Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Virkjar sinn innri mótorhjólatöffara

Söngv­ar­inn vin­sæli Valdimar Guð­munds­son fetar ótroðnar slóðir þessa dag­ana en í kvöld stígur hann á Stóra svið Borg­ar­leik­húss­ins í hlut­verki Eddies í söng­leiknum Rocky Horror.

Virkjar sinn innri mótorhjólatöffara

Þetta er fyrsta hlut­verk Valdi­mars á leik­sviði en hann seg­ist ekki kvíð­inn fyrir frum­sýn­ing­unni, hann þurfi fyrst og fremst að muna að virkja mót­or­hjóla­töffar­ann innra með sér, jafn­vel þótt hann hafi aldrei keyrt mót­or­hjól.

Í kvik­mynd­inni frægu frá 1975 er það sjálfur Meatloaf sem fer með hlut­verk Eddies og ég byrja á að spyrja Valdimar hvort Meatloaf sé í upp­á­haldi hjá honum sem söngv­ari.

„Ég get nú ekki sagt það, nei,“ segir Valdimar, sem er nýkom­inn af strangri æfingu og pínu­lítið and­stuttur eftir hama­gang­inn á svið­inu. „Mér finnst hann alveg fínn söngv­ari en tón­listin hans er ekki í þeim flokki tón­listar sem höfðar mest til mín. Ekki minn tebolli.“

Spurður hvernig það hafi komið til að hann var feng­inn til leika hlut­verk Eddies, seg­ist Valdimar hafa grun um að Jón Ólafsson, tón­list­ar­stjóri sýn­ing­ar­innar, hafi mælt með honum í hlut­verkið.

„Við Jón höfðum unnið saman í öðru verk­efni og ég held að hann hafi ýtt á það að fá mig til að leika Eddie. Honum fannst ég passa vel í hlut­verkið og svo er ég svo­lítið þykkur sem hentar vel í þetta hlut­verk.“

Talandi um það, fyrir tveimur árum fylgd­ist öll þjóðin með lík­ams­rækt­ar­átaki Valdi­mars þegar hann steig fram og við­ur­kenndi að lík­ams­á­stand hans væri farið að valda sér heilsutjóni. Ári seinna hafði hann misst 40 kíló og var enn þá á fullu í rækt­inni. Hver er staðan í því máli núna?

„Ég er enn þá í rækt­inni, var síð­ast í rækt­inni í morgun, en ég tek þetta ekki með neinu offorsi, reyni að finna skyn­sam­legan með­al­veg og passa bara upp á að lenda ekki á sama stað og ég var fyrir tveimur árum. Þá var ástandið orðið alvar­legt.“

„Ég er enn þá í rækt­inni, var síð­ast í rækt­inni í morgun, en ég tek þetta ekki með neinu offorsi, reyni að finna skyn­sam­legan með­al­veg og passa bara upp á að lenda ekki á sama stað og ég var fyrir tveimur árum. Þá var ástandið orðið alvar­legt. Ég ætla ekki þangað aftur. Maður þarf samt að passa sig að fara ekki út í neinar öfgar. Þetta snýst allt um að láta skyn­sem­ina ráða og finna hinn gullna með­al­veg.“

En er ekki mikil lík­am­leg áreynsla að leika í söng­leik? Vera þjót­andi um sviðið syngj­andi með hama­gangi og dans­sporum?
„Þetta er nú ekki langur tími sem ég þarf að vera inni á svið­inu,“ segir Valdimar sall­ar­ó­legur. „Þetta tekur auð­vitað á en það er ekk­ert sem ég ræð ekki við.“

Lifir ekki slúðurvænu lífi

Auk þess að leika í Rocky Horror er Valdimar að und­ir­búa útgáfu nýrrar plötu með hljóm­sveit sinni Valdimar. Fyrsta lagið af plöt­unni sem mein­ingin er að komi út í haust, „Of seint“, fór í spilun í síð­ustu viku og Valdimar lýsir því sem „rokk/diskó, popp rokk eitt­hvað“. Maður hnýtur um orðið diskó og spyr eins og auli hvort Valdimar sé ekki allt of ungur til að muna eftir diskó­æð­inu.

„Jú, ég er fæddur 1985 svo diskó­tíma­bilið var löngu liðið þegar ég man fyrst eftir mér,“ segir hann hneyksl­aður á fáfræði blaða­manns­ins. „En diskóið er farið að skjóta upp koll­inum í rapp­inu og víðar svo við erum nú ekk­ert að gera ein­hverja bylt­ingu. Ég veit ekki einu sinni hvort það er rétt að nota orðið diskó í þessu sam­hengi. Ég heyri diskó­hljóm í þessu lagi, en það er ekk­ert víst að aðrir heyri það.“

Þjóðin elskar Valdimar sem ball­öðu­söngv­ara en sjálfur seg­ist hann kannski frekar líta á sig sem rokksöngv­ara. „Ég hef gaman bæði af rokki og róleg­heitum og alls konar stílum,“ segir hann ákveð­inn. „Ég vil ekki festa mig við eitt­hvað eitt en ég hall­ast þó aðeins að rokk­inu.“

Ég reyni að pumpa Valdimar um einka­líf hans en hann er ekk­ert á þeim bux­unum að gefa mikið upp um það. Hann seg­ist hvorki vera í sam­búð né föstu sam­bandi og lifi almennt ekki slúð­ur­vænu lífi. Það er tón­list, tón­list og aftur tón­list sem líf hans snýst um. En er ekki mikil skuld­bind­ing fyrir eft­ir­sóttan tón­list­ar­mann að festa sig í einu verk­efni í leik­hús­inu? Hvað ef sýn­ingin gengur árum saman, flæk­ist hún þá ekki fyrir ferli hans sem tón­list­ar­manns?

„Ég er nú ekk­ert far­inn að hugsa svo langt enn þá,“ segir Valdimar og hlær. „Það getur vel verið að það verði ein­hverjir árekstrar verk­efna en það er nú yfir­leitt hægt að leysa það þegar slíkt kemur upp. Og ég er þá alla vega á föstum launum á meðan sýn­ingin gengur, það er ágætis til­breyt­ing.“

Er erfitt að sjá fyrir sér með því að vera alfarið í tón­list­ar­brans­anum?
„Alla vega ekki eftir að maður er orð­inn eft­ir­sóttur,“ segir hann ákveð­inn. „Það er auð­vitað hark fyrst en síð­ustu sex árin hef ég alfarið lifað af tón­list­inni og það gengur ágæt­lega. Ég hef auð­vitað ekki orðið ríkur af þessu, á til dæmis engan Range Rover, en ég get alveg lifað af þessu.“

Væri það ekki líka hræði­legt stíl­brot fyrir rokk­ara að keyra um á Range Rover?
„Jú, algjör­lega! Ég tók hann nú bara sem dæmi um birt­ing­ar­mynd ríki­dæmis, ég myndi alls ekki vilja eiga Range Rover,“ segir Valdimar glott­andi. „Það væri ekki ég.“

Ótrúlegt ferðalag að leika í Rocky Horror

Aftur að Rocky Horror. Á Facebook-síðu Valdi­mars birt­ist nýlega mynd af honum í hæla­háum skóm, þýðir það að hann sé í dragi í sýn­ing­unni?
„Nei, ég er ekki í dragi. Ég er í leð­ur­galla mót­or­hjóla­töffara, með svarta hár­kollu og barta sem ég er búinn að safna. Skórnir voru bara smá­grín sem kannski verður notað í upp­klapp­inu. Eða ekki, það kemur í ljós,“ bætir hann við leynd­ar­dóms­fullur.

Þetta er fyrsta leik­hlut­verk Valdi­mars, þótt hann hafi reyndar áður verið á leik­sviði í hlut­verki básúnu­leik­ara í bæj­ar­hljóm­sveit­inni í sýn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins á Millj­arða­mærin snýr aftur eftir Dür­ren­matt fyrir sléttum níu árum. Hvernig gengur honum að leika, er hann góður leik­ari?

„Ég er nú kannski ekki rétti mað­ur­inn til að svara því,“ segir hann, hóg­værðin upp­máluð. „En ég held þetta gangi ágæt­lega. Þegar ég er kom­inn í gall­ann, með hár­koll­una og sminkið verð ég bara Eddie. Það eina sem ég þarf að muna er að virkja minn innri mót­or­hjóla­töffara og þá smellur þetta allt saman.“

„Ég held ég geti alveg lofað því að fólk á eftir að skemmta sér vel í Borg­ar­leik­hús­inu á næst­unni. Eða, já, ég held það ekk­ert, ég get lofað því! Þetta er frá­bær skemmtun.“

Mót­or­hjóla­töffara? Hefurðu verið mót­or­hjóla­töffari?
„Nei, nei. Ég hef ekki einu sinni keyrt mót­or­hjól,“ svarar Valdimar glað­beittur. „En það býr mót­or­hjóla­töffari innra með mér og hann fær að njóta sín í þess­ari sýn­ingu.“

Talið berst að sýn­ing­unni og því hvort Valdimar kvíði ekk­ert fyrir því að koma í fyrsta sinn fyrir augu þjóð­ar­innar sem leik­ari. Hann seg­ist ekki kvíð­inn enda sé hann í hópi stór­kost­legra lista­manna og það hafi verið mikil og dýr­mæt reynsla að fá að taka þátt í þess­ari upp­setn­ingu.
„Þetta er búið að vera alveg ótrú­legt ferða­lag,“ segir hann andakt­ugur. „Það er svo frá­bært fólk sem vinnur að þess­ari sýn­ingu á öllum sviðum. Tón­list­ar­menn, leik­arar, leik­stjóri, leik­mynda­hönn­uðir, dans­arar, dans­höf­undur, bún­inga­hönn­uðir og förð­un­ar­fólk, þetta er allt topp­fólk á sínu sviði og ég er ótrú­lega þakk­látur fyrir að hafa fengið að kynn­ast þessum heimi og taka þátt í að búa þessa sýn­ingu til. Það er eng­inn kvíði í mér fyrir frum­sýn­ing­unni, bara til­hlökkun og gleði. Ég held ég geti alveg lofað því að fólk á eftir að skemmta sér vel í Borg­ar­leik­hús­inu á næst­unni. Eða, já, ég held það ekk­ert, ég get lofað því! Þetta er frá­bær skemmtun.“

Texti / Friðrika Ben­ón­ýs­dóttir
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi