Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

KK beðinn um eiginhandaáritanir í Frakklandi

KK var við tökur á loka­hluta ser­í­unnar Sense8 í París.

KK beðinn um eiginhandaáritanir í Frakklandi

Tón­list­ar­mað­ur­inn Kristján Krist­jáns­son, betur þekktur sem KK, var nýverið við tökur á hinni geysi­vin­sælu Netflix-seríu Sense8 í París. Æsispenntir aðdá­endur fylgd­ust spenntir með öllu sem fór fram. „Þætt­irnir eru greini­lega mjög vin­sælir þarna, mjög stórir, því þarna var aðdá­enda­hópur fyrir utan hót­elið okkar allan sól­ar­hring­inn að reyna að sjá glitta í stjörn­u­rnar,“ segir KK, sem fór sjálfur ekki var­hluta af allri athygl­inni og ekki í fyrsta sinn.

„Ég lenti nú bara í því þegar ég var í fríi í París í haust að vera stopp­aður úti á götu af ungu fólki sem hróp­aði: „Guð minn góður ert þetta þú! Má ég fá eig­in­hand­ar­á­ritun!“ Og spurði svo hvort ég væri til í að sitja fyrir með þeim á sjálfu. Í Banda­ríkj­unum lenti ég í svip­uðu dæmi. Þetta er svo­lítið skrítið, maður hefur aldrei upp­lifað það að vera „heims­frægur“,“ segir hann kím­inn.

„… vissu­lega er þetta búið að vera mikið ævin­týri fyrir óvanan mann eins og mig, að fá hlut­verk sem ég átti aldrei von á að landa og fá að vinna með öllu þessu stór­kost­lega lista­fólki … og kynn­ast þess­ari hlið á kvik­mynda­brans­anum.“

Í París var verið að taka upp loka­hluta Sense8 en KK leikur föður einnar aðal­per­són­unnar, hinnar íslensku Riley. Með í för voru Eyþór Gunn­ars­son og Lilja Þór­is­dóttir sem bæði fara með hlut­verk í þátt­unum. Stemn­ingin var góð og segir KK að miklir fagn­að­ar­fundir hafi orðið þegar leik­ar­arnir hitt­ust, enda búnir að vinna áður saman að tveimur ser­íum og einni Sense8-mynd. Hann við­ur­kennir að það hafi hins vegar verið svo­lítið und­ar­leg til­finn­ing að skjóta í nístandi kulda um hám­iðja nótt í nán­ast mann­lausum Eiffel-turni, þar sem loka­tök­urnar fóru fram.

En er ekk­ert skrítið að kveðja þessa per­sónu, píanó­leik­ar­ann Gunnar, sem þú ert búinn að leika í ein fjögur ár? „Nei, í raun og veru ekki,“ svarar hann blátt áfram. „En vissu­lega er þetta búið að vera mikið ævin­týri fyrir óvanan mann eins og mig, að fá hlut­verk sem ég átti aldrei von á að landa og fá að vinna með öllu þessu stór­kost­lega lista­fólki, leik­ur­unum og ekki síst leik­stjór­unum Lönu og Lily Wachowsky með sína ein­stöku sýn á hlut­ina og kynn­ast þess­ari hlið á kvik­mynda­brans­anum. Auðvitað var þetta langt út fyrir minn þæg­ind­ara­mma, en ég hafði gott fólk í kringum mig, fékk stuðn­ing frá Andreu Brabin, leik­list­ar­kennslu hjá Kára Þórssyni og píanó­kennslu hjá Snorra Sigfúsi Birg­is­syni sem kenndi mér að spila á píanó í þykjust­unni, svo ég yrði nú trú­an­legur sem heimsklassa píanó­konsert leik­ari,“ segir hann og brosir.

Hefurðu hugsað þér að leika eitt­hvað meira? „Nei, ég hef ekk­ert verið að sækj­ast eftir því. Er ekki einu sinni með umboðs­mann,“ svarar hann hóg­vær. „Þetta var bara skemmti­leg reynsla.“

Aðalmynd: Í Sense8 fer KK með hlut­verk píanó­konsert leik­ar­arns Gunnars, sem er vin­sæl per­sóna meðal aðdá­enda þátt­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi