Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erlendar bílaleigur svindla á Íslendingum

Þúsundir Íslend­inga eru að und­ir­búa ferða­lögin í útlöndum um þessar mundir. Margir leigja bíla en þá er mik­il­vægt að hafa varan á því dæmi eru um að erlendar bíla­leigur hlunn­fari Íslend­inga.

Erlendar bílaleigur svindla á Íslendingum
|
Mörg dæmi eru um að íslenskir við­skipta­vinir hafi orðið fyrir barð­inu á ósvífnum við­skipta­háttum erlendra bíla­leiga þegar bílar eru pant­aðir í gegnum Netið.

„Ég fann góðan díl fyrir fjöl­skyldu­bíl í gegnum vef­síðu flug­fé­lags­ins. Allt gekk sam­kvæmt venju. Á skrif­stof­unni var tekið afrit af kredit­kort­inu til trygg­ingar tjóni, ég fékk bíllyklana og bíl­inn. Þegar ég skil­aði honum til baka tæpum hálfum mán­uði síðar byrj­uðu vand­ræðin,“ segir Birkir Mart­eins­son, sem fór með fjöl­skyldu sinni til Malpensa á Ítalíu í fyrra en þangað fljúga öll helstu flug­fé­lögin. Birkir segir að þegar hann hafi skilað bílnum á bíla­leig­una, sem er fyrir utan flug­völl­inn, hafi starfs­maður gert athuga­semd við á bílnum aft­an­verðum.

„Þetta var álíka stórt og títu­prjóns­haus hjá skott­inu, venju­legt slit á bíl,“ segir Birkir. Hann segir starfs­mann­inn hafa skrifað tjóna­lýs­ingu á ítölsku inni á skrif­stof­unni þar sem hann lýsti því yfir að Birkir væri valdur að skemmd­inni. Meta yrði tjónið og ætl­að­ist starfs­mað­ur­inn til að Birkir skrif­aði undir. Því neit­aði hann. Á end­anum skrif­aði starfs­mað­ur­inn lýs­ing­una á ensku og sagði Birki hepp­inn að vera ekki rukk­aður fyrir annað tjón á bílnum. Birkir segir að hann hafi ekki getað sannað að skemmdin hafi verið á bílnum þegar hann leigði hann en maðkur hafi greini­lega verið í mys­unni því á sama tíma og þetta átti sér stað leigði annar við­skipta­vinur bíl­inn og ók á brott.

„Mér til lukku voru trygg­ingar á kort­inu og því end­aði ég á að borga 20.000 krónur því trygg­ingin tók hinn hlut­ann. Ég pass­aði mig á að loka kort­inu strax svo bíla­leigan gæti ekki óskað eftir fleiri úttektum seinna.“

Þegar hann skoð­aði á Netinu ummæli um bíla­leig­una sá hann að aðrir við­skipta­vinir höfðu greitt þús­undir króna vegna tjóns sem þeir voru sann­færðir um að hafa ekki valdið. Hann hafði því strax sam­band við korta­fyr­ir­tæki sitt á Íslandi. Bíla­leigan var þar með úttekt­ar­heim­ild upp á 1.000 evrur, jafn­virði rúm­lega 120.000 íslenskra króna. „Nokkru eftir að ég kom heim kom færsla frá þeim upp á 52.000 krónur. Mér til lukku voru trygg­ingar á kort­inu og því end­aði ég á að borga 20.000 krónur því trygg­ingin tók hinn hlut­ann. Ég pass­aði mig á að loka kort­inu strax svo bíla­leigan gæti ekki óskað eftir fleiri úttektum seinna,“ segir Birkir og kveðst hafa fengið sér annað kort.

Kröfðust 360.000 króna tryggingu

Mörg önnur dæmi eru um að íslenskir við­skipta­vinir hafi orðið fyrir barð­inu á ósvífnum við­skipta­háttum erlendra bíla­leiga þegar bílar eru pant­aðir í gegnum Netið. Dæmi er um að fólk hafi leigt bíl á Spáni hjá leigu sem bauð góð til­boð en við­kom­andi þekkti lítið til. Þegar á hólm­inn var komið gerði starfs­maður bíla­leig­unnar kröfu um að taka út 3.000 evrur (jafn­virði um 360.000 króna) af kredit­korti leigu­taka sem trygg­ingu og end­ur­greiða hana 30 dögum eftir að bílnum væri skilað. Það var til við­bótar 400 evru leigu á bílnum. Þetta sætti við­skipta­vin­ur­inn sig ekki við og sleit við­skipt­unum. Hann fékk hins vegar ekki evr­urnar 400 end­ur­greiddar frá bíla­leig­unni og varð að snúa sér til korta­fyr­ir­tæk­is­ins. End­ur­greiðslan skil­aði sér fjórum mán­uðum síðar.

Til að koma í veg fyrir svika­starf­semi sem þessa mælir Birkir Mart­eins­son með að fólk lesi ummæli við­skipta­vina bíla­leiga á Netinu áður en það leigir sér bíl, en þær má m.a. finna á https://uk.trustpilot.com/. „Ég mæli líka með því að velja stóru, við­ur­kenndu bíla­leig­urnar í stað þeirra sem maður þekkir ekki mikið eins og í mínu til­viki,“ segir hann og leggur áherslu á að fólk taki jafn­framt myndir af bílum sem það leigir þegar það fær hann og við skil.

Aðalmynd: Birkir Mart­eins­son hvetur fólk til að eiga við­skipti við stórar, við­ur­kenndar bíla­leigur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi