Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halla í viðtali við Forbes: Mikilvægast að vera sjálfum sér trúr

Halla í viðtali við Forbes: Mikilvægast að vera sjálfum sér trúr

Athafna­konan og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­and­inn Halla Tóm­as­dóttir er í við­tali á frétta­vef Forbes, en við­talið var birt í gær í til­efni af alþjóð­legum bar­áttu­degi kvenna. Segir í við­tal­inu að Halla sé ein af þeim leið­togum sem vilji meira jafn­rétti í heim­inum, og að hún hafi sýnt og sannað að til­finn­inga­greind sé jafn­mik­il­væg og pen­inga­vit í við­skipta­heim­inum.

Í við­tal­inu talar hún um að kven­leg gildi eigi vel heima í við­skipta­heim­inum. Aðspurð hvernig konur geti komið að samn­inga­borð­inu án þess að virka of ágengar eða fjand­sam­legar, segir Halla að henni þyki mik­il­væg­ast að vera trúr sér sjálfum.

„Und­ir­bún­ingur er mik­il­vægur en einnig að vera vel upp­lýstur um við­eig­andi gögn og gera sér grein fyrir hvaða til­finn­ingar eru í spil­inu. Að vita mark­mið sín fyr­ir­fram hjálpar líka en fyrir mig er mik­il­væg­ast að vera trúr sér sjáfum. Ég trúi í raun ekki á neitt sem er mér ekki eðl­is­lægt. Ef mér finnst það ekki vera ekta, þá á hinn aðil­inn ekki eftir að kaupa það og þá á maður á hættu að tapa trú­verð­ug­leika sínum,“ segir Halla og bætir við að hennar upp­á­halds samn­inga­tækni sé að hlusta.

„Að hlusta, ekki bara með eyr­unum heldur einnig með aug­unum og inn­sæ­inu. Sam­skipti eru að mörgu leyti án orða og það er mjög dýr­mætt að fylgj­ast með lík­ams­tján­ingu, orku­stigi og öðru sem ekki er sagt.“

Einlægni og gagnsæi lykillinn

Aðspurð hvaða ráð í samn­inga­tækni hún myndi gefa yngri sjálfi sínu stendur ekki á svör­unum.

„Að vera óhrædd við sjálfa mig við samn­inga­borðið, og alls staðar ann­ars staðar.“

Halla er einnig spurð að því hvaða ráð hún myndi gefa konum sem hafa áhuga á emb­ætt­is­kjöri.

„Ég trúi því að maður sé að semja um að fá traust fólks þegar maður gefur kost á sér í emb­ætti. Einlægni og gagn­sæi var lyk­ill­inn að því að öðl­ast traust kjós­enda af minni reynslu, það er að vera ég sjálf, vera opin og aðgengi­leg, svara öllum spurn­ingum kjós­enda og gefa þeim hrein­skilin og ein­læg svör.“

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi