Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Róandi lyf algengust“

Val­gerður Rún­ars­dóttir, læknir, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga hjá SÁÁ og for­stjóri sjúkra­húss­ins Vogs, segir að mis­notkun lyf­seð­ils­skyldra lyfja hafi tíðkast í ára­tugi og sé hluti af vímu­efna­vanda þeirra sem leita til SÁÁ.

„Róandi lyf algengust“
|
Val­gerður Rún­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga hjá SÁÁ, segir meðal ann­ars að meðan fram­boðið á lyfjum sé mikið sé neyslan það einnig.

„Lyf­seð­ils­skyld lyf sem eru mis­notuð eru í þremur flokkum, öll ávana­bind­andi og geta valdið fíkn. Róandi-, svefn- og kvíða­still­andi lyf, sterk verkja­lyf og örvandi lyf. Öll þessi lyf eru meira áber­andi meðal þeirra sem koma í með­ferð nú en áður en þó eru ekki dramat­ískar breyt­ingar nema fíkn í sterku verkja­lyfin jókst umtals­vert síð­ustu tvö árin. Neyslan í dag er hjá flestum blönduð, áfengi, lyf og ólög­leg vímu­efni,“ segir Val­gerður. „Algeng­ast er þó að róandi lyfin séu með í för. Konur eru lík­legri til að nota róandi lyfin en karlar, önnur lyfja­neysla er svipuð hjá báðum kynjum. Eldri ein­stak­lingar hafa verið frekar í róandi og verkja­lyfjum, en þetta hefur breyst og und­an­farin ár sækir yngri kyn­slóðin mun meira í þessi lyf, jafn­vel þau yngstu, það er að segja undir tví­g­tugu. Notkun örvandi lyfj­anna er mest meðal yngri full­orð­inna, 20-40 ára, og hættu­leg­ast er þegar þessi lyf eru notuð í æð.“

Lyfin oft af göt­unni
Hefur orðið aukn­ing á ein­hverju til­teknu lyfi að und­an­förnu? „Við höfum tekið eftir aukn­ingu á xanax sem er eitt af róandi lyfj­unum og er ekki selt hér í apó­tekum, og síðan verkja­lyfið oxycodone sem þó er mun minna um. Það eru þó oft­ast  sömu lyfin sem ganga kaupum og sölum, sam­an­ber nöfnin hér fyrir ofan. Það má segja að ópíóíða­lyfin eða sterku verkja­lyfin séu hættu­leg­ust í inn­töku því þau geta haft lífs­hættu­legar afleið­ingar með önd­un­ar­hömlun sem er vegna áhrifa á heila. Önnur róandi lyf geta einnig verið lífs­hættu­leg í inn­töku sér­stak­lega með öðrum vímu­gjöfum eins og áfengi. Hins vegar er neysla met­hylp­heni­dates (ríta­líns) í æð og einnig mor­fín­lyfin í æð, mjög hættu­leg vegna þeirra lífs­hættu­lega fylgi­kvilla sem sprautu­fíkn fylgja. Bakt­er­íu­sýk­ingar, lost, ofskammtar og svo fram­vegis. Áhrif met­hylp­heni­date-lyfja á hvat­vísi, áhættu­hegðun, dóm­greind og fleira eru mjög alvar­legt mál. Örvandi neyslan á Íslandi er miklu meira vanda­mál heldur en verkja­lyfin,“ segir Val­gerður. „Þessi lyf eru til sölu á ólög­legan hátt, þau koma vænt­an­lega flest úr apó­tekum lands­ins, geta líka verið inn­flutt. Margir fá ein­hver lyf frá læknum en það er algeng­ara að fólk kaupi þau „á göt­unni“.“

„Þessi lyf eru til sölu á ólög­legan hátt, þau koma vænt­an­lega flest úr apó­tekum lands­ins, geta líka verið inn­flutt. Margir fá ein­hver lyf frá læknum en það er algeng­ara að fólk kaupi þau „á göt­unni“.“

Meðferð vanda­söm
Hún segir að afeitrun af þessum mis­mun­andi lyfjum geti verið vanda­söm og sé ólík fyrir hvern lyfja­flokk. „Margir eru í bland­aðri neyslu á þessum lyfjum og því full þörf á gát og end­ur­mati lyfja þessa daga sem afeitrun stendur. Hún er veitt í inniliggj­andi sjúkra­hús­dvöl á Vogi, af læknum og hjúkr­un­ar­fræð­ingum. Margir þurfa fram­lengda dvöl vegna þess­arar neyslu, sem getur tekið langan tíma að afeitra, allt upp í nokkrar vikur. Stundum á við sér­stök með­ferð fyrir þá sem eru með alvar­lega fíkn í ópíóíða­lyf, sterku verkja­lyfin, sem kall­ast við­halds­með­ferð og er veitt héðan frá göngu­deild Vogs.

Auk þess er mikil þörf á fram­lengdri með­ferð fyrir fólk sem sprautar í æð örvandi lyfjum, það þarf oft mikið umhald og stuðn­ing. Við höfum fjög­urra vikna eft­ir­með­ferð á með­ferð­ar­stöð SÁÁ á Vík á Kjal­ar­nesi sem er glæný, rúm­góð og býður kynja­skipta með­ferð með nokkrum sér­úr­ræðum. Það er meðal ann­ars gott rými fyrir eldri ein­stak­ling­ana sem voru lyfja­háðir og þurfa tíma til að jafna sig og læra að takast á við til dæmis svefn­vanda og kvíða­ein­kenni sem eru oft áber­andi í þessum hópi. Einnig höfum við fram­halds­dvöl í 6-18 mán­uði á með­ferð­ar­heim­il­inu Vin fyrir karl­menn sem komnir eru í slæma stöðu. Og svo er það göngu­deildin okkar í Von Efsta­leiti og á Akureyri.“

Hefur verið sama þróun í þessum málum hér og í nágranna­þjóð­unum? „Já, það eru áhyggjur af lyfja­neyslu og fíkn hjá nágranna­þjóðum. Í Banda­ríkj­unum kalla þeir það „far­aldur“ þar sem hátt í 100 manns deyja á dag úr ofneyslu sterkra verkja­lyfja.“

„Sam­fé­lagið mætti vel spyrja sig, hvers vegna lyf almennt. Við mörgum venju­legum ein­kennum og áhrifum lífs­ins. Til dæmis svefn­trufl­unum, verkjum, vægum kvíða­ein­kennum, öðrum geð­rænum ein­kennum sem mörgum hverjum má sinna með allt öðrum hætti en með lyfjum.“

Breyt­ingar á lífs­stíl í stað lyfja
Áhuga­vert er að velta fyrir sér hvaða sam­fé­lags­legu aðstæður og ástæður geta verið fyrir því að öll þessi lyf eru í umferð og að fólk mis­notar lyf­seð­ils­skyld lyf í auknum mæli. „Það er einnig umhugs­un­ar­vert hvernig umgengni er við lyf, má gefa með sér lyf­seð­il­skyld lyf? Svarið er nei, en sú er samt raunin. Sam­fé­lagið mætti vel spyrja sig, hvers vegna lyf almennt,“ segir Val­gerður ákveðin, „við mörgum venju­legum ein­kennum og áhrifum lífs­ins. Til dæmis svefn­trufl­unum, verkjum, vægum kvíða­ein­kennum, öðrum geð­rænum ein­kennum sem mörgum hverjum má sinna með allt öðrum hætti en með lyfjum. Hreyfing og ýmsar lífs­stíls­breyt­ingar geta haft gríð­ar­lega mikil áhrif og góð. Sál­fræði­með­ferðir eru til við mörgum kvillum og geta læknað og lagað mjög mikið með ein­stak­lingnum. Við lang­vinnum stoð­kerf­is­verkjum, (ekki bráðum verkjum eða í líkn­ar­með­ferð), á helst ekki að nota þessi mor­fín­skyldu verkja­lyf. Bestu raun gefa hreyf­ing, sjúkra­þjálfun, end­ur­hæf­ing, sál­fræði­með­ferð, iðju­þjálfun og fleira auk ef til vill bólgu­eyð­andi lyfja. Það er hugsað sem lausn á und­ir­liggj­andi og sam­hliða vanda, en ekki bara að slökkva á ein­kenn­inu sem er verk­ur­inn. Kannski erum við orðin of lyfja­trúar, eða þolum minna en áður. Síðan er það vand­inn af fíkn­inni. Þegar um er að ræða fíkn­sjúk­dóm eru þessi lyf eins og hvert annað vímu­efni og neyslan þá ekki stýrð af skyn­semi eða rökum. Þau koma þá inn í neysl­una almennt og verða hluti af henni, eins og raunin er. Ef nóg er fram­boðið, þá verður neyslan líka aukin,“ segir Val­gerður.

En hvað með önnur fíkni­efni, hefur orðið breyt­ing á neyslu þeirra? „Hún hefur ekki minnkað, neysla ólög­legra vímu­efna er sem aldrei fyrr.“

Lyf sem eru misnotuð skiptast í þrjá meginflokka

  1. Róandi- svefn- og kvíða­still­andi lyf: Oftast benzodiazepin-lyf sem hafa ótal sér­lyfja­heiti, meðal ann­ars tafil, rivotril, lexotan, diazepam og moga­don. Einnig svo kölluð z-lyf eins og imovane og stilnoct.
  2. Sterk verkja­lyf: Eru mor­fín­skyld lyf, veik­ari eru trama­dol og kodein, til dæmis park­ó­din, og sterk­ari eru meðal ann­ars contalgin, oxy-lyfin og fent­anyl.
  3. Örvandi lyf: Eins og amfetamín-töflur og met­hylp­heni­date, til dæmis ríta­lín og concerta.

Mikil umræða hefur verið að und­an­förnu um skað­semi lyf­seð­ils­skyldra lyfja. Dauðs­föllum af völdum mis­notk­unar þeirra hefur fjölgað gríð­ar­lega og grunur um að and­lát níu mann­eskja á þessu ári megi rekja til ofneyslu slíkra lyfja eða fíkni­efna. Mannlíf ræddi við einnig við Sigurð Rósant Júl­í­us­son, fyrr­ver­andi fíkil, um reynslu hans af hörðum heimi fíkni­efna og föður stúlku sem lést vegna ofneyslu, um þann vanda sem sam­fé­lagið stendur frammi fyrir.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi