Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mannlegt eðli og tuðþörf alltaf söm við sig

Mannlegt eðli og tuðþörf alltaf söm við sig
|||

Fjöl­miðla­menn­irnir Haukur Viðar Al­­freðs­son og Kjartan Guð­munds­son ­halda úti hlað­varp­inu Í frjett­um er ­þetta elzt þar sem þeir rifja upp gamlan og á köflum kostu­legan frétta­flutn­ing.

„Við vildum bara koma með aðra nálg­­un á „fréttir vik­unnar“, „efst á baugi“, „í viku­lok­in“–sam­an­tekt­irnar sem allir þekkja af öllum miðlum,“ segir Haukur þegar þeir eru beðnir um að lýsa hlað­varp­inu í stuttu máli. „Fréttir eru í eðli sínu frekar ein­nota,“ heldur hann áfram. „Þær úreld­ast á u.þ.b. sól­ar­hring og sjást aldrei aftur, nema við eitt­hvað grúsk. Svo hefur blaða­mennska breyst gríð­ar­lega í gegnum tíð­ina, ásamt orð­færi blaða­manna og við­­mæl­enda. Það er gaman að rifja það upp.“

Bítlarnir og karókí

Í fyrsta þætt­inum fjöll­uðu Hauk­­ur og Kjartan um Bítla­æðið á 7. ára­tug síð­ustu aldar og umfjöll­un íslenskra fjöl­miðla um það. Kjartan segir að það hafi verið fróð­legt að sjá hvernig var skrif­að um þessa fjóra „lubbak­arla“ frá Liverpool og hvernig þeir trylltu ung­menni þess tíma, sér í lagi „telpu­­krakk­ana“ eins og það er orðað í einni gam­alli ­grein.

„Svo höfum við fjallað um Frosta­vet­ur­inn mikla 1918 og hörm­ung­arnar sem þá áttu sér stað,“ lýsir hann. ­„Næsti þáttur segir svo frá inn­reið kara­ókís­ins til Íslands í upp­hafi 10. ára­tug­ar­ins. Í einni af fyrstu frétt­unum um kara­ókíið stakk ein­hver blaða­mað­ur­inn upp á að það yrði nefnt „með­hjálp­ar­inn“ á íslensku, en sú íslenskun náði aug­ljós­lega ekki góðri fót­festu.“

Spurðir hvaðan hug­myndir að við­fangs­efn­unum komi svara þeir að á meðan aðrir djamma sitji þeir félag­ar­anir heima hjá sér á síð­kvöldum og skoði Tímarit.is. „Þannig að við erum með langan lista af umfjöll­un­ar­efnum sem stækkar í sífellu.“

Kjartan bætir við að það sé hreint út sagt stór­kost­leg skemmtun að fara yfir þennan gamla frétta­flutn­ing og gaman að sjá hversu margt hefur breyst, en um leið breyt­ist ekk­ert. „Les­enda­bréf blaða­nna eru til að mynda sér­­kapí­­tuli út af fyrir sig. Áhersl­urn­ar breyt­ast kannski milli ára og ára­tuga en umkvört­un­ar­efnin eru í meg­in­at­riðum þau sömu í dag og fyrir hund­rað árum. Mannlegt eðli og tuð­þörf eru söm við sig.“

Saga og þróun handklæðisins

En hvernig kvikn­aði hug­mynd­in að hlað­varp­inu?

„Við höf­um eytt ómældum tíma og orku í að spjalla saman á Netinu í mörg ár um allt og ekk­ert og þykir gaman að tala saman og sýna hvor öðr­um alls konar ­hluti, ekki síst gamlar frétt­ir, eins lúða­legt og það nú er,“ viður­kennir Kjartan. „Þegar hug­mynd­in að hlað­varpi kvikn­aði datt okkur fyrst í hug að gera langa seríu um sögu og þróun hand­klæð­is­ins á Vestur­lönd­um, en ákváðum svo að ­víkka pæl­ing­una aðeins út og hafa öll áhuga­verð frétta­mál síð­ustu aldar eða svo undir.“

Eruð þið miklir áhuga­menn um sögu?

Eða teng­ist þetta kannski frekar áhuga á fjöl­miðl­um? „Svo ég tali nú bara fyrir sjálfan mig,“ segir Haukur,

„snýst þetta meira um fram­setn­ingu at­burð­anna heldur en atburð­ina sjálfa. Ef Bítla­þátt­urinn hefði til dæmis bara fjallað um sögu Bítlanna hefði hann eflaust verið bara eins og hver annar Bítla­þáttur, en ­þegar fók­us­inn var kom­inn á umfjöllun íslenskra fjöl­­miðla um fyr­ir­bærið á sín­um tíma, við­brögð ­íslenskra ung­menna og fleira fannst mér það fyrst orðið áhuga­vert.“

En hvar nálg­ast maður hlað­­varp­­ið?

„Þátt­ur­inn er kom­­inn í þessi helstu öpp og við miðum við 2-3 þætti á mán­uði,“ svarar hann. „Það tekur mis­lang­an tíma að und­ir­búa hvern þátt og við viljum ekki setja okkur ein­hverja dedd­læn sem við stöndum svo ekk­ert við. En við lofum að vera nokkuð ­dug­legir.“

Uppáhaldshlaðvörp

„Ég er í raun alæta á umfjöll­un­ar­efni ef hlað­varp­arnir sjálfir eru skemmti­legir. Þá get ég alveg hlustað á þá röfla enda­laust um eitt­hvað sem ég hef jafn­vel hvorki hunds­vit né áhuga á. En af föstum liðum eru Marc Maron og Bill Burr mínir menn. Hálf­gerðir sík­ópatar að röfla um ekki neitt.“ – Haukur

„Ég hlusta aðal­lega á fót­bolta- og körfu­bolta­hlað­vörp þar sem ég er mik­ill áhuga­maður um hvort tveggja. Það er svo mikið af þessum sport­hlað­vörpum í gangi að það er í raun full vinna að fylgj­ast með, en þrjú sem ég reyni að missa alls ekki af eru Liverpool-podcastið Anfield Wrap, Inn­kastið hjá Fótbolta.net ogLa­kers Nation, sem fjallar um NBA-liðið Los Angeles Lakers.“ – Kjartan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi