Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Safnar pening fyrir veiku tíkina Pöndu

Safnar pening fyrir veiku tíkina Pöndu
|||||

„Ég held að ég sé háð­ari hund­inum en hún mér. Það er mjög sér­stakt sam­band á milli okkar og hún á hjarta mitt þessi litla dúlla,“ segir Kolbrún Matth­í­as­dóttir sem er búsett í Noregi. Dætur Kol­brúnar hófu nýlega söfnun á norsku hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unni Spleis fyrir Chihuahua-tík­inni hennar Kol­brúnar, Pöndu. Panda veikt­ist alvar­lega skyndi­lega fyrr í þessum mán­uði og hefur Kolbrún ekki efni á læknis­kostn­aði fyrir tík­ina.

Panda með upp­á­halds­bangs­ann sinn.

„Panda er sex ára. Hún er rosa­lega hress og spræk. Alveg meiri­háttar hundur og með frá­bæran per­sónu­leika. Ég og hún eigum mjög sniðuga sögu saman,“ segir Kolbrún, en hún lenti í alvar­legu vinnu­slysi árið 2012. Þá var hún aðeins búin að eiga Pöndu í tvo mán­uði.

„Ég var að vinna á sjúkra­bíl hér í Noregi og var að keyra til að ná í sjúk­ling með síren­urnar rauð­blikk­andi. Allt í einu kemur bíll á móti en á þessum vegi var ómögu­legt að mæta bíl. Ökumaður bíls­ins tók ekki til­lit til þess að ég væri á sjúkra­bíl með síren­urnar á og bara keyrði á móti mér. Ég þurfti að velja hvort ég ætti að keyra út af, keyra á bíl­inn eða á fjall. Ég ákvað að keyra út af og féll fjöru­tíu metra niður. Við það eyði­lagði ég lík­ama minn og hef verið að berj­ast við eft­ir­köst slyss­ins síðan. Panda var bara hvolpur og þurfti auð­vitað athygli, en hún pass­aði uppá mömmu sína og dró mig á lappir á ný,“ segir Kolbrún.

Lét vita af blóðtappa í hjarta og lungum

Tveimur árum síðar, eða árið 2014, veikt­ist Panda. Þá var hún send í aðgerð á dýra­spít­ala en ekk­ert fannst að henni nema sýk­ing í þörmum og Panda bragg­að­ist fljótt. Í októ­ber sama ár fékk Kolbrún blóð­tappa í hjarta og lungu og telur víst að tíkin hafi bjargað lífi sínu.

„Hún lét mig vita að ekki væri allt með felldu. Hún gróf og gróf í brjóst­kass­ann á mér og hopp­aði við­stöðu­laust. Þá stóð ég upp og náði varla and­anum og taldi best að leita til læknis. Þá lenti ég á gjör­gæslu á sjúkra­hús­inu. Þegar ég kom heim, beið Panda eftir mömmu sinni og pass­aði uppá að ég færi út að ganga og tæki lyfin mín. Hún var alltaf að ýta á eftir mér að fara út og hreyfa mig og ég fékk fljótt miklar harð­sperrur,“ segir Kolbrún og hlær. Aftur ári síðar lét Panda eig­anda sinn vita að eitt­hvað amaði að.

„Ég ákvað að hunsa hennar við­var­anir því ég var orðin svo þreytt á læknum og sjúkra­húsum. En Panda hélt áfram og lét mig ekki í friði. Loks sögðu dætur mínar mér að fara til læknis út af því hvernig Panda lét og þá var ég komin með blóð­tappa í lifr­ina sem lok­aði alveg á blóð­flæði til lifr­innar. Ég var í sex vikur í burtu á sjúkra­húsi og hélt að ég myndi deyja, svo háð var ég hund­inum,“ segir Kolbrún.
Panda með systur sinni, Schaefer-hund­inum Cleopötru.

„Hún er líflínan mín“

Fárveik Panda.

Svo var það núna í mars að Panda veikt­ist alvar­lega, án nokk­urrar við­vör­unar.

„Laug­ar­dag­inn 3. mars hætti hún að drekka en hún hafði þá borðað síð­ast 1. mars og náði síð­ast að kúka aðfara­nótt föstu­dags­ins. Eftir það fór hún rosa­lega hratt niður á við. Ég hringdi á lækni á sunnu­deg­inum sem ákvað að koma hingað heim til okkar og kíkja á hana. Dýra­lækn­ir­inn vildi nefni­lega ekki stressa Pöndu upp með spít­ala­heim­sókn því hann veit hvaða þýð­ingu hún hefur fyrir mig. Hún er líf­línan mín,“ segir Kolbrún. Þegar lækn­inn bar að garði var Panda þjáð af vökva­skorti og þurfti að svæfa hana til að gefa henni lax­er­olíu í enda­þarm, vökva í æð og verkja­lyf. Lækn­ir­inn hélt að tíkin væri bara stífluð, en um kvöldið vakn­aði Panda með sára verki.

„Það mátti ekki koma við hana. Hún grenj­aði og grenj­aði. Svo datt hún út og inn og á tíma­bili vissi ég ekki einu sinni hvort hún væri á lífi. Í sjö klukku­tíma gekk ég um gólf með hana eins og lítið barn og reyndi allt sem ég gat til að láta henni líða betur, en hún náði ekki að reka við. Ég sá að maginn hennar var að blása upp þannig að ég fór með hana út og ætl­aði að leyfa henni að labba aðeins, en það þýddi ekki neitt. Hún vildi ekk­ert labba vegna verkja,“ segir Kolbrún.

Grét og hélt að hún væri farin

Næsta dag var Panda lögð inn á dýra­spít­ala, hún svæfð á nýjan leik og rön­teng­myndir teknar af henni. Þá sáu dýra­læknar að ristill­inn hennar var fullur af lofti. Í són­ar­myndum kom fram að engin virkni var í smá­þörm­unum hennar og höfðu læknar áhyggjur af því. Hún var sett á sýkla­lyf og fleiri lyf og send aftur heim sof­andi með vökva í æð.

„Hún vakn­aði mjög rólega og fínt um nótt­ina og byrj­aði á að reka aðeins við. Hún reyndi að skrölta aðeins af stað og var að ranka við sér fram á þriðju­dags­morgun. Á mið­viku­dag byrj­aði hún aðeins að taka við mat og verða Panda aftur. En á fimmtu­deg­inum fór hún aftur niður á við. Ég sat bara og grét og hélt að hún væri að fara. Ég vissi ekki hvað ég gat gert fyrir hana meira.“

Á föstu­deg­inum var Panda orðin mjög slæm og þurfti Kolbrún að sprauta uppí hana vatni á klukku­tíma­fresti. Hún eyddi laug­ar­deg­inum á dýra­spít­ala þar sem hún var svæfð í þriðja sinn, skoðuð í bak og fyrir, sýni send í ræktun og tíkin sett á mor­fín. Það kvöld var Kolbrún send heim með alls kyns lyf og sagt að vakta tík­ina í tvo sól­ar­hringa, sem hún gerði með hjálp dóttur sinnar og tengda­sonar.

Panda hefur átt við erfið veik­indi að stríða.

„Hún vakn­aði um klukkan 2.30 um nótt­ina og hætti ekki að væla fyrr en hún náði að skakklapp­ast í fangið á mér. Við reyndum að gera allt til að hjálpa henni að losa þetta loft og heyrðum prump reglu­lega. Þá gaus upp þessi við­bjóðs­lega lykt úr henni en okkur fannst þetta frá­bært því það þýddi að þarm­arnir voru að fara aftur í gang. Við von­uðum bara að hún myndi kúka, hvar sem er, þess vegna á okkur,“ segir Kolbrún og hlær.

Skrýtinn kúkur eins og þungt hlaup

Á sunnu­deg­inum var Panda hita­laus og dag­inn eftir náði hún loks­ins að kúka.

„Þá kemur þessi skrýtn­asti kúkur sem ég hef á ævi minni séð. Hann var eins og þungt hlaup. Ég þurfti að taka sýni úr saurnum, sem tókst fyrir rest. Liturinn var óhugna­legur, svona gul­grænn. En mikið svaka­lega vorum við glöð að sjá þennan stóra hlunk koma út úr henni.“

Síðan þá hefur Panda bragg­ast heil­mikið, er búin að hafa hægðir aftur og búin að fara í göngut­úra með eig­anda sínum. Hins vegar eru lækna­reikn­ing­arnir komnir upp í tíu þús­und norskar krónur, eða tæp­lega 130 þús­und íslenskar krónur. Það er of stór biti fyrir Kolbrúnu, þar sem veik­indin komu eins og þruma úr heið­skýru lofti og hún hafði alls ekki reiknað með þeim. Kolbrún er á örorku­bótum eftir fyrr­nefnt vinnu­slys og má lítið út af bera í heim­il­is­bók­hald­inu. Því ákváðu dætur hennar að hefja hóp­fjár­mögnun á norsku síð­unni Spleis til að eiga fyrir lækna­kostn­aði fyrir Pöndu. Panda er ekki tryggð.

„Ég er svo þakk­lát öllum þeim sem vilja og geta hjálpað okkur. Við getum öll lent í því að dýrin okkar veik­ist og að við stöndum ráða­laus frammi fyrir því. Mínir ynd­is­legu dýra­læknar senda mér alltaf reikn­inga eftir á því þeir þekkja okkur mjög vel. Þeir þekkja Pöndu og vita að hún má ekki fara, því þá fer ég líka. Ég vil geta borgað þessa reikn­inga því lækn­arnir á spít­al­anum okkar, Eid Vet­er­inær­kontor, björg­uðu lífi hennar. Í vik­unni ætla ég með Pöndu til þeirra með blóm því þessir ynd­is­legu dýra­læknar eru ástæðan fyrir því að Panda er á lífi í dag,“ segir Kolbrún, sem að vonum er upp­gefin eftir mikið álag síð­ustu daga.

Hér má sjá mynd­band af Pöndu þegar hún var sem verst:

Vill ekki sjá að hundurinn þjáist

Panda er alla jafna mjög lífs­glöð tík.

„Nú krossa ég bara fingur og vona að hún sé á góðri leið með að verða frísk aftur. Það veit eng­inn af hverju hún varð svona veik. En ég er rosa­lega þreytt og hef fengið lít­inn svefn. En hún tók á sig að vera hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn minn í þessi ár og því á Panda þetta inni hjá mér. Hún er með mik­inn bar­áttu­vilja og berst hetju­lega í gegnum þetta allt saman,“ segir Kolbrún og bætir við:

„Panda er mín hjálp­ar­hella á erf­iðum dögum. Hún fær mig til að brosa og heldur mér félags­skap þegar ég er sem verst. Ég er öryrki og með mikla verki í allri hægri hlið­inni, króníska verki sem ekk­ert er hægt að gera við. Þess vegna er svo mikil hjálp fyrir mig að hafa hana. Hún les mig eins og opna bók og veit hvernig ég hef það hverju sinni. Ef hún hins vegar verður aftur mjög slæm og þjá­ist mikið þá fær hún að fara, þó það verði ofboðs­lega erfitt fyrir mig. Ég er nú eftir allt saman mann­eskja og vill ekki sjá að hund­ur­inn sem ég elska þjá­ist.“

Hægt er að styrkja söfn­un­ina með því að smella hér.

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi