Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Aðalgaldurinn er að þora að fara í hjarta sitt og opna það fyrir öðrum”

„Aðalgaldurinn er að þora að fara í hjarta sitt og opna það fyrir öðrum”

„Mér finnst ekk­ert svo stressandi að taka að mér að syngja þessi lög, þó þau séu svona vel þekkt og að vafa­laust eigi flestir sína upp­á­halds­flytj­endur,” segir söng­konan Kristín Stef­áns­dóttir. Hún heldur tón­leika til heið­urs Burt Bacharach í Salnum í Kópavogi þann 20. apríl, í til­efni af níræð­is­af­mæli tón­list­ar­manns­ins þann 12. maí.

„Ég tengi mjög vel við þessi lög og skila­boðin í þeim og geri þau að mínum með því að mála mynd­ina í hug­anum af sög­unni sem verið er að segja. Þegar svona dásam­leg tón­smíð rammar svo inn sög­una er óhjá­kvæmi­legt annað en að tengj­ast á sinn eigin hátt. Aðal­gald­ur­inn er að þora að fara í hjarta sitt og opna það fyrir öðrum þannig að þeir geti tengst sínu hjarta í gegnum flutn­ing­inn,” segir Kristín, en meðal laga sem munu hljóma í Salnum eru The Look of Love, I Say a Little Prayer og What the World Needs Now.

Algjör suga á tónlist

„Mér finnst eins og lög Burt Bacharach séu svo­lítið sam­ofin upp­vexti mínum, á þann hátt á ég minn­ingar af þessum lögum en ég var algjör suga á alls konar tón­list í upp­vext­inum. Lögin hans eiga það sam­eig­in­legt að vera melódísk og þægi­leg fyrir eyrað en hafa einnig skýra sögu eða skila­boð sem ég held að sé líka gald­ur­inn að vin­sæld­unum. Maður á sterkar minn­ingar af lögum eins og What the World Needs Now, That’s What Friends Are For, Close to You og Say a Little Prayer, svo fátt eitt sé nefnt. En það kom mér á óvart þegar ég fór að vinna þetta pró­gramm hvað hann á líka mörg ofboðs­lega fal­leg lög sem maður hafði sjaldan eða jafn­vel aldrei heyrt. Þá gæti ég nefnt lög eins og Alfie, Who Will Speak for Love, Love’s the Answer og svona hádramat­ísk lög eins og This House is Empty Now. Lögin hans eru svo ljúf og fjalla flest öll á einn eða annan hátt um ást­ina og munum við kapp­kosta að koma þeim skila­boðum eins fal­lega og við getum til skila,” segir þessi hressa söng­kona.

Fann kjólinn í útlöndum

Kristín er búin að leggja mikla vinnu í að skip­leggja tón­leik­ana og kom tón­leika­kjóll­inn uppí hend­urnar á henni fyrir utan land­stein­ana.

„Mér finnst stundum eins og ég sé að búa til lista­verk þegar ég skipu­legg svona tón­leika. Öll smá­at­riði fæð­ast í hug­anum og verða svo að einni heild. Mik­il­vægur þáttur í þeirri mynd er auð­vitað klæðn­að­ur­inn. Mér fannst eins og klæðn­aður minn þyrfti að vera í sam­ræmi við ork­una í lög­unum bæði í lit og mýkt. Þegar ég var svo í fríi í útlöndum í jan­úar kom rétti kjóll­inn í fangið á mér. Mér fannst eins og þetta væri akkúrat kjóll­inn sem hæfði lög­unum; bæði róm­an­tískur og mjúkur. Það skiptir miklu máli að líða vel í föt­unum sem maður syngur í,” segir söng­konan og hlakkar mikið til tón­leik­anna, en auk grunn­bands verða á svið­inu sex manna blás­arateymi, fjög­urra manna strengja­sveit, þrjár bak­raddir og Hreimur Örn Heim­is­son er gesta­söngv­ari.

„Það hefur lengi blundað í mér að syngja lög eftir Burt Bacharach. Eftir að ég sá hann í Hörpu fyrir nokkrum árum fór myndin að taka á sig skýr­ara form og þegar ég svo flutti lagið The Look of Love á tón­leikum í Noregi í fyrra­sumar ákvað ég að nú myndi ég láta þennan draum ræt­ast á nítug­asta afmæl­is­ári tón­list­ar­manns­ins. Hlynur Þór Agn­ars­son píanó­leik­ari, sam­þykkti að taka að sér útsetn­ingar og hljóm­sveit­ar­stjórn og við lögð­umst í hug­mynda­vinnu. Það kom ekk­ert annað til greina en að gera þessum lögum góð skil og fá með okkur ein­vala lið tón­list­ar­manna,” segir Kristín og bætir við:

„Það sem ég held að muni koma áhorf­endum mest á óvart er hvað þetta verður stór og flottur við­burður. Við verðum alls nítján manns að flytja tón­list­ina þar sem val­inn maður er í hverju rúmi. Einnig munum við vera með ýmsan fróð­leik um Burt Bacharach; ævi hans og lífs­hlaup og fjalla um þá sem sömdu með honum tón­list­ina og text­ana. Við söngv­ar­arnir fimm munum svo hjálp­ast að við syngja lögin eftir því sem okkur finnst hæfa hverju lagi fyrir sig. That´s what fri­ends are for…”

Mynd / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi