Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innanflokksátök bitna á starfinu

Innanflokksátök bitna á starfinu
2018

Áslaug Frið­riks­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fékk ekki sæti á lista flokks­ins fyrir kosn­ingar í vor, eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir Eyþóri Arn­alds í odd­vita­kjöri. Hún seg­ist eiga nóg inni í stjórn­mál­unum og stefnir ótrauð áfram.

„Núna er maður bara að klára þetta kjör­tíma­bil, það er ekki alveg búið, það eru tveir, þrír mán­uðir eftir,“ segir Áslaug Frið­riks­dóttir, frá­far­andi borg­arfull­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Áslaug verður ekki á lista flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­arkosn­ing­arnar í maí eftir að hafa lotið í lægra haldi fyrir Eyþóri Arnalds í odd­vita­kjöri í jan­úar. Í kjöl­farið vann kjör­nefnd að upp­still­ingu í önnur sæti þar sem til­laga um hana í 2. sætið var felld í kosn­ingu í nefnd­inni. „Ég sótt­ist eftir því að taka 2. sætið á list­anum en það var fellt.“ Henni var ekki boðið sæti neðar á list­anum. Það liggur því fyrir að hún mun fara í önnur störf eftir kosn­ing­arnar.

„Ég held að ég taki mér smá­frí og svo fer ég bara að huga að nýjum verk­efnum. Það er rosa­lega mikið að breyt­ast hjá mér í einu. Ég er að skilja, ætla að fara að flytja og við þetta bæt­ist að skipta um vinnu. Þannig að það verður mikið að ger­ast hjá mér næstu mán­uði,“ segir Áslaug.

Hún segir samt að það sé ekki stór­mál að hætta í borg­ar­stjórn, stjórn­mála­menn viti aldrei hvað verður á næsta kjör­tíma­bili og séu með­vit­aðir um það að allt geti breyst. „Maður getur ekki gengið að neinu vísu í póli­tík og þarf auð­vitað alltaf að sækja umboð kjós­enda sinna.“

Ýtt út

Áslaug ætlar að taka sér smá frí frá stjórn­málum.

Áslaug sótt­ist eftir því að halda áfram í borg­ar­mál­unum fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hún lenti í öðru sæti í odd­­vita­­kjör­­inu en var ekki boðið að taka sæti á lista. Margir voru hissa á því að aðeins einn núver­andi borg­ar­full­trúa, Marta Guð­jóns­dóttir, fengi sæti á list­anum en bæði Áslaug og Kjartan Magn­ús­son væru þar hvergi sjá­an­leg.

„Ég varð fyrir von­brigðum með þau vinnu­brögð sem áttu sér stað við upp­still­ingu list­ans. Um leið og það var tek­­in ákvörðun um að fara ekki í almennt próf­kjör heldur odd­vita­­kjör þá vissi ég að útkoman yrði tví­sýn fyrir mig. Þar sem þessi leið hafði ekki áður verið farin voru leik­reglur ekki skýrar og því mikil áhætta að gefa kost á sér í leið­toga­kjör­inu. Hins vegar held ég að við Kjartan höfum bæði metið það svo að þátt­taka í leið­toga­próf­kjör­inu myndi ekki bitna á mögu­leika okkar á því að skipa sæti á list­anum enda var ítrekað lögð áhersla á að þarna væri aðeins verið að velja þann sem myndi skipa fyrsta sætið. Einnig var ljóst að nægt rými var til að til að bæta við hóp­inn. Við vorum bara þrjú eftir borg­ar­full­trúar flokks­ins og lík­legt að hóp­ur­inn myndi stækka með fjölgun borg­ar­full­trúa. Ég get því ekki tekið undir þær skýr­ingar for­manns kjör­nefndar að nið­ur­staða leið­toga­próf­kjörs­ins þýddi að við Kjartan hefðum ekki haft stuðn­ing flokks­manna til að vera á list­anum því kallað væri eftir meiri end­ur­nýjun.“

Áslaug prýðir for­síðu nýjasta heftis frí­blaðs­ins Mannlífs. Hægt er að lesa við­talið í heild sinni með því að lesa net­út­gáfu Mannlífs, en við­talið allt verður einnig hægt að lesa á vef­síðu Kjarnans.

Texti / Fanney Birna Jóns­dóttir
Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Elsa Krist­ins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi