Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Algjört ævintýri“

Sigurður Steinar er á hraðri upp­leið í tísku­heim­inum eftir frá­bæran árangur í Elite Model Look-fyr­ir­sætu­keppn­inni í Mílanó. Mannlíf tók þennan hressa og efni­lega 17 ára Reyk­vík­ing tali.

„Algjört ævintýri“
|||
Árlega halda yfir 30 lönd und­ankeppni fyrir Elite Model Look sem þús­undir kepp­enda taka þátt í. Af þeim 64 þátt­tak­endum sem komust áfram í ár stóðu uppi 15 sig­ur­veg­arar, 10 stúlkur og 5 strákar. Sigurður Steinar var einn fimm sig­ur­veg­ara í hópi drengja en ekki er raðað sér­stak­lega í sæti fyrir utan það efsta. Sig­ur­veg­ar­arnir fá allir samn­ing við Elite International sem tryggir þeim verk­efni í kjöl­farið.

Hvernig til­finn­ing var að ná svona langt í keppn­inni? „Vá, þegar ég stóð á svið­inu og það var bara eitt sæti eftir og svo heyr­ist í hljóð­kerf­inu: „From Iceland, Siggi!“ Það var eitt af skrítn­ustu augna­blikum sem ég hef upp­lifað! Við höfðum öll fengið fyr­ir­mæli um að halda „kúl­inu“ ef við kæm­umst áfram, þannig að ég gekk bara fram og tók hring með hinum efstu 15 mód­el­unum en rosa­lega lang­aði mig til að fagna!“

Áttirðu von á þessu? „Alls ekki. Það voru svo rosa­lega margir og flottir krakkar í þess­ari keppni.“

Var keppnin erfið? „Já, vik­una fyrir keppni þurftum við að vakna klukkan 7 á hverjum morgni, skella í okkur morg­un­mat og flýta okkur út í rútu sem ók með okkur í risa­stórt stúdíó þar sem við tóku strangar æfingar. Til dæmis fengum við strák­arnir flestir blöðrur á fæt­urna bara af því að æfa göngu­lagið í allt of þröngum skóm. Stelp­urnar þurftu að ganga í hæla­skóm sem var örugg­lega enn verra. Svo var æft alveg til klukkan 9 öll kvöld. Þannig að þetta var ein af erf­ið­ari en skemmti­legri vikum lífs míns!“

Hvernig kom til að þú tókst þátt? „Þetta byjaði allt hjá Eskimo Models á Íslandi. Fyrir þeirra til­stilli komst ég á samn­ing hjá Elite í París og þar var ákveðið að senda mig beint í stóru loka­keppn­ina í Mílanó.“

Hafa ein­hverjar dyr opn­ast í kjöl­farið? „Já, ég er strax kom­inn á samn­ing hjá Elite Paris og Elite Milano og var að und­ir­rita samn­ing við Elite London. Í jan­úar tók ég svo þátt í Men’s Fashion Week Winter í París þar sem ég vann fyrir Loewe og ég er líka búinn að fara í prufur hjá Louis Vuitton, Versace, Chanel, Vouge, GQ magazine, Armani, Diesel, Lacoste og fleirum.“

Mynd / Nicholas Efimtcev

Ferðastu þá ekki svo­lítið í tengslum við starfið? „Jú, ég hef búið í Mílanó og París sem er alveg mögnuð borg. Svo er ég að fara til London til að taka þátt í Men’s fas­hion.“

Ertu í skóla sam­hliða mód­el­stör­f­unum? „Ég kláraði eitt ár í tækni­teiknun í Tækni­skól­anum sem var mjög skemmti­legt en þegar þetta tæki­færi bauðst skyndi­lega ákvað ég, í sam­ráði við for­eldra mína og Eskimo, að bíða með námið. Það er nefni­lega mjög erfitt að sinna hvoru­tveggja á sama tíma.“

Hvað finnst skóla­fé­lög­unum og vin­unum um þetta? „Allir í kringum mig eru bara rosa­lega stoltir af mér og hafa verið dug­legir að hvetja mig áfram.“

Stefn­irðu að frama í þessu eða langar þig til að vinna við eitt­hvað annað þegar þú verður eldri? „Ég ætla að ein­beita mér að þessu, alla vega eins og er en ég stefni að því að fara í nám í arki­tektúr seinna.“

Elite Model Look-keppnin hefur verið haldin árlega frá 1983 og er stór stökk­pallur fyrir fyr­ir­sætur en meðal þeirra sem hafa byrjað feril sinn þar eru ofur­fyr­ir­sæt­urnar Cindy Crawford og Gisele Bundchen. Mynd / Cynthia Frebourg

En þessi bransi, er hann í lík­ingu við það sem þú ímynd­aðir þér? „Nei, þegar ég byrj­aði vissi ég ekki alveg hvað ég var að fara út í. Þetta er mjög gaman en líka algjört puð.  Það tekur á að fara í 16 prufur á einum degi og ekki grun­aði mig að ég myndi lenda í topp fimm í stærstu mód­el­keppni í heimi! Þessi bransi er svo­lítið þannig; það er erfitt að sjá fyrir hvað ger­ist næst. Nú er ég til dæmis að fara til London og svo kannski til París. Annað veit ég ekki í bili. Eina sem ég veit er að það er búið að vera algjört ævin­týri að fá að ferð­ast og búa í svona flottum stór­borgum bara 17 ára og þurfa að sjá um sig sjálfur.“

Áttu heil­ræði handa þeim sem vilja feta sig út á þessa braut? „Hafðu trú á þér. Vertu ófeim­inn og alls ekki reyna að vera eins og allir hinir. Vertu bara þú sjálfur og komdu alltaf heið­ar­lega fram.“

Hægt er að fylgj­ast með Sigurði Steinari á Instragram undir not­enda­nafn­inu sig­ur­dur_st

Texti / Roald Eyvinds­son
[email protected]
Aðalmynd / Stephane Gizard

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi