill munur á lífs­kjörum fólks innan borg­ar­innar.“

Hvað með við­skipta­samfélagið, er það mjög ólíkt því vestræna?

„Já, það er mjög ólíkt. Það er ekki eins form­legt og ég hélt fyrir fram, en það er miklu meira af óskrif­uðum reglum. Ég var þarna að vinna með kín­verska útgef­and­anum og við erum auð­vitað með samn­ing en hann er eig­in­lega meira til hlið­sjónar. Þetta snýst dálítið mikið um per­sónu­leg sam­bönd og það eru ýmsar venjur í við­skiptum hjá þeim sem við erum ekki vön. Til dæmis er mikið verið að gefa gjafir og það tók mig tölu­verðan tíma að venj­ast því. Ég vissi það auð­vitað en stundum var ég boðuð á mik­il­vægan fund og var lögð af stað þegar ég upp­götv­aði að ég hafði gleymt að finna gjafir handa þeim. Það var svo­lít­ill haus­verkur af því maður er ekki vanur þessum sið. Svo þurfti ég líka að venj­ast sam­skipt­unum.

„Ég hafði kannski komið með hug­mynd sem eng­inn mót­mælti beint, þeir jánk­uðu og kink­uðu kolli og svo þurfti ég að kom­ast að því eftir öðrum leiðum að þeim leist ekki vel á hug­mynd­ina af ein­hverri ástæðu. Þetta var rosa­lega góður skóli í því að þjálfa sig í að lesa fólk og aðstæður betur.“

Fólk í Kína talar stundum í kringum hlut­ina og það tók mig dálít­inn tíma að venj­ast því að lesa í það sem fólk var að segja. Stundum þurfti ég að finna út hvað það meinti eftir króka­leiðum. Ég hafði kannski komið með hug­mynd sem eng­inn mót­mælti beint, þeir jánk­uðu og kink­uðu kolli og svo þurfti ég að kom­ast að því eftir öðrum leiðum að þeim leist ekki vel á hug­mynd­ina af ein­hverri ástæðu.

Þetta var rosa­lega góður skóli í því að þjálfa sig í að lesa fólk og aðstæður betur. Og hlusta. Það er mjög mik­il­vægt í sam­skiptum í við­skipta­líf­inu í Kína að hlusta. Að mæta ekki strax með mína skoðun heldur hlusta fyrst eftir því hvað þau voru að hugsa og hvort það sem ég var að leggja til pass­aði inn í það. Það er líka mikil auð­mýkt í fólki og það sæk­ist eftir því að finna sam­hljóm og forð­ast átök. Fólk gengur frekar frá borð­inu en að takast of mikið á.“

Fjöl­skyldan saman: Halldór, Árni, Snorri, Stefanía og Katrín.

Bannaði fólki að snerta börnin

Stefanía segir erfitt að alhæfa um reglur í sam­skiptum í sam­fé­lag­inu í Sjanghæ almennt, þar sé slíkur ara­grúi af fólki með alls konar bak­grunn og mis­jafnt hvað hverjum hóp þykir við hæfi. Stundum hafi legið nærri árekstrum.

„Katrín og Árni eru bæði ljós­hærð og hún með bolluk­innar. Stundum var bara ekki hægt að vera með þau á fjöl­förnum stöðum. Ef við fórum á ferða­manna­staði þar sem voru kín­verskir ferða­menn þá var alltaf strolla á eftir okkur. Ég held það séu þús­undir Kínverja sem eiga myndir af Katrínu og Árna í sím­anum sínum. Fólk vildi líka fá að koma við þau og tala við þau og mér fannst oft erfitt hvað fólk fór gjör­sam­lega yfir mörkin í því. Eitt af því fyrsta sem ég lærði að segja á kín­versku var „ekki snerta þau“. Mér fannst rosa­lega erfitt þegar fólk kom og rak putt­ana í hárið á þeim en ég veit að þetta var allt vel meint. Margir, og þá sér­stak­lega fólk af lands­byggð­inni, hafa aldrei séð ljós­hærða hvíta krakka og finnst þau svo ofboðs­lega sæt að þau ráða bara ekki við sig.“

„Fólk vildi líka fá að koma við þau og tala við þau og mér fannst oft erfitt hvað fólk fór gjör­sam­lega yfir mörkin í því. Eitt af því fyrsta sem ég lærði að segja á kín­versku var „ekki snerta þau“.“

Fyrst við erum farin að tala um ferða­manna­staði er ekki úr vegi að spyrja Stefaníu hvernig henni finn­ist Asíu­ríkin standa sig í þeim málum sem snerta þá og hvort við Íslend­ingar getum kannski lært eitt­hvað af þeim.

„Við ferð­uð­umst tölu­vert um Asíu og það er áber­andi hvað Asíu­þjóð­irnar passa vel upp á sitt. Þar  hikar fólk ekki við að taka gjald af ferða­mönnum inn á ferða­manna­staði enda er ofboðs­lega margt  fólk þarna. Þegar maður kemur til Kambódíu þá borgar maður komu­gjald á hvern haus og auk þess er selt inn á vin­sæla ferða­manna­staði. Ég varð eig­in­lega svo­lítið hissa á hversu langt þau eru komin í fag­mennsku og skipu­lagn­ingu í kringum ferða­manna­iðn­að­inn. Þetta er gríð­ar­lega fátæk þjóð sem hefur glímt við ótrú­lega erf­iða hluti en hún hefur náð að skipu­leggja þetta vel. Mér finnst að við Íslend­ingar þurfum aðeins að passa upp á það sem við höfum. Í Asíu þykir það alveg sjálf­sagt.“

Reykjavík orðin meiri heimsborg

Stefanía og fjöl­skylda bjuggu í Sjanghæ í þrjú ár og hún segir þeim hafa liðið mjög vel þar.

„Ég kunni afskap­lega vel við mig í Kína. Mér fannst gaman að læra kín­versku, það er eins og það opn­ist annar heimur við að læra táknin. En eftir þrjú ár er maður svo­lítið upp­gef­inn á meng­un­inni. Hún er bara óbæri­leg. Það er óbæri­legt að reyna að fá börnin sín til að vera með önd­un­ar­grímur þegar þau fara út. Vatnið er líka mjög mengað, maður drekkur það auð­vitað ekki en maður fer að hugsa um það þegar maður er í sturtu á hverjum degi hvaða áhrif það hafi. Þessir hlutir sem við tökum sem sjálf­sögðum, hreina loftið og hreina vatnið, eru ómet­an­legir. Ég hef verið heima í rúmt ár og ég hugsa stundum enn þá um það þegar ég geng út úr hús­inu hvað það sé gott að geta andað að sér hreinu lofti.“

Hvernig var ann­ars að koma heim eftir þessi þrjú ár í burtu, hefur eitt­hvað breyst?

Katrín og vin­kona í Longs­heng

„Nei, þetta er of stuttur tími til þess. Eða jú, ég sá breyt­ingu. Ég sá breyt­ingu á því hvað það er miklu, miklu meira af ferða­mönnum en var. Og í raun­inni verður Reykja­vík pínu­lítið meiri heims­borg við það. Það er hægt að reka fleiri flotta veit­inga­staði og svo fram­vegis. Með öllum þessum ferða­mönnum spratt upp marg­vís­leg menn­ing sem er alveg frá­bært. Mér finnst skemmti­legt að koma úr svona stórri heims­borg eins og Sjanghæ og finna að það er smá­vegis heims­borg­ar­bragur kom­inn á Reykja­vík líka. Það er ekk­ert nema jákvætt.“

Fyrst eftir heim­kom­una hélt Stefanía áfram að vinna hjá CCP, hvað varð til þess að hún hætti þar?

„Ég kom heim og tók við sem fram­kvæmda­stjóri CCP á Íslandi en í októ­ber í fyrra voru skipu­lags­breyt­ingar hjá fyr­ir­tæk­inu og ákveðið að hætta nýrri þróun á sýnd­ar­veru­leika­leikjum og við það minnk­uðu umsvifin gríð­ar­lega. Það varð ekki lengur þörf fyrir fram­kvæmda­stjóra af neinni af skrif­stofum CCP. Það kom mér ekki endi­lega á óvart og minn við­skiln­aður við CCP var á mjög góðum nótum og ég fylgist auð­vitað með fyr­ir­tæk­inu áfram og held með því.“

Ýmislegt sameiginlegt með Landsvirkjun og CCP

Nú ertu komin yfir til Lands­virkj­unar er það ekki allt annað kúlt­úr­samfélag heldur en tölvu­leikja­heim­ur­inn?

„Þetta er svo­lítið annar kúltúr, jú,“ við­ur­kennir Stefanía. „En ég sé líka ýmis­legt sem er sam­eig­in­legt og það er meira en fólk heldur. Það er gríð­ar­lega mikil þekk­ing inni í báðum fyr­ir­tækj­unum og mikil holl­usta starfs­manna á báðum stöðum. Þetta eru fyr­ir­tæki sem eru í mik­illi þróun á nýjum aðferðum og lausnum og ég finn mig mjög vel í svo­leiðis umhverfi. Þegar mér bauðst að fara inn í Lands­virkjun þá var ég í skýj­unum yfir því. Þetta er einmitt svona tæki­færi sem mér fannst akkúrat tíma­bært núna. Báðir þessir vinnu­staðir halda líka vel utan um sitt fólk en auð­vitað er margt öðru­vísi. Nærri einn þriðji af starfs­mönnum CCP á Íslandi er erlendur þannig að vinnu­tungu­málið er enska og að vera með svona mörg þjóð­erni innan fyr­ir­tækis gerir það skilj­an­lega svo­lítið ólíkt öðrum fyr­ir­tækjum á Íslandi. Svo er það auð­vitað þannig að Lands­virkjun er rót­gróið fyr­ir­tæki, það er meira um ferla og hlut­irnir í fast­ari skorðum en í tölvu­leikja­brans­anum sem er miklu hrað­ari, það er bara eðli slíks fyr­ir­tækis. Í stað­inn ríkir meiri stöð­ug­leiki og festa hjá Lands­virkjun.“

Lands­virkjun er samt í nokk­urs konar ímynd­ar­her­ferð til að breyta ásýnd fyr­irtækis­ins, er það ekki?

„Jú. Lands­virkjun hefur verið að breyt­ast mikið und­an­farin ár. Gott dæmi um þær breyt­ingar sem ég upp­lifi og sé er metn­að­ar­full jafn­rétt­is­stefna. Við kynntum í mars nýja heild­stæða jafn­rétt­is­á­ætlun og aðgerða­á­ætlun í jafn­rétt­is­málum og þar eru sett fram mark­mið, mæli­kvarðar og umbóta­verk­efni. Eins og lög gera ráð fyrir er Lands­virkjun að fara í gegnum jafn­launa­vottun en við erum að taka þetta miklu lengra. Við erum að taka menn­ing­una fyrir, tala um hana, búa til verk­efni sem fjalla um stöðu kynja í mis­mun­andi stjórn­un­ar­lögum, tala um fram­gangs- og mennta­kerfi fyrir konur og svo hvernig er ráðið inn í fyr­ir­tækið. Fyrir mig sýnir þetta að fyr­ir­tæk­inu er alvara með þessu. Mér finnst mik­il­vægt að fyr­ir­tæki gæti að jafn­rétti og ég er bara ekki til­búin að sam­þykkja að helm­ingur starfs­manna sé alltaf í minni­hluta þegar kemur að stjórn­un­ar­stöðum. Á Íslandi eru ell­efu pró­sent for­stjóra konur og ástæðan er klár­lega ekki að konur séu ekki hæfar í þessi störf til jafns við karla. Þetta er bara óaf­sak­an­legur, kerf­is­bund­inn halli og það þarf að laga hann. Það þarf hug­rekki til að taka á þessu og ég er afskap­lega stolt af mínum vinnu­stað og stjórn­endum þar að sýna þetta hug­rekki.“

„Ég held að þær áskor­anir sem við stöndum frammi fyrir hér á landi séu að við þurfum að vera með stefnu í orku­málum og sú stefna þarf að end­ur­spegla umhverf­is­sjón­ar­mið og mark­mið sem lúta að alþjóða­væð­ingu. Okkar umhverf­is­mark­mið og umhverf­is­sjón­ar­mið geta ekki bara mið­ast við það hvernig hlut­irnir eru hérna á Íslandi.“

Kolabrennsla í Kína kemur okkur við

Fyrir utan jafnréttið, hver eru stóru málin sem Lands­virkjun þarf að takast á við á næstu árum?

„Auðvitað er það þannig að stefna Lands­virkj­unar er að fá sem mest fyrir auð­lind­ina okkar. Ég er svo nýkomin þar inn að ég er sjálf að læra inn á það hvar tæki­færin í fram­tíð­inni liggja, en ég held að það séu mikil tæki­færi fyrir Ísland almennt í orku­málum. Við eigum svo ofboðs­lega mikið af grænni orku og nú hef ég fundið á eigin skinni hvernig það er að búa í rosa­lega meng­aðri borg og geri mér vel grein fyrir því að það að verið sé að brenna kol í Kína til þess að búa til alls konar hluti sem við svo kaupum er okkar mál, það kemur okkur við. Ísland er hluti af þess­ari plánetu og þetta kemur inn á okkar neyslu­mynstur og líka hvernig við ætlum svo að nota okkar orku. Að fram­leiða eitt­hvað á Íslandi með grænni orku gerir það að verkum að það er ekki verið að brenna kol ein­hvers staðar ann­ars staðar til að fram­leiða það. Orkumál eru mjög stórt umhverf­is­mál.

„Að fram­leiða eitt­hvað á Íslandi með grænni orku gerir það að verkum að það er ekki verið að brenna kol ein­hvers staðar ann­ars staðar til að fram­leiða það. Orkumál eru mjög stórt umhverf­is­mál.“

Mér finnst við Íslend­ingar stundum ekki átta okkur á því að það er jákvætt að við notum okkar grænu orku. Ég held að þær áskor­anir sem við stöndum frammi fyrir hér á landi séu að við þurfum að vera með stefnu í orku­málum og sú stefna þarf að end­ur­spegla umhverf­is­sjón­ar­mið og mark­mið sem lúta að alþjóða­væð­ingu. Okkar umhverf­is­mark­mið og umhverf­is­sjón­ar­mið geta ekki bara mið­ast við það hvernig hlut­irnir eru hérna á Íslandi.“

Nú er fjölskyldan búin að búa á Íslandi í rúmt ár, voru viðbrigðin eftir þriggja ára Kínadvöl ekk­ert erfið?

„Jú. Við komum heim í jan­úar í fyrra og dóttir mín var strax á þriðja degi orðin mjög þreytt á því að þurfa alltaf að klæða sig í svona mörg fötum. Þótt það verði alveg kalt í des­em­ber og jan­úar í Sjanghæ þá er það á öðrum skala þannig að hún var alls ekki vön því að þurfa að vera með húfu og í úlpu. Svo þurfti hún líka að venj­ast íslenska matnum. Hún var ekki hrifin þegar hún fékk kart­öflur og fisk í fyrsta skipti á leik­skól­anum,“ segir Stefanía og skelli­hlær. „Miðju­son­ur­inn sem verður þrettán ára á þessu ári var hins vegar mjög glaður að kom­ast heim og geta aftur leikið sér úti með vinum sínum og við erum öll mjög ánægð með að vera komin heim. Og á meðan krakk­arnir eru að klára skóla held ég að við verðum hér. Allavega næstu árin. Svo sjáum við til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi