Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Japanskir kokkar matreiða íslenskt hráefni

Hrefna Rósa Sætran kokkur og Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir kvik­mynda­gerð­ar­kona leiða saman hesta sína í nýjum mat­reiðslu­þáttum þar sem sjónum er beint að íslensku hrá­efni í með­förum jap­anskra kokka.

Japanskir kokkar matreiða íslenskt hráefni

„Við erum að skoða bæði hvernig Japanir höndla og mat­reiða íslenskt hrá­efni og hvað við getum lært af þeim, hittum þar­lenda kokka og lærum sígilda jap­anska mat­ar­gerð,“ lýsir Hrafn­hildur, þegar hún er spurð út á hvað þætt­irnir gangi og bætir við að rús­ínan í pylsu­end­anum verði svo þegar Hrefna töfri fram nýjan rétt úr íslensku eðal­hrá­efni, inn­blásnum af heim­sókn­inni til Japans. „Svo allir geti haft gagn og gaman af.“

En af hverju Japan? „Ein­fald­lega af því að í minni elda­mennsku hef ég sótt inn­blástur í jap­anska mat­ar­gerð,“ segir Hrefna. „En gagn­stætt Hrafn­hildi sem heim­sótti Japan fyrir 20 árum, þegar hún fór með banda­rísku tökuliði til Kýótó, þá hafði ég sjálf aldrei komið þangað og lang­aði að kynna mér jap­anska mat­ar­gerð til hlítar þótt ég hafi nú reyndar kunnað ýmis­legt. Þess vegna varð Japan fyrir val­inu.“

Þætt­irnir hafa hlotið heitið Smakk og verða sex tals­ins, teknir upp á Íslandi og í Japan en hver þáttur er helg­aður einum stað eða einu hrá­efni. Fiskur, núðlur, svína­kjöt, hval­kjöt, hrossa­kjöt og „heims­ins besta nauta­kjöt“ – Omi beef – verða þannig m.a. til umfjöll­unar og staðir á borð við Arn­ar­fjörð, Borg­ar­fjörð, Kjós, Reykja­vík og Vesta­manna­eyjar sóttir heim, en tökum er lokið í Japan þar sem þær Hrefna og Hrafn­hildur heim­sóttu Tókýó, Yokohama, Kawasaki, Osaka, Kýótó og eyj­una Okinawa.

Spurðar hvort eitt­hvað hafi komið á óvart þar þá segj­ast þær hafa orðið hissa á því hversu hreinar Tókýó og Kýótó séu og hversu ólíkir inn­byrðis allir stað­irnir séu. Þannig sé t.d. Kýótó gam­al­dags og sjar­mer­andi á meðan Tókýó sé spenn­andi og „hröð“. „Síðan kom mér á óvart hversu mikið er lagt upp úr mat og mat­ar­gerð hvar­vetna,“ segir Hrafn­hildur. „Alls staðar eru mat­sölu­staðir, veit­inga­hús og götu­matur og hægt að fá úrvals mat ekki bara á veit­inga­stöðum heldur líka í mörk­uðum eins og Seven Eleven og jafn­vel úr sjálf­sölum. Auk þess leggja Japanir mikið upp úr heil­brigðum lífs­stíl og hollum mat og reyna að ná því besta úr hrá­efn­inu.“

„Já, virð­ingin fyrir hrá­efn­inu er mögnuð. Á veit­inga­stöðum eru t.d. ekki beint mat­seðlar heldur boðið upp á mat sem er eld­aður upp úr fers­kasta hrá­efn­inu hverju sinni og mat­ar­gerðin er lituð af mörg hund­ruð ára gömlum aðferðum og hefðum. Ætli virð­ingin fyrir hrá­efn­inu og þekk­ingin á því sé kannski ekki helsti mun­ur­inn á mat­ar­gerð okkar Íslend­inga og Japana.“

„Já, virð­ingin fyrir hrá­efn­inu er mögnuð,“ tekur Hrefna undir. „Á veit­inga­stöðum eru t.d. ekki beint mat­seðlar heldur boðið upp á mat sem er eld­aður upp úr fers­kasta hrá­efn­inu hverju sinni og mat­ar­gerðin er lituð af mörg hund­ruð ára gömlum aðferðum og hefðum. Ætli virð­ingin fyrir hrá­efn­inu og þekk­ingin á því sé kannski ekki helsti mun­ur­inn á mat­ar­gerð okkar Íslend­inga og Japana,“ segir hún hugsi.

Hrafn­hildur bendir á að rætur jap­anskrar mat­ar­gerðar liggi þó á svip­uðum stað og hjá Íslend­ingum. Þjóð­irnar eigi þannig sam­eig­in­legt að nýta allt sem til fellur af skepn­unni og þar af leið­andi hafi Jap­an­irnir sem þær ræddu við t.d. ekki þótt neitt athuga­vert við þá til­hugsun að borða punga eða svið og fund­ist spenn­andi að fá að smakka íslensku þorsklifr­ina og brenni­vínið sem þær höfðu með­ferðis.

Þær segja að þó að ferða­lagið til Japans hafi verið langt, níu tíma mis­munur og vissir tungu­mála­örð­ug­leikar þá sé gaman að heim­sækja landið og japönsk menn­ing, ekki síst mat­ar­menn­ing, sé ótrú­lega áhuga­verð. Þær hlakka til að gefa lands­mönnum tæki­færi til að skyggn­ast inn í þessa for­vitni­legu menn­ingu. „Síðan verður ekki síður spenn­andi að sýna hvað er að ger­ast á Íslandi,“ segir Hrafn­hildur, „en við ætlum okkur að heim­sækja þá sem eru að grúska í ræktun og búskap til að finna allra besta fáan­lega hrá­efni á land­inu.“

„Þetta á eftir að verða ótrú­lega skemmti­legt,“ segir Hrefna og brosir.

Þætt­irnir verða sýndir á RÚV í haust en fylgj­ast má með verk­efn­inu á Instagram undir #smakk_japan.

Mynd: Hrefna Rósa Sætran, til vinstri, og Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir vinna að nýjum mat­reiðslu­þáttum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi