Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndlistarsköpun er góð við athyglisbresti

Verkið uppi á vegg.

Myndlistarsköpun er góð við athyglisbresti
|
Kolbeinn segir að unnastan kunni greini­lega að meta verkið því hún hafi sett það á besta stað í íbúð­inni.

„Verkið er nafn­laust og unnið með olíu en ég mál­aði það fyrir Kötlu Rut, unnust­una mína, þegar við byrj­uðum að búa árið 2012. Það varð til á nokkrum vikum þar sem ég bograði yfir strig­anum á miðju stofu­gólfi og á sama tíma púsl­að­ist stofan saman, bæði undir áhrifum hvort frá öðru,“ segir Kolbeinn Arin­björns­son leik­ari þegar hann er spurður út í mál­verk sem hangir uppi á stofu­vegg heima hjá þeim og bætir bros­andi við að unnastan kunni greini­lega að meta það því hún hafi sett það á besta stað í íbúð­inni.

Umrætt verk er í abstrakt stíl en Kolbeinn seg­ist hafa orðið alveg heill­aður af abstrakt form­inu þegar hann lærði mynd­list við Verk­mennta­skól­ann á Akureyri á sínum tima. „Það þró­að­ist síðan út í hálf­gert blæti fyrir litum og jafn­vægi, formum og áferð og hvernig hægt er að kalla fram til­finn­ingar í gegnum þessi form og öfugt. Það er, hvernig til­finn­ingar geta fram­kallað form, liti og áferð,“ lýsir hann og getur þess að Guð­mundur Ármann Sig­ur­jóns­son, þáver­andi kenn­ari hans við skól­ann, sé ein af hans helstu fyr­ir­myndum í list­inni og ekki síður í líf­inu því hann sé bæði stór­kost­legur lista­maður og mann­eskja.

„Það má eig­in­lega segja að ég fari í hálf­gerðan trans á meðan ég mála en fyrir mann eins og mig sem er með tölu­verðan athygl­is­brest eða víð­hygli, eins og sumir kalla það, þá líður mér sjaldan betur en einmitt í því ástandi.“

Af hverju abstrakt? „Ja, abstrakt expression­ismi hentar mér bara afskap­lega vel. Það má eig­in­lega segja að ég fari í hálf­gerðan trans á meðan ég mála en fyrir mann eins og mig sem er með tölu­verðan athygl­is­brest eða víð­hygli, eins og sumir kalla það, þá líður mér sjaldan betur en einmitt í því ástandi.“

Kolbeinn hefur teiknað og búið til sögur alveg frá því að hann man eftir sér en er leik­ari að mennt og hefur starfað sem slíkur frá útskrift árið 2012. Samhliða því hefur hann unnið við sjó­mennsku, hval­skurð, á geð­deild og ýmis­legt fleira og segir þessi ólíku störf oft hafa veitt sér óvæntan inn­blástur. „Inn­blástur í mál­verkin mín sæki ég víða en þau eru nú samt sjaldn­ast úthugsuð áður en ég byrja. Til að mynda hangir verk hérna á gang­inum sem ég mál­aði í pásum í kassa­kompu á Hval­stöð­inni og nýtti bara það sem var hendi næst; hvals­blóð og blek úr stimpl­unum sem voru not­aðir til að merkja kass­ana undir hval­kjötið.”

Á heim­ili fjöl­skyld­unnar gefur einnig að líta verk eftir aðra lista­menn. Þar á meðal olíu­verk eftir Margeir Dire. „Katla Rut, sem er lærð leik­kona, gaf mér það í afmæl­is­gjöf þegar ég varð þrí­tugur og mér þykir mjög vænt um það. Hún er algjör lista­maður þegar kemur að því að inn­rétta heim­ilið en þessi verk, það má segja að þau geymi okkar sögu saman og eigi þátt í því að gera íbúð­ina að okkar heim­ili,“ segir hann.

Mynd að ofan: Kolbeinn Arin­björns­son og Katla Rut Pét­urs­dóttir ásamt dótt­ur­inni Módísi. Myndin á veggnum er abstrakt verk eftir Kolbein.

Texti / Roald Eyvinds­son
Mynd / Íris Dögg Ein­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi