Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Axlapúðar, búktal og árumyndir

Axlapúðar, búktal og árumyndir
|||

Hélt veisluna hjá
Sálarrannsóknarfélaginu

Jóel Sæmunds­son leik­ari segir ferm­ing­ar­dag­inn sinn vera eft­ir­minni­legan fyrir ýmsar sakir. Til dæmis gleymi hann seint athöfn­inni í kirkj­unni.

„Ég týndi sálma­bók­inni minni,“ segir hann. „Þetta var merkt sálma­bók og ég týndi bæði henni og öllum skeytun-um, móður minni til mik­illar gleði.“ Þetta hafi ekki verið ábæt-andi ofan á stressið því hann hafi ekki þekkt hina krakk­ana sem voru að ferm­ast og verið sá eini í hópnum sem þurfti að fara með vers, sem var fer­lega pín­legt þar sem hann var í rosa­legum mútum.

Veislan eftir á hafi þó toppað allt en hún var haldin í húsa­kynnum Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lags­ins.

„Við fjöl­skyldan bjuggum á Þórshöfn en ákváðum að halda ferm­ing-una í Reykja­vík þar sem ættin bjó meira og minna öll á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þetta var eini sal­ur­inn sem var laus,“ útskýrir hann og kveðst aldrei gleyma áru­mynd­unum og kristöl­unum, sem héngu þar niður úr loft­inu. „Þetta var algjört bíó!“

Að öðru leyti hafi dag­ur­inn gengið vel fyrir sig og sveita­strák­ur­inn fengið flottar ferm­ing­ar­gjafir.

„Ég fékk m.a. pen­ing, úti­legu­búnað og úr frá ömmu sem mér þykir mjög vænt um. Svo gáfu mamma og -pabbi mér fyrstu ferð­ina í körfu­bolta­búðir í Banda­ríkj­unum þaðan sem ég á afskap­lega góðar minn­ingar.“

Hvaða ráð viltu gefa krökkum sem eru að fara að ferm­ast?

„Passið ykkur að kaupa ekki ferm­ing­ar­föt sem eru í tísku akkúrat núna. Þau gætu orðið til þess að ljós­mynd­irnar af ykkur verða hall­æris­legar seinna meir. Setjið svo pen­inga­gjafir inn á læsta banka­bók. Ég veit að það hljómar leið­in­lega en það marg­borgar sig því þegar þið verðið eldri þá gætuð þið til dæmis átt útborgun í fyrstu íbúð­ina.“

Skemmti með búktali

Steindór Grétar Jónsson, blaða­maður og sviðs­lista­maður, fermd­ist í Nes­kirkju árið 1999 og segir veisl­una, sem var haldin í Garða­bænum heima hjá ömmu hans og afa, eitt það minni­stæð­asta við dag­inn.

„Aðallega af því ég píndi Finn vin minn til að vera með atriði. Hann var ágætur búktal­ari og mér fannst ekki annað hægt en að gest­irnir nytu góðs af. Þannig að ég neyddi hann til að sýna og nota mig sem brúðu,“ minn­ist hann hlæj­andi og bætir við að Finnur hafi gef­ist upp á draumnum um að verða búk-tal­ari eftir þetta.

Spurður hvað hann hafi fengið í ferm­ing­ar­gjöf segir Steindór for­eld­rana hafa gefið sér fjöl­skyldu­ferð til Flórída um sum­arið og PlayStation-leikja­tölvu.

„Annars voru krakk­arnir að met­ast um hver hafi fengið mestan pen­ing og -örugg­lega ein­hverjir sem lugu til að hljóma meira töff,“ segir hann kím­inn. Ein gjöf hafi þó staðið upp úr en það hafi verið Jeremy Klein Birdhouse-hjóla­bretti með mynd af lif­andi pylsu, sem hann fékk frá ömmu sinni og afa.

„Sú gjöf breytti lífi mínu því næstu ár var ég skeit­ari, sem hafði áhrif á heims­mynd mína.“

Var eitt­hvað við dag­inn sem kom á óvart?

„Nei, ekki nema hvað oblátan var bragð­laus. Vona að þær hafi breyst á 19 árum, það hlýtur að vera búið að pip­ar­húða þær.“

Áttu ein­hver góð heil­ræði handa krökkum sem eru að fara að ferm­ast núna?

„Nei, en ef þau eiga ein­hver heil­ræði handa mér þá væru þau vel þegin. Ég veit ekk­ert hvað ég er að gera.“

Eins og að giftast einn

Fjöl­miðla­konan Júlía Margrét Alex-and­ers­dóttir fermd­ist á köldu vori í Árbæj­ar­kirkju og seg­ist muna eftir athöfn­inni eins og hún hafi gerst í gær.

„Ég man eftir því að við ferm­ing­ar­systk­inin biðum spennt eftir því hvort ein­hver myndi gleyma vers­inu sínu. Svo skoð­uðum við hvert annað í krók og kring, í hverju bekkj­ar­syst­urnar og -bræð­urnir voru, hverjir höfðu fengið að klína á sig and­lits­máln­ingu og gera eitt­hvað fríkað við hárið á sér. Hverjir höfðu fengið að sleppa því að vera í hvítum fötum og voru jafn­vel útbúnir eins og þeir væru að fara á ball í Árseli – þá öfund­aði maður,“ rifjar hún upp og hlær.

Sjálf klædd­ist hún hvítri dragt, jakka með léttum axlapúðum og hné–síðum stutt­buxum. „Stutt­buxur voru þá í tísku en á mínu heim­ili þótti það um of og hné­síðar var milli­veg­ur­inn. Um morg­un­inn fór ég svo í hátíð­lega greiðslu á stofu. Þegar ég skoða myndir af mér eftir á og öðrum ferm­ing­ar­börnum eru mörg okkar í þessum drögtum búin út eins og við séum að fara að sitja í stjórn fyr­ir­tækja en ekki að ferm­ast.“

Eftir athöfn­ina var veisla haldin í sal fyrir ofan Hreyfil á Grens­ás­vegi þangað sem ætt­ingjum og vinum Júlíu var boðið.

„Veislan sjálf þar sem athyglin fór af meira en 30 ferm­ing­ar­börnum á mig eina var hálf­gert sjokk. Eins og að gift­ast einn því í brúð­kaupi er þó alla­vega brúð­gumi sem tekur athygl­ina með þér. Þarna á maður að skera kök­una einn og tala eitt­hvað. Ég held ég hafi meira að segja spilað á fiðlu. Ég fíl­aði nú ekki að vera svona mið­dep­ill og minnir að ég hafi verið fegin í lok dags.“

Júlía segir að þessum tíma hafi verið hneyksl­ast tals­vert á börnum sem fengu sjón­vörp og víd­eótæki í ferm­ing­ar­gjöf. Í dag sé enn verið að hneyksl­ast á því þegar börn fá ofur­dýrar ferm­ingar gjafir en hún telur að umræðan sé nokkurn veg­inn alltaf sú sama.

„Kannski var umstangið í kringum ferm­ing­ar­börnin útlits­lega minna þá,“ segir hún hugsi. „En ég er ekki svo viss. Að minnsta kosti fór eng­inn sem ég man eftir í nagla- og fót­snyrt­ingu fyrir ferm­ingu en vissu­lega þegar maður rifjar þetta upp þá voru sumar stelpur sendar í ljós áður, fóru kannski í gegnum heilt 10 tíma kort á mán­uði fyrir ferm­ing­ar­dag­inn.“

Spurð hvort hún eigi heil­ræði handa til­von­andi ferm­ing­ar­börnum svarar hún.

„Þið eruð svo heppin að það er til Facebook svo mitt heil­ræði er: Kynnið ykkur hverjum er boðið í veisl­una, lærið nöfn ömmu­systra og -afa og lærið að tengja nöfnin við and­lit þeirra af myndum ef þetta eru ætt­ingjar sem þið hittið aðeins við svona til­efni. Það er gaman að geta þakkað fyrir sig og vitað við hvern maður talar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi