Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Yngsta dóttirin fór úr olnbogalið á brúðkaupsdaginn

Yngsta dóttirin fór úr olnbogalið á brúðkaupsdaginn
||

Vala Dögg Petr­u­dóttir gekk að eiga Trausta Má þann 13. ágúst árið 2016 á Ísafirði, en umgjörð brúð­kaups­ins var afskap­lega róm­an­tísk.

„Okkur lang­aði í síð­sum­ar­brúð­kaup þegar aðeins væri farið að dimma og extra kósí. Brúð­kaupið var haldið úti undir berum himni í miðbæ Ísa­fjarðar, á stað sem kall­ast Blóma­garð­ur­inn, afskap­lega fal­legum og gróð­ur­sælum stað. Ég var auð­vitað búin að panta rjóma­blíðu, eða að minnsta kosti logn. Óskin um lognið rætt­ist en ég fékk á móti rign­ingarúða. En þar sem þetta var ísfirska lognið eins og það kall­ast þá kom það ekki að sök, afskap­lega ljúft veður,“ segir Vala.

Hún Agnes sem fór úr lið.

Þau Trausti eiga þrjú börn saman en á sjálfan brúð­kaups­dag­inn þurfti að bruna með það yngsta, tveggja ára stúlku, á bráða­mót­tök­una. „Þeirri yngstu fannst mikið sport að hitta stóru frænkur sínar, önnur var komin með bíl­próf og fékk hún því að fara með þeim aðeins í bæinn að kíkja í búðir. Þær voru báðar að leiða hana þegar hún ákvað að róla sér á milli þeirra, hang­andi á hand­leggj­unum þegar eitt­hvað gerð­ist og greyið fór að hágráta. Þær komu strax með hana heim og hafði hún sofnað á leið­inni hálf­grát­andi. Þegar hún kom heim og vakn­aði var hún enn alveg ómögu­leg og vildi alls ekki rétta úr vinstri hand­leggnum. Hún hágrét ef eitt­hvað var reynt að rétta úr eða bara snerta hand­legg­inn. Þarna var mér alls ekki farið að lít­ast á blik­una. Maðurinn minn var far­inn til for­eldra sinna með son okkar og hár­greiðslu­konan mín var að detta í hús,“ segir Vala, sem fékk góðan og þarfan stuðn­ing frá systur sinni.

„Systir mín sem er hjúkr­un­ar­fræð­ingur ákvað að taka málin í sínar hendur og fór ásamt hinni systur minni upp á bráða­mót­töku til að láta kíkja á elsku barnið,“ segir hún, sem sjálf hafði engan tíma til að fara með.

Íhugaði að fresta brúðkaupinu

Skemmti­leg brúð­kaups­mynd.

„Ég var bara heima í hár­greiðslu því við máttum engan tíma missa. Klukkan var þarna um það bil þrjú og brúð­kaupið átti að byrja klukkan fimm. Ég var væg­ast sagt orðin stressuð því þetta hafði aldrei gerst áður og ég vissi ekki hvað var að, hvort hún var brotin eða eitt­hvað annað. Sem betur fer var þetta „bara“ það að hún fór úr oln­boga­lið og eftir þetta atvik þá hefur það gerst tvisvar sinnum svo við erum heldur betur reynsl­unni rík­ari. En ég íhug­aði í alvöru í smá­stund hvort við þyrftum að fresta brúð­kaup­inu. Mamma bauð sig strax fram til að vera heima með stelpuna ef það þyrfti en sem betur fer fór það ekki svo.“

Litla stúlkan jafn­aði sig fljótt og gat sem betur fer tekið virkan þátt í athöfn­inni og veisl­unni. „Um leið og lækn­ir­inn náði að smella henni í lið­inn var hún eins og ný og fann ekk­ert til lengur. Þannig að þegar hún kom heim frá bráða­mót­tök­unni var hún svo glöð því lækn­ir­inn var búinn að „laga hönd­ina“ eins og hún sagði sjálf. Hún fór því beint í hár­greiðslu afskap­lega spennt og glöð,“ segir Vala og bætir við að fjöl­skyldan geti hlegið dátt að þessu atviki núna.

„Já heldur betur. Þetta er bara ansi stór minn­ing í minn­inga­bank­ann,“ segir hún og hlær.

Þetta við­tal er hluti af stærra efni í nýjasta tölu­blaði Mannlífs um óvæntar upp­á­komur á brúð­kaups­dag­inn. Smelltu hér til að lesa Mannlíf á net­inu.

Myndir / Ágúst Atlason (gusti.is)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi