Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rangfeðrað fólk knúið í dómsmál

Það er mikið áfall fyrir fólk að kom­ast að því að það hafi verið rang­feðrað.

Rangfeðrað fólk knúið í dómsmál
|||

Því síður er auð­velt fyrir sömu ein­stak­linga að þurfa að höfða dóms­mál til að fá réttan upp­runa sinn stað­festan. Ráðast þarf í úrbætur á barna­lög­gjöf­inni þegar mál þessa fólks eru til með­ferðar og auka þarf rétt feðra til þess að höfða fað­ern­is­mál sem er lít­ill sem eng­inn núna að mati lög­fræð­ings. Mannlíf ræddi við karl og konu sem bæði voru rang­feðruð og segja þá reynslu mjög erf­iða.

„Ég fékk stað­fest­ingu á því að ég væri sonur ann­ars manns 2013 kom­inn langt á sjö­tugs­aldur. Mig hafði grunað þetta frá því ég var 17 ára þegar móðir mín gaf í skyn að ég væri ekki sonur föður míns en nefndi aldrei nafn míns rétta föður. Ég komst bara að því nýlega,“ segir maður í sam­tali við Mannlíf sem treystir sér ekki til að koma fram undir nafni vegna þessa máls.

„Þetta þykir öllum í fjöl­skyld­unni minn afskap­lega við­kvæmt og hefur legið þungt á mér alla tíð. Ég vil meina að þetta hafi mótað mig sem ein­stak­ling, allur þessi efi og þrá mín eftir réttum föður í marga ára­tugi. Þegar ég fékk loks stað­fest­ingu á því með líf­sýna­prófi að ég væri sonur ann­ars manns var þungu fargi af mér létt. Ég eign­að­ist við það fimm systk­ini sem hafa tekið mér vel sem er dýr­mætt. Þetta er ólýs­an­leg til­finn­ing að þekkja ekki upp­runa sinn og ég held það sé ómögu­legt að skýra það út fyrir nokkrum sem ekki hefur upp­lifað það,“ segir hann.

Veigrar sér við dómsmáli

Það sem hann hins vegar þráir núna, kom­inn á átt­ræð­is­aldur, er að hann sé rétt feðr­aður í þjóð­skrá. Hann reyndi að fá fað­ern­inu breytt í þjóð­skrá en stofn­unin hefur hafnað beiðni hans þar sem ekki liggur fyrir dóms­úr­skurður um rétt fað­erni. Það er hins vegar ansi flókið ferli. Fyrst þyrfti hann að höfða svo­kallað véfeng­ing­ar­mál þar sem upp­haf­legu fað­erni yrði hnekkt fyrir dómi með líf­sýna­prófi því til stað­fest­ingar. Að því loknu þyrfti hann að höfða fað­ern­is­mál sem er annað dóms­mál til að stað­festa fað­ernið með líf­sýna­prófi því til sönn­unar. Bæði dóms­mál og mann­erfða­fræði­leg rann­sókn á blóð­sýnum eru nið­ur­greidd af rík­is­sjóði. Barna­lögin segja um þessar aðstæður að ein­stak­lingur sem leitar fað­erni síns þurfi að stefna þeim manni eða mönnum sem taldir eru hafa haft sam­farir við móður á getn­að­ar­tíma. Sé sá maður lát­inn áður en málið er höfðað er lög­erf­ingjum hans stefnt.

„Ég get … ekki hugsað mér að stefna systk­inum mínum fyrir dóm sem ég hef nýlega kynnst. Ég þrái það heitt að vera rétt feðr­aður og skráður sem slíkur í opin­berum skrám en mér finnst það of mikið lagt á alla í kringum mig.“

Líf­fræði­leg móðir og faðir við­mæl­anda Mannlífs eru bæði látin og mað­ur­inn sem hann var upp­haf­lega feðr­aður líka. Þetta þýðir að hann þarf að höfða dóms­mál á hendur systk­inum sínum, móður megin, til að hnekkja upp­haf­legu fað­erni og svo yrði hann knú­inn til að stefna nýjum systk­inum sínum fyrir dóm í fað­ern­is­mál­inu.

„Ég get ein­fald­lega ekki hugsað mér að stefna systk­inum mínum fyrir dóm sem ég hef nýlega kynnst. Ég þrái það heitt að vera rétt feðr­aður og skráður sem slíkur í opin­berum skrám en mér finnst það of mikið lagt á alla í kringum mig,“ segir hann. „Ef ég fengi að skrá nafnið mitt rétt yrði ég sáttur. Meira færi ég ekki fram á. Mér finnst þetta hrein mis­munun að geta ekki fram­vísað líf­sýna­prófi sem stað­festir svo ekki verður um villst að ég er hálf­bróðir systk­ina minna. Með því að höfða opin­bert dóms­mál ótt­ast ég að ætt­ingjar mínir taki því illa svo við­kvæmt er þetta mál eins og gefur að skilja.“

Gat ekki hætt að leita föður síns

Bene­dikta Eik Eiríks­dóttir var rúm­lega þrí­tug að aldri þegar hún komst að því að hún var rang­feðruð. „Ég fékk áfall við að heyra að ég væri ekki dóttir manns­ins sem ég var feðruð en

Bene­dikta Eik Eiríks­dóttir hefur verið ófeðruð í þjóð­skrá í tutt­ugu ár eftir að hún höfð­aði véfeng­ing­ar­mál gegn móður sinni og mann­inum sem hún var upp­haf­lega feðruð. Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

mig hafði alltaf grunað það. Ég var þá ekki galin en það tók mikið á að horfast í augu við það eitt og sér,“ segir Bene­dikta sem hefur í tvígang með átta ára milli­bili sagt við­burða­ríka sögu sína í Kast­ljósi, nú síð­ast í des­em­ber síð­ast­liðnum. Henni var greint frá því fyrir rúmum tutt­ugu árum að hún væri ekki dóttir manns­ins sem hún taldi vera föður sinn. Sá maður sem móðir hennar taldi vera líf­fræði­legan föður hennar reynd­ist ekki heldur vera rétti líf­fræði­legi faðir hennar þegar blóð­sýni þeirra voru rann­sökuð. Fram undan var löng og erfið leit.

„Mig grun­aði aldrei að ég þyrfti að leita að honum og hvað þá að þetta tæki allan þennan tíma. Ég var samt alltaf sann­færð um að ég yrði að finna út hverra manna ég væri. Ég gat ekki hætt þarna,“ segir hún. Leitinni lauk í fyrra þegar hún fékk nafn­laust sím­tal sem kom henni á sporið við að finna sinn rétta föður sem síðar var stað­fest með líf­sýna­rann­sókn. Faðir hennar hét Eiríkur Ragnar Guð­jóns­son og lést árið 2013.

„Ég náði aldrei að hitta hann því miður. Ég mun bara þekkja pabba minn í gegnum hans nán­ustu. Mér tókst hins vegar að finna hann og fyrir það er ég gríð­ar­lega þakk­lát. Ég græddi fimm systk­ini í við­bót og mömmu þeirra líka. Þau hafa tekið mér rosa­lega vel, ég finn hvað ég er vel­komin í fjöl­skyld­una og ég reyni að rækta sam­bandið við þau,“ segir hún.

Vandinn við dómsmál er tilfinningalegs eðlis

Bene­dikta hefur verið ófeðruð í þjóð­skrá í tutt­ugu ár eftir að hún höfð­aði véfeng­ing­ar­mál gegn móður sinni og mann­inum sem hún var upp­haf­lega feðruð. Hún ákvað í sam­ráði við hin nýju fimm systk­ini sem hún eign­að­ist á einni nóttu að höfða fað­ern­is­mál og fá það stað­fest fyrir dómi að Eiríkur væri réttur líf­fræði­legur faðir sinn. „Ég hef ekki getað kallað mig dóttur neins í tutt­ugu ár og get núna loks­ins kallað mig Eiríks­dóttur í þjóð­skrá sam­kvæmt úrskurði hér­aðs­dóms og það er mjög mik­il­vægt fyrir mig. „Þegar ég sá fram á að þurfa að stefna nýju systk­inum mínum fyrir dóm og gera þetta mál opin­bert þá setti ég mig í stell­ingar og hélt að þau yrðu ósátt við það. Það varð aldrei og þau sýndu mér fullan skiln­ing og fyrir það er ég óend­an­lega þakk­lát. Kostn­að­ur­inn við dóms­með­ferð­ina er ekki vand­inn í sjálfu sér því hann er að mestu nið­ur­greiddur heldur er hann til­finn­inga­legs eðlis. Þótt þau hafi öll sam­þykkt máls­með­ferð­ina fyrir dómi vit­andi að hún væri bara form­legs eðlis þá er ekki alltaf hlaupið að því að stefna nýjum ætt­ingjum sínum fyrir dóm sem svo er gerður opin­ber,“ segir Bene­dikta. „Ég er enn þá að reyna að ná utan um þetta allt saman, ég næ því kannski einn dag­inn.“

Ríkið greiði fyrir mannerfðafræðilegar rannsóknir

Á tutt­ugu árum hefur Bene­dikta látið bera líf­sýni sitt við fimm menn í leit­inni að réttum föður því móðir hennar sýndi ekki mikla við­leitni til að aðstoða hana við leit­ina. Tvær blóð­rann­sóknir voru greiddar úr rík­is­sjóði af því þær reynd­ust réttar, ann­ars vegar í

Það er mikið áfall fyrir fólk að kom­ast að því að það hafi verið rang­feðrað. Því síður er auð­velt fyrir sömu ein­stak­linga að þurfa að höfða dóms­mál til að fá réttan upp­runa sinn stað­festan. Mynd / Aldís Páls­dóttir

véfeng­ing­ar­mál­inu og hins vegar í fað­ern­is­mál­inu en hin þrjú sem sýndu engin blóð­tengsl greiddi hún úr eigin vasa.

Anna Margrét Pét­urs­dóttir útskrif­að­ist sem lög­fræð­ingur frá Háskól­anum í Reykja­vík í fyrra­vor og skrif­aði meist­ara­rit­gerð um feðr­un­ar­reglur barna­laga. Hún telur meðal ann­ars að það þurfi að end­ur­skoða reglur um nið­ur­greiðslu á mann­erfða­fræði­legum rann­sóknum. En þær fást ekki end­ur­greiddar nema dómur hafi gengið í mál­inu og ein­göngu ef nið­ur­staða stað­festir blóð­tengsl. „Þegar ein­stak­lingur leitar upp­runa síns, liggja fyrir í mörgum til­fellum aðeins orð móður eða jafn­vel sögu­sagnir um hver það sé sem sé mögu­legur faðir. Fenginn er úrskurður hér­aðs­dóms fyrir því að taka megi sýni svo unnt sé að fram­kvæma rann­sókn. Leiði sú rann­sókn í ljós að úti­lokað sé að við­kom­andi sé faðir ein­stak­lings­ins þýðir það að hann þurfi sjálfur að bera kostnað af mál­inu. Það skiptir því máli að kostn­aður vegna slíkra mála falli alltaf á rík­is­sjóð óháð nið­ur­stöðu í rann­sóknum, ann­ars veigra ein­stak­lingar sér við að höfða mál og fá því ekki svarað þeirri mik­il­vægu spurn­ingu sem legið hefur þungt á þeim. Íslenska rík­inu ber skylda til að upp­fylla ákvæði mann­rétt­inda­sátt­mála og Barna­sátt­mála sem lög­festir eru hér á landi þar sem kveðið er á um að barn eigi rétt á að þekkja for­eldra sína. Mín skoðun er því sú að rík­inu beri skylda til að tryggja þessi rétt­indi,“ segir Anna Margrét.

Feður hafa takmarkaðan rétt til höfða faðernismál

Anna Margrét ákvað að skoða feðr­un­ar­reglur í barna­lögum í sínu loka­verk­efni meðal ann­ars vegna þess að náinn ætt­ingi hennar hefur reynt að kom­ast að réttu fað­erni í fjölda­mörg ár án árang­urs. „Það eru mann­rétt­indi að þekkja upp­runa sinn og þau rétt­indi eru ekki nægi­lega tryggð í gild­andi barna­lög­gjöf. Að mínu mati er nauð­syn­legt að ráð­ast í úrbætur svo umrædd rétt­indi verði tryggð með full­nægj­andi hætti.“ Hún segir að mörgum þyki þetta flókið, kostn­að­ar­samt og íþyngj­andi ferli að þurfa fara fyrir dóm­stól til að sækja þennan rétt.

Anna Margrét Pét­urs­dóttir skrif­aði meist­ara­rit­gerð um feðr­un­ar­reglur barna­laga.

„Raun­veru­leik­inn er sá að börn eru rang­lega feðruð hér á landi. Það er skortur á úrræðum fyrir rang­feðr­aðra ein­stak­linga og að auki hafa karl­menn sem telja sig föður barns enga mögu­leika á að láta á fað­erni sitt reyna.“ Hún segir að fað­ern­is­regla barna­laga, svokölluð pater-est-regla feli í sér að eig­in­maður eða maður sem skráður er í sam­búð með móður telst sjálf­krafa faðir barns hennar. Ákvarð­anir fólks um sam­búð­ar­form hafi því áhrif á feðrun barna. Í flestum til­vikum telj­ist eðli­legt að svo sé en það geti þó komið fyrir að börn séu rang­lega feðruð af þessum sökum. Þótt konan sé ekki í sam­búð eða í hjóna­bandi þegar barnið er getið þá hefur faðir barns­ins engan rétt ef konan hefur sam­búð eða gengur í hjóna­band með öðrum manni áður en barnið fæð­ist.

„Barn er sjálf­krafa rang­lega feðrað eig­in­manni eða manni sem móðir þess er skráð í sam­búð með sem veldur því að sá sem rétti­lega telur sig vera faðir barns getur ekki höfðað fað­ern­is­mál þar sem barnið hefur þegar verið feðrað. Þessu þarf að breyta og eru til­lögur mínar þær að rýmka skuli máls­höfð­un­ar­heim­ildir barna­laga til að tryggja manni sem telur sig föður barns heim­ild til að höfða fað­ern­is­mál og/eða véfeng­ingar- og ógild­ing­ar­mál. Með því yrði rétt­indum barns til að þekkja upp­runa sinn gert hærra undir höfði og opnuð sú leið að heim­ila mönnum að láta á fað­erni reyna fyrir dóm­stólum,“ segir Anna Margrét.

Texti / Helga Arn­ar­dóttir
Aðalmynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi