Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ráðherrar eyða allt of miklum tíma í símanum

Ráðherrar eyða allt of miklum tíma í símanum
|||||||||

Síma­notkun Íslend­inga er eitt­hvað sem kemst reglu­lega í umræð­una og virð­ast margir eiga við það vanda­mál að stríða að vera of mikið í sím­anum. Grunn­skólar eru farnir að banna síma á kennslu­tíma og Barna­heill hefur lagt sín lóð á vog­ar­skál­arnar með síma­lausum sunnu­dögum.

Mikil umræða hefur verið um að börn og ung­lingar noti snjall­tæki of mikið síð­ustu miss­eri, en for­eldr­arnir hafa oft gleymst í þess­ari umræðu. Rann­sóknir hafa sýnt að ef for­eldri er mikið í sím­anum, jafn­vel marga klukku­tíma í dag, geti það valdið því að það teng­ist börnum sínum ekki nægi­lega vel, sé fjar­lægt, eigi erfitt með svefn og geti þróað með sér kvíða.

Við ákváðum því að spyrja æðstu for­eldra og fyr­ir­myndir þjóð­ar­innar, sjálfa ráð­herra í rík­is­stjórn, um þeirra síma­notkun.

———

Forsætisráðherraístuði

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra.

Hvernig síma áttu?
„Ég á iPhone 6. Held ég.“

Hvað telur þú að þú eyðir miklum tíma á degi hverjum í sím­anum?
„Ætli ég sé ekki í sím­anum að tala eða svara póstum ef ég er ekki á fundum. Á kvöldin legg ég þó sím­ann til hliðar.“

Í hvað not­arðu sím­ann annað en að svara tölvu­póstum, sím­tölum og smá­skila­boðum?
„Bíddu ertu ekki að elta mig á Snapchat? Ég er með for­sæt­is­ráð­herra­í­stuði. Djók.“

Hvaða smá­forrit í sím­anum þínum not­arðu mest?
„Er SMS-smá­forrit? Nei ann­ars, ég hef mikið notað strætó-appið sem mér finnst frá­bært.“

Hvað heldur þú að þú gætir verið lengi án sím­ans?
„Ég vil trúa því að ég gæti verið án hans alla ævi en lík­lega í raun ekki nema í svona 4 mín­útur í mesta lagi.“

———

Messenger mest notað

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra.

Hvernig síma áttu?
„iPhone 7.“

Hvað telur þú að þú eyðir miklum tíma á degi hverjum í sím­anum?
„1 til 2 tímum.“

Í hvað not­arðu sím­ann annað en að svara tölvu­póstum, sím­tölum og smá­skila­boðum?
„Hlusta á podcast, Spotify og útvarp.“

Hvaða smá­forrit í sím­anum þínum not­arðu mest?
„Messen­ger.“

Hvað heldur þú að þú gætir verið lengi án sím­ans?
„Ótak­markað.“

———

Minni tími fyrir framan tölvuna

Kolbrún Þórdís Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

Hvernig síma áttu?
„Ég á iPhone.“

Hvað telur þú að þú eyðir miklum tíma á degi hverjum í sím­anum?
„Það er mis­jafnt eftir dag­skránni og til dæmis minna um helgar en á virkum dögum. Líklega of miklum þó. En í stað­inn eyði ég minni tíma fyrir framan tölv­una.“

Í hvað not­arðu sím­ann annað en að svara tölvu­póstum, sím­tölum og smá­skila­boðum?
„Sam­fé­lags­miðla, les fréttir, tek myndir og hlusta á Spotify.“

Hvaða smá­forrit í sím­anum þínum not­arðu mest?
„Tölvu­póst­inn, Facebook og Spotify.“

Hvað heldur þú að þú gætir verið lengi án sím­ans?
„Vonandi lengi en ég þyrfti þá að tryggja með öðrum hætti að fólk gæti náð í mig.“

———

Gæti verið án síma í innan við mínútu

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra.

Hvernig síma áttu?
„iPhone.“

Hvað telur þú að þú eyðir miklum tíma á degi hverjum í sím­anum?
„Allt of miklum.“

Í hvað not­arðu sím­ann annað en að svara tölvu­póstum, sím­tölum og smá­skila­boðum?
„Skoða fréttir á Netinu.“

Hvaða smá­forrit í sím­anum þínum not­arðu mest?
„Smá­forrit fyrir tölvu­póst og svo net­vafr­ann (Chrome).“

Hvað heldur þú að þú gætir verið lengi án sím­ans?
„Púff … Dætur mínar segja eflaust að það sé innan við 1 mín­útu …“

———

Eyðir þremur klukkustundum í símanum

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra.

Hvernig síma áttu?
„iPhone SE (2016).“

Hvað telur þú að þú eyðir miklum tíma á degi hverjum í sím­anum?
„Um þremur klukku­stundum.“

Í hvað not­arðu sím­ann annað en að svara tölvu­póstum, sím­tölum og smá­skila­boðum?
„Skoða Netið, aðal­lega fréttir.“

Hvaða smá­forrit í sím­anum þínum not­arðu mest?
„Facebook og Messen­ger.“

Hvað heldur þú að þú gætir verið lengi án sím­ans?
„Í mjög skamman tíma!“

———

Vildi óska að hann gæti verið án símans

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra.

Hvernig síma áttu?
„iPhone.“

Hvað telur þú að þú eyðir miklum tíma á degi hverjum í sím­anum?
„Starf mitt er ein­fald­lega þess eðlis að það krefst mik­illa sam­skipta og því er ég mikið í sím­anum. Ein­hverjir myndu segja of mikið.“

Í hvað not­arðu sím­ann annað en að svara tölvu­póstum, sím­tölum og smá­skila­boðum?
„Ég nota hann til að skoða fréttir, lesa og taka myndir.“

Hvaða smá­forrit í sím­anum þínum not­arðu mest?
„Ætli það sé ekki tölvu­póst­ur­inn.“

Hvað heldur þú að þú gætir verið lengi án sím­ans?
„Stundum vildi ég óska þess að ég gæti verið án hans og hefði lík­lega kom­ist upp með það fyrir mörgum árum síðan. Margt hefur breyst og ég efast um að ég gæti verið lengi án hans í dag.“

———
Það er líf án síma

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra

Hvernig síma áttu?
„Ég er með Apple 6s+.“

Hvað telur þú að þú eyðir miklum tíma á degi hverjum í sím­anum?
„Ég nota sím­ann minn meira með hverju árinu. Að grípa í sím­ann jafn­ast á við að setj­ast við skrif­borðið þar sem tölvan mín stendur. Mér er ómögu­legt að áætla hvað ég eyði miklum tíma í sím­anum en ég gæti trúað að það væru um tvær til þrjár klukku­stundir á dag sem fara í að tala í sím­ann, lesa skila­boð, skrifa tölvu­pósta og skeyti fyrir utan að fyglj­ast með fréttum, lesa skýrslur og annað efni.“

Í hvað not­arðu sím­ann annað en að svara tölvu­póstum, sím­tölum og smá­skila­boðum?
„Það eru sam­fé­lags­miðl­arnir, Facebook og Messen­ger, Twitter af og til, Snapchat til að hafa gaman, Spotify til að hafa enn meira gaman. Mynda­vélin er líka mikið notuð.“

Hvaða smá­forrit í sím­anum þínum not­arðu mest?
„Ætli það sé ekki Messen­ger.“

Hvað heldur þú að þú gætir verið lengi án sím­ans?
„Ég myndi byrja að anda stutt eftir 4-6 tíma en á öðrum degi myndi renna upp fyrir mér að lífið heldur áfram. Það er líf án síma.“

Sigríður Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra baðst undan því að svara spurn­ingum blaða­manns. Þá svör­uðu Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra ekki.

Þú ert of mikið í símanum ef …

… þú ert alltaf í sím­anum þegar þú ert ein/n.
… þú kíkir á sím­ann rétt áður en þú ferð að sofa og um leið og þú vaknar.
… þú kíkir hvort eitt­hvað nýtt sé að frétta á sam­fé­lags­miðlum á rauðu ljósi.
… þú færð kvíða í flug­vél þegar þú þarft að svissa yfir á flug­vél­ar­still­ing­una.
… maki þinn og börn segja að þú sért meira í sím­anum en með þeim.
… þú hefur meiri áhuga á sím­anum en að tala við vini þína þegar þið hitt­ist.
… öll sam­skipti þín eru í formi skrif­aðra skila­boða í gegnum Netið.
… þú fríkar út þegar þú finnur ekki sím­ann.
… lífið þitt er orðið frekar lit­laust.

Síminn getur verið mik­ill tíma­þjófur.

Nærri fimm klukkutímar í símanum á dag

Fyr­ir­tækið Statista kann­aði síma­notkun fólks eftir löndum og birti nið­ur­stöður sínar í fyrra. Þar kom í ljós að Bras­il­íu­búar eyða mestum tíma í sím­anum á dag, eða 4 klukku­stundum og 48 mín­útum. Það er næstum því heil vinnu­vika.

Þá eyða Kín­verjar rúmum þremur tímum á dag í sím­ann og Banda­ríkja­menn ríf­lega tveimur og hálfri klukku­stund.

Bras­il­íu­búar,  4,48 tímar
Kín­verjar,  3,03 tímar
Banda­ríkja­menn,  2,37 tímar
Ítalir,  2,34 tímar
Spán­verjar,  2,11 tímar
Suður-Kóreru­búar,  2,10 tímar
Kana­da­búar,  2,10 tímar
Bretar,  2,09 tímar
Þjóð­verjar,  1,37 tími
Frakkar,  1,32 tími

Helmingur eyðir tveimur til þremur tímum í símanum á dag

Mannlíf lagði könnun fyrir 118 Íslend­inga um þeirra síma­notkun. Þar kom fram að rúm­lega fimm­tíu pró­sent, eða 61, sagð­ist vera í tvo til þrjá tíma í sím­anum á dag. Þá sögð­ust 28 manns, eða tæp­lega 24 pró­sent, eyða fimm til sjö klukku­stundum í sím­anum dag­lega. Rétt rúm­lega 20 pró­sent sögð­ust eyða núll til einni klukku­stund í sím­anum á degi hverjum á meðan 3,4 pró­sent eyddu átta klukku­stundum eða meira í sím­anum.

Flestir nota sím­ann til að skoða sam­fé­lags­miðla, eða rétt rúm­lega 94 pró­sent. Þá sögð­ust rétt rúm­lega 92 pró­sent nota sím­ann til að svara sím­tölum og smá­skila­boðum. Þegar spurt var hvaða smá­forrit í sím­anum væru mest notuð voru það Facebook, Instagram og Snapchat sem höfðu vinn­ing­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi