Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sextán landslagsmyndir prýða ný vegabréf

Sextán landslagsmyndir prýða ný vegabréf

Ný vega­bréf, sem tekin verða í notkun í lok þessa árs, ef allt gengur að óskum, verða prýdd sextán lands­lags­myndum af nátt­úru Íslands. Verða mynd­irnar not­aðar sem daufur bak­grunnur á vega­bréfs­síð­urnar.

Þjóðskrá Íslands aug­lýsti ekki eftir fyrr­nefndum lands­lags­myndum heldur var leitað til „sjö þekktra lands­lags­ljós­mynd­ara og þeim boðið að skila inn ákveðnum fjölda mynda hver,“ eins og segir í skrif­legu svari frá Þjóðskrá Íslands við spurn­ingum blaða­manns Mannlífs.

Mega ekki birta myndirnar í 18 ár

Alls bár­ust 150 myndir og voru sextán valdar sem þóttu henta best sem daufur bak­grunnur á vega­bréfs­síð­urnar. Ljós­mynd­ar­arnir sem eiga myndir í vega­bréf­unum eru Árni Tryggva­son, Einar Guðmann, Gyða Henn­ings­dóttir og Páll Jökull Pét­urs­son. Ekki fékkst gefið upp hve háa greiðslu ljós­mynd­ar­arnir fengu fyrir hverja mynd. Ljós­mynd­ar­arnir mega ekki birta eða nota mynd­irnar sem urðu fyrir val­inu næstu átján árin. Er það liður í að minnka líkur á að hægt sé að falsa íslensk vega­bréf.

Tilboði pólska fyrirtækisins PWPW tekið

Á síð­asta ári fór fram útboð sem Rík­is­kaup sá um fyrir Þjóðskrá Íslands, ann­ars vegar á fram­leiðslu og hönnun á íslenskum vega­bréfa­bókum og hins vegar á fram­leiðslu­kerfi vega­bréfa. Alls bár­ust tólf til­boð í hönnun og fram­leiðslu á vega­bréf­unum, þar á meðal frá Ísrael, Þýska­landi, Bret­landi, Ung­verja­landi og Spáni. Svo fór að til­boði pólska fyr­ir­tæk­is­ins PWPW var tekið, en sam­kvæmt heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins sér­hæfir það sig í alls kyns örygg­is­skil­ríkjum, þar á meðal vega­bréfum og greiðslu­kortum. Það var í vinnu með fyrr­nefndu PWPW að upp kom sú hug­mynd að nota íslenskar lands­lags­myndir í vega­bréf­unum.

„Það var álit sér­fræð­inga að til þess að tryggja betur öryggi íslenska vega­bréfs­ins sem ferða­skil­ríkis þá væri þörf á bæði nýrri útlits­hönnun en einnig nýrri hönnun á örygg­is­þáttum. Það fóru fram nokkrir fundir með sér­fræð­ingum Þjóð­skrár Íslands og erlenda hönn­un­arteymi PWPW um hvernig ný hönnun átti að vera og ýmsar hug­myndir og til­lögur nefndar. Í sam­vinnu við dóms­mála­ráðu­neytið var sam­mælst um að styðj­ast við lands­lags­myndir af nátt­úru Íslands,“ segir í skrif­legu svari frá Þjóðskrá Íslands.

Óljóst er hvort gjald­skrá vega­bréfa breyt­ist í takt við nýja hönnun, en í dag kostar vega­bréf 12.300 krónur fyrir 18 til 66 ára og 5600 krónur fyrir börn, aldr­aða og öryrkja, ef miðað er við almenna afgreiðslu.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi