Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grátlega nálægt því að hafa ekki efni á að vera með krabbamein

Grátlega nálægt því að hafa ekki efni á að vera með krabbamein
|||

Lára Guðrún Jóhönnu­dóttir og Krist­leifur Daðason voru búin að vera saman í tvö ár þegar Lára greind­ist með brjóstakrabba­mein, sama sjúk­dóm og dró móður hennar til dauða þegar Lára var ung­lingur.

Lára fór í egg­heimtu svo þau gætu fryst fóst­ur­vísa, ef ske kynni að krabba­meinið gerði hana ófrjóa. Þeim blöskrar að þeim finn­ist þau vera í for­rétt­inda­stöðu því þau hafa efni á að Lára sé með krabba­mein. Lára heitir því að berj­ast fyrir því að sjúk­lingar þurfi ekki að greiða fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu.

„Við getum ekki sagt að það sé jöfn­uður í sam­fé­lag­inu á sama tíma og fólk þarf að selja bíl­inn sinn áður en það getur farið í frjó­sem­is­með­ferð til að reyna að eign­ast barn. Það ættu ekki að vera for­rétt­indi,“ segir Lára Guðrún Jóhönnu­dóttir.

Verkefnisstjóri yfir brjóstinu sínu

Saga Láru er um margt merki­leg. Lára var aðeins sautján ára, elst þriggja systk­ina, þegar hún missti móður sína úr brjóstakrabba­meini eftir eins og hálfs árs bar­áttu við sjúk­dóm­inn. Lára gekk systk­inum sínum í móð­ur­stað í skugga hræði­legs sjúk­dóm og þurfti ung að bera mikla ábyrgð og áhyggjur á sínum herðum. Það var svo fyrir rúmu ári síðan að hún sjálf greind­ist með brjóstakrabba­mein. Lára og kær­asti hennar, Krist­leifur Daðason, voru aðeins búin að vera saman í tvö ár þegar Lára greind­ist, en voru þó farin að huga að barn­eignum. Þegar áfallið dundi yfir ákváðu þau strax að Lára færi í egg­heimtu þannig að þau gætu fryst fóst­ur­vísa, ef ske kynni að krabba­meinið hefði áhrif á frjó­semi Láru, sem miklar líkur voru á.

„Það er rosa­lega mikið áfall eitt og sér að grein­ast með krabba­mein, alveg sama hvaða með­ferð tekur við. Maður hefur ekki stjórn á neinu,“ segir Lára.

„Fyrir rétt rúmu ári vissi ég í fyrsta skipti nákvæm­lega hvert ég stefndi í líf­inu og hvað mig lang­aði til að læra. Allt var að smella. Þá kom krabba­meinið eins og þruma úr heið­skíru lofti. En það má segja að ég hafi náð að þróa með mér mikla aðlög­un­ar­hæfni síðan ég var krakki. Ég bjó við erf­iðar heim­il­is­að­stæður og þurfti að taka mikla ábyrgð mjög ung. Ég leit á krabba­meinið sem verk­efni. Þetta var bara vinnan mín og ég tók það mjög skipu­lega fyrir. Ég segi stundum að ég sé verk­efn­is­stjóri yfir brjóst­inu mínu,“ segir Lára og hlær sínum smit­andi hlátri.

„One tit wonder er líka eitt­hvað sem ég er að vinna með. Ein­bryst­ingur. Og hann er ein­hyrn­ing­ur­inn minn,“ segir Lára og gjóir aug­unum á sinn heittelskaða. Þeim Krist­leifi er tíð­rætt um hvað þau séu heppin, mitt í allri óheppn­inni. Að þau séu í raun heppn­asta óheppn­asta fólkið í heimi. Þau nota húmor­inn til að takast á við erf­iðu tím­ana en þrátt fyrir allt segir Krist­leifur að síð­asta ár ein­kenn­ist af mik­illi feg­urð, þó móðu­kennt sé.

„Þegar hún greind­ist með krabba­mein fannst mér þetta fyrst og fremst ótrú­lega ósann­gjarnt fyrir hana. Þetta var eig­in­lega fárán­legt tíma­bil. Ég var búinn að vera í vinnu­basli í sprota­fyr­ir­tækjum, sem er mjög gaman og gef­andi en fjár­hags­lega erfitt. Svo gerð­ist allt á fjórum vikum: ég var plat­aður í vinnu­við­tal hjá flottu fyr­ir­tæki, fékk óvænt vinnu með fín laun og Lára greind­ist. Þetta var alveg fárán­legt og eins og allt í einu væri kom­inn grund­völlur fyrir þetta allt saman. Mamma mín og pabbi hafa hjálpað okkur fárán­lega mikið og við erum svo ótrú­lega heppin með allt, fyrir utan hvað þetta er ósann­gjarnt og vont,“ segir Krist­leifur og Lára tekur undir þetta.

Lára og Krist­leifur standa þétt saman.

„Á þessum tíma fundum við hvað sam­band okkar var rétt. Það eina sem vant­aði á þessu tíma­bili voru flutn­ingar og nátt­úru­ham­farir til að tikka í öll box yfir mest streitu­vald­andi atburði sem mann­eskja getur farið í gegnum á einum mán­uði. Þetta voru eig­in­lega per­sónu­legar nátt­úru­ham­farir. En allt í einu meik­aði allt sens.“

Fann ekki afsökun til að sleppa stefnumótinu

Í fram­hald­inu rifjar parið upp hvernig þau kynnt­ust. Eins og svo mörg nútíma­pör kynnt­ust þau á Netinu, en þó ekki í gegnum „hefð­bundnar“ leiðir eins og stefnu­móta­for­rit.

„Sam­eig­in­leg vin­kona okkar var að aug­lýsa eftir skrif­borðs­stólum og ég, ver­andi hávaxin og vin­kona mín fín­gerð og nett, að bjóða fram lík­ama minn sem stól, eða eitt­hvað í þá átt­ina,“ segir Lára og hlær. Athuga­semdin við þessa sak­lausu færslu vakti áhuga Krist­leifs, sem í kjöl­farið bauð henni í kaffi.

„Honum fannst ég eitt­hvað fyndin á Netinu og spurði hvort við ættum að hitt­ast í kaffi 3. mars. Ég sagð­ist ekki vera laus fyrr en 14. mars, sem var líka alveg satt því ég var í sleitu­lausri vinnu­törn, þannig að ég hafði ell­efu daga til að finna afsökun til að fara ekki. En ég fann enga afsökun. Þetta var bara rétt,“ segir Lára.

„Þetta var alveg fárán­legt. Við bara smullum saman strax. Þetta hefur verið ágætis rús­sí­bani síðan þá,“ segir Krist­leifur.

Ekki pláss fyrir meðvirkni

Það sést langar leiðir að þau Krist­leifur og Lára standa þétt saman, eru hug­fangin af hvort öðru og líður vel saman. Lára segir að lyk­ill­inn að þeirra sterka sam­bandi séu heið­ar­leg sam­skipti.

„Það er ekki pláss fyrir með­virkni þegar maður er að berj­ast við krabba­mein. Ef hún er til staðar er hún fljót að þvæl­ast fyrir og þá þarf að henda henni út. Við höfum þurft að kynn­ast á hrað­ferð en við vissum bæði hvað við vildum þegar við byrj­uðum að vera saman. Það hefur aldrei verið neinn efi í okkar sam­bandi og við eigum mjög auð­velt með að vera í heið­ar­legum sam­skiptum. Ég er líka svo örugg með honum. Ég get farið í gegnum allar til­finn­inga­sveiflur. Ég get öskrað, grenjað, hlegið, stappað niður fótum og hagað mér eins og krakki en hann tekur mér alltaf eins og ég er.“

Sonurinn stoltur af mömmu

Lára og Krist­leifur búa saman með syni Láru úr fyrra sam­bandi, Þorvaldi Herði, sem er alveg að verða tíu ára. Lára var að fara að hætta á getn­að­ar­varn­arpill­unni þegar hún greind­ist með krabba­mein, enda barn­eignir á fram­tíð­ar­plan­inu hjá par­inu.

„Við vorum búin að setja upp plan fyrir árið. Næsta skref var að hætta á pill­unni. Það hefði verið harm­leikur ef ég hefði verið ólétt þegar ég greind­ist þannig að við sluppum með skrekk­inn þar, ef svo má segja. Eins og ég segi, ég er heppn­asta óheppn­asta kona í heimi,“ segir Lára og brosir. Hún segir Þorvald hafa staðið sig ofboðs­lega vel í gegnum veik­indi móður sinnar, en þau Lára og Krist­leifur ákváðu strax að segja honum alltaf satt og ekki leyna hann neinu.

„Hann er ótrú­lega stoltur af mömmu sinni. Um leið og við fengum stóra K-ið stað­fest þá sögðum við honum frá því. Hann er búinn að vera mjög opinn og á auð­velt með að tala um þetta. Hann hefur þurft að læra ótrú­lega mikið á mjög stuttum tíma. Hann er gömul sál og rosa­lega næmur, sem getur verið galli því hann skynjar allt. En af því að hann er svona næmur þá erum við enn meira á tánum að segja honum frá öllu til að búa ekki til óþarfa kvíða hjá honum. Af feng­inni reynslu finnst mér mjög mik­il­vægt að hafa börnin með í þessu ferli því þau vita miklu meira en full­orðnir gera sér grein fyrir. Þegar móðir mín var veik var ýmsu haldið leyndu fyrir systk­inum mínum sem gerði áfallið þegar hún dó enn meira fyrir þau,“ segir Lára og bætir við að það hafi verið skrýtin upp­lifun að segja syni sínum frá mein­inu.

„Ég þurfti að segja yngri systk­inum mínum að mamma væri látin úr brjóstakrabba­meini, þannig að það var skrýtið að segja barn­inu mínu að ég væri með sama sjúk­dóm. Það var mjög súr­r­eal­ísk upp­lifun.“

Lára segir einnig að móð­ur­miss­ir­inn hafi að vissu leyti und­ir­búið hana fyrir þessa bar­áttu og að það að grein­ast með krabba­mein hafi ýtt henni í að vinna meira í sér sjálfri.

„Ég held að innst inni hafi ég und­ir­búið mig fyrir þetta alla ævi. Ég vissi nákvæm­lega hvað ég vildi og vildi ekki, var fljót að taka ákvarð­anir og varð strax verk­efna­stýra yfir þessum sjúk­dómi. Mér fannst það að mamma hafði dáið úr sama sjúk­dómi bara styrkja mig ef eitt­hvað er. Ég tók þessu líka sem opnum glugga til að taka mig í gegn. Taka til í sál­ar­tetr­inu og fara í gegnum gömul áföll. Vera dug­leg að fara til sál­fræð­ings og end­ur­for­rita mig. Ég var svo ung og tók mikla ábyrgð snemma að ég fékk aldrei að vera ég, fékk aldrei að vera ung­lingur. Og út af þess­ari sjálfs­vinnu þá er ég í raun að syrgja for­eldrið sem ég missti fyrst núna.“

Krabbamein frípassi til að tala um frjósemi

Lára slapp við lyfja­með­ferð eftir brjóst­nám.

Þegar Lára greind­ist var með­ferð­ar­planið brjóst­nám, egg­heimta, lyfja­með­ferð og and­horm­óna­með­ferð. Eftir brjóst­námið, þar sem annað brjóstið var tekið af henni, kom í ljós að hún þyrfti ekki að fara í lyfja­með­ferð, sem þýðir að minni líkur eru á að hún verði var­an­lega ófrjó vegna krabba­meins­ins. Vegna óvissu í kringum sjúk­dóm Láru fór hún í þrjár egg­heimtur til að frysta fóst­ur­vísa svo plön þeirra Krist­leifs um fjöl­skyldu í fram­tíð­inni gætu mögu­lega ræst.

„Þegar maður er að spila með fram­tíð­ina, fjöl­skyld­una og lífs­gæðin þá tekur maður enga sénsa. Það er ekk­ert sjálf­gefið að það náist fóst­ur­vísar úr hverri egg­heimtu og margir fara oft án þess að fá neitt,“ segir Lára, en vegna fyrr­nefndar óvissu voru þessar egg­heimtur fram­kvæmdar á styttri tíma en vana­lega.

„Þegar hún fór í egg­heimtu var ekki komið í ljós hvað við værum heppin með meinið. Því var farið hraðar í þessa með­ferð og hún var mjög stutt og snörp,“ segir Krist­leifur. Þau Lára eru sam­mála um að þessi fyr­ir­byggj­andi frjó­sem­is­með­ferð hafi verið mun erf­ið­ari en þau bjugg­ust við.

„Af öllu sem gekk á kom mér mest á óvart að þetta var það sem tók mest á. Ég þurfti að sprauta mig dag­lega og eggja­stokk­arnir urðu á stærð við vín­berja­klasa. En Krist­leifur var með mér allan tím­ann, í hvert ein­asta skipti sem ég spraut­aði mig. Það var frekar nota­legt. Við gerðum þetta allt saman. En þetta er rosa­lega mikið álag og mikið horm­óna­rúss. Mér finnst magnað hve margir sem fara í gegnum þetta bera harm sinn í hljóði því þetta er svo mikið feimn­is­mál. Fyrir mig var krabba­meinið eins og frípassi til að mega tala um þetta. Það var gott að geta talað um þetta og vera opin með þetta,“ segir Lára. Brjóst­námið reynd­ist henni að mörgu leyti auð­veld­ara, ef svo má að orði kom­ast.

„Ég var ótrú­lega fljót að aðlag­ast því að vera bara með eitt brjóst. Það er per­sónu­leg ákvörðun hverrar og einnar konu hvort hún vilji fara í upp­bygg­ingu eftir að brjóstið er tekið, en ég var mjög ákveðin að fara ekki í upp­bygg­ingu. Ég ákvað að klára aðgerð­ina og sjá svo til seinna. Ég hef aldrei verið með stór brjóst þannig að þetta er ekki mikil breyt­ing, útlits­lega séð. Þetta háir mér ekki og það er ótrú­lega magnað hvað ég var fljót að venj­ast þessu. Mér finnst þetta bara meira kúl en eitt­hvað annað. Það hefur líka hjálpað að ég er með heil­brigða lík­ams­í­mynd og líður ágæt­lega í eigin skinni.“

Svefntruflanir og hitakóf

Ef allt gengur að óskum geta Lára og Krist­leifur byrjað að reyna að eign­ast börn eftir tvö ár í fyr­ir­byggj­andi krabba­meins­með­ferð, sem Lára er búin að vera í sam­tals í fimm mán­uði. Sú með­ferð tekur einnig á.

„Þetta eru svokölluð klínísk tíða­hvörf þannig að ég fer kannski tvisvar á breyt­inga­skeiðið. Heppin!“ segir Lára og hlær. „Þessi með­ferð fer mis­vel í fólk og ég finn alveg fyrir þessu. Ég er orðin stirð, fæ hita­kóf, næt­ur­svita, svefn­trufl­anir og er haldin ein­beit­ing­ar­skorti. Það sem hefur bjargað miklu í þessu ferli er að ég fer í heitt jóga og svo í Mjölni tvisvar í viku í einka­þjálfun. Það er búið að bjarga geð­heils­unni og lík­am­anum og hvernig ég tekst á við fram­tíð­ina. Mér líður eins og ég sé að blása köngu­ló­ar­vefnum burt úr heil­anum.“

Hélt að allt yrði niðurgreitt

Lára og Krist­leifur eru sam­mála um að starfs­fólk Land­spít­al­ans hafi haldið vel utan um þau og hugsað vel um litlu fjöl­skyld­una á þessum erf­iða tíma. Þeim blöskrar hins vegar þau miklu fjár­út­lát sem sjúk­lingar þurfa að fara út í aðeins við það að veikj­ast.

„Af mann­úð­ar­á­stæðum ættum við að nið­ur­greiða krabba­meins­með­ferð fyrir fólk að fullu og allt sem henni fylgir. Ef maður hreinsar allar til­finn­ingar og náunga­kær­leika út úr dæm­inu, sem við ættum auð­vitað ekki að þurfa að gera, þá er þetta bara spurn­ing um skil­virkni. Það er ekki skil­virkt að láta krabba­meins­veikt fólk steypa sér í skuldir. Svo er þetta líka spurn­ing um sam­keppn­is­for­skot Íslands. Þegar ungt fólk fréttir að það sé í slæmum málum ef eitt­hvað kemur fyrir það, þá bara flytur það til útlanda,“ segir Krist­leifur.

„Ég þekki það að eiga ekki neitt og eiga engan að því ég á ekki for­eldra sjálf og er með mjög tak­markað bak­land. Ég verð svo reið þegar ég finn að ég er í for­rétt­inda­stöðu því ég var svo grát­lega nálægt því að hafa ekki efni á að vera með krabba­mein, sem hefði verið raunin ef þetta hefði fund­ist fyrir fjórum árum. Ég finn rétt­láta reiði rísa innra með mér og þetta er slagur sem ég get ekki beðist undan. Þetta má ekki halda svona áfram og ef ég hef orku til að taka þennan slag þá ætla ég að gera það. Við búum í sam­fé­lagi sem stærir sig af því að vera með svo mik­inn sam­fé­lags­legan jöfnuð, en samt upp­lifi ég það sem for­rétt­indi að fá bestu heil­brigð­is­þjón­ust­una og geta stofnað fjöl­skyldu í fram­tíð­inni. Þá er eitt­hvað mikið að. Fólk á ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því hvort það hafi efni á næstu mál­tíð eða næstu blóðprufu. Ég sá það mjög fljótt eftir að ég greind­ist að ef ég hefði verið ein­stæð hefði lífið farið mjög hratt niður á við,“ segir Lára og bætir við að þegar kom að því að fara í frjó­sem­is­með­ferð­ina hefði hún tekið því sem sjálf­sögðum hlut að sú með­ferð væri að öllu leyti greidd af íslenska rík­inu.

„Ég var svo barna­leg að ég hélt að þetta yrði allt nið­ur­greitt. Mér fannst full­kom­lega absúrd að fólk væri látið greiða fyrir fyr­ir­byggj­andi frjó­sem­is­með­ferð, því auð­vitað er hún hluti af því að grein­ast með krabba­mein. Síðan fórum við í við­tal og leit­uðum okkur upp­lýs­inga og þá kom í ljós að við þyrftum að leggja út 455 þús­und krónur fyrir fyrstu með­ferð, plús geymslu­gjald sem er 23 þús­und á ári og síðan greiddum við um það bil 50 þús­und krónur í lyf. Þetta var allt saman útlagður kostn­aður. Síðan fengum við 65% end­ur­greiðslu, fyrir með­ferð­inni sjálfri en ekki lyfj­unum, frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands út af því að ég var í krabba­meins­með­ferð og ég fékk hluta end­ur­greiddan frá stétt­ar­fé­lag­inu mínu. En maður þarf samt að eiga hálfa milljón til að fá eitt­hvað til baka. Ef við tölum um fólk sem er ekki að berj­ast við krabba­mein þá finnst mér fárán­legt að nið­ur­greiða aðra til fjórðu með­ferð en ekki þá fyrstu, fyrir utan það að líta okkur ekki nær og nið­ur­greiða með­ferð­ina að fullu eins og tíðkast í nágranna­lönd­unum.“

Láru og Krist­leifi blöskrar að sjúk­lingar þurfi að steypa sér í skuldir vegna veik­ind­anna.

Ungt fólk með krabbamein lifir af

Þó að Lára taki öllu því sem lífið hendir í hana með brosi á vör og brand­ara á reiðum höndum, er heimur lang­veikra ein­stak­linga og fólks sem grein­ist með alvar­lega sjúk­dóma henni hjart­ans mál. Henni finnst stjórn­völd ekki vera í nokkrum tengslum við sam­fé­lagið og ætlar að berj­ast eins lengi og hún getur fyrir því að rétta það rang­læti sem ríkir í heil­brigð­is­kerf­inu að hennar mati.

„Fólk sem grein­ist ungt með krabba­mein lifir það í alvör­unni af. Við getum verið full­nýtir sam­fé­lags­þegnar ef við fáum tæki­færi til þess. Þó að það verði mitt síð­asta þá skal ég ná því í gegn að sjúk­lingar þurfi ekki að greiða og hafa áhyggjur. Þetta er ekki í boði og skiptir okkur öll ótrú­lega miklu máli.“

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, National make up art­ist fyrir Yves Saint Laurent á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi