Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lónsöræfi innblástur nýrrar tískulínu

Lónsöræfi innblástur nýrrar tískulínu
|

„Ég reyni að hafa kven­leika, þæg­indi og áreynslu­leysi í fyr­ir­rúmi í bland við skemmti­leg mynstur og liti svo ég myndi segja að þetta væru eins konar hvers­dags­föt í fínni kant­inum, kven­fatn­aður mest­megnis úr silki og ull,“ segir Borg­hildur Gunn­ars­dóttir, sem hannar undir merk­inu Milla Snorra­son, um lín­una sem hún frum­sýndi Hönn­un­ar­Mars, þá sjöttu sem hún sendir frá sér.

Línan kall­ast Illi­kambur og er að sögn Borg­hildar tals­vert meiri lita­gleði í henni en í fyrri línum sem hún hefur sett á markað. Hug­mynd­ina að henni segir hún hafa kviknað þegar hún fór með vinum sínum í fjög­urra daga ­göngu inn í Kollu­múla í Lónsör­æfum austan við Vatna­jökul á síð­asta ári. Hún hafi tekið margar ljós­myndir í ferð­inni enda sé svæðið eitt það lit­rík­asta og fal­leg­asta á land­inu og hafi mynd­irnar veitt sér inn­blást­ur að lit­ríku mynstri lín­unnar. Heitið Illi­kambur vísi einmitt í brattan kamb á leið­inni.

Afsökun fyrir löngum göngum

Þegar hún er spurð hvort hún geri mikið af því að sækja inn­blástur í íslenska nátt­úru svarar Borg­hildur því hiks­ta­laust ját­andi. Ef eitt­hvað er sé það orðið að eins­konar reglu.

„Mér finnst það ágætis afsök­un fyrir því að fara í langa göngu á hverju sumri,“ segir hún. „For­­eldrar mínir ólu það svo­lítið upp í okkur systr­unum að kunna að meta umhverfið, þannig að ég virki­lega nýt þess að gleyma mér í að skoða nátt­úr­una.“

Borg­hildur hannar allar sínar lín­ur í anda svo­kall­aðrar „slow fas­hion“, sem þýðir að hún fram­leiðir árlega eina línu og er nýja línan því ekki árs­tíð­ar­bundin. Líkt og fyrri línur verður hún fram­leidd í Evrópu en ástæðan er sú að Borg­hildur kveðst vilja vita hvaðan fötin koma, hverjir fram­leiði þau og við hvaða aðstæður. Stefnt sé að því að fyrstu flíkur lín­unnar verði fáan­legar í Kiosk strax í vor.

Skart í takt við línuna

Þá leit­aði Borg­hildur eftir sam­starfi við vöru­hönn­uð­inn Hönnu Dís Whitehead, sem vann skart í takt við lín­una

„Ég leit­aði eftir sam­starfi við Hönnu Dís því mér finnst verkin hennar svo flott. Fyrir utan að hún býr fyrir austan ekki svo langt frá Lónsör­æfum þannig að hún þekk­­­ir svæðið vel og fannst áhuga­­­­vert að vinna skart­gripi út frá mynd­­­unum mínum,“ lýsir Borg­­hildur og ­seg­ist hlakka til að sýna útkom­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi