Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ég prófaði að fasta tvo daga í viku

Ég prófaði að fasta tvo daga í viku
||||

Ég er ofboðs­lega nýj­unga­gjörn mann­eskja og þegar að annar hver maður, og amma þeirra, var far­inn að fasta í lengri eða skemmri tíma þá bara varð ég að prófa.

Það eru auð­vitað til alls kyns föstur og verður hver og einn að finna föst­una í lífi sínu. Það er hægt að fasta ákveðið marga tíma á sól­ar­hring, það er hægt að fasta með því að borða ekki vissar fæðu­teg­undir í ákveð­inn tíma eða það er hægt að fasta þannig að maður borðar akkúrat ekki neitt og drekkur bara vökva. Ég ákvað að velja sein­asta kost­inn. Eftir að hafa vafrað enda­laust á inter­net­inu og lesið mér til um föstur ákvað ég að fasta tvo sól­ar­hringa í hverri viku og drekka ekk­ert nema vatn, kaffi og stöku dós af Pepsi Max. Ég hefði lík­leg­ast átt að sleppa mínu ynd­is­lega Max-i líka en mér fannst það full­mikið af því góða!

Ég valdi að fasta á mánu­dögum og fimmtu­dögum að vel ígrund­uðu máli. Mánu­dagar fannst mér full­komnir því þá er maður búinn að gúffa í sig öllu sem maður kemst í yfir helg­ina og er með smá kol­vetna­móral, eins fárán­legt og það hljómar. Svo valdi ég fimmtu­daga því ég vildi alls ekki fasta um helgar, út af fyrr­nefndu gúf­feríi, en vildi samt að það liði smá tími á milli fasta. Þetta ákvað ég síðan að gera í þrjár vikur til að geta skrifað þennan pistil um mína reynslu.

Það var samt alveg dýpri ástæða á bak við það að ég vildi prófa að fasta. Mig lang­aði að ná aftur í sjálfsag­ann og vilja­styrk­inn sem mér fannst ég hafa tapað. Ég var sem sagt orðin drullu­löt, svo ég segi það hreint út. Og eitt­hvað sagði mér að fasta væri alveg málið. Ef ég gæti neitað mér um mat í marga klukku­tíma, gæti ég nú gert ansi margt.

Morg­un­matur.

Vika 1 – Kökubakstur á fastandi maga

Það var pínu­lítið skrýtið að vakna á mánu­dags­morgun í fyrstu vik­unni og eiga heilan dag og kvöld framundan þar sem ég myndi ekki svo mikið sem narta í eitt tekex. Ég var alveg búin að und­ir­búa mig and­lega, og reyndar lík­am­lega líka (gúf­fer­íið, þið munið), kvöldið áður og var mjög peppuð fyrir þessu. Og viti menn, þessi mánu­dagur leið hjá eins og ekk­ert væri. Ég var bara ekk­ert svöng. Fyrr en klukkan sló fjögur. Búmm! Þá kom svengdin sem aldrei fyrr og heltók heil­ann á mér. Ég sá mat alls staðar og hefði létti­lega getað borðað tölv­una mína. En það magn­aða var að eftir sirka klukku­tíma var þessi yfir­gengi­lega svengd­ar­til­finn­ing liðin hjá. Auðvitað kom nart­löng­unin um kvöldið en ekk­ert sem ég réð ekki við.

Fimmtu­dags­fastan var erf­ið­ari. Bæði þriðju­dag og mið­viku­dag var ég búin að borða, algjör­lega ósjálfrátt, miklu minna en vana­lega. Ég var ekk­ert búin að narta eftir klukkan átta á kvöldin þannig að ég vakn­aði hálf­svöng á fimmtu­dags­morgun. Og allur dag­ur­inn var eig­in­lega kvöl og pína. Mig lang­aði svo mikið til að borða. Bara eitt­hvað. Allan dag­inn var ég að finna ný og ný verk­efni til að gleyma því að mig lang­aði til að borða. Og þá gerði ég einmitt stóru mis­tökin – ég bak­aði köku! Bakaði afmælisköku fyrir móður mína. Ómót­stæði­lega köku með fullt af smjör­kremi og fal­legum nammiskreyt­ingum. Var ég haldin sjálf­spín­ing­ar­hvöt? Eða var ég bara svona naut­heimsk? Þegar klukkan sló tólf gat ég ekki annað en dýft mér ofan í köku­af­skurð og smjör­krem. Ekki mín fal­leg­asta stund, ég við­ur­kenni það fús­lega.

Hádeg­is­matur.

Vika 2 – Meiri orka og meira vatn

Allt í einu fann ég fyrir orku sem ég hafði ekki haft í langan tíma. Ég var farin að stunda lík­ams­rækt nokkrum sinnum í viku, meira að segja á dög­unum sem ég var að fasta. Þá daga tók ég reyndar ekk­ert svaka­lega mikið á því, þar sem ég var hreini­lega hrædd um að það myndi líða yfir mig. Ég var farin að drekka miklu meira af vatni en áður og ég var farin að spá meira í því hvað ég væri að láta ofan í mig þá daga sem ég var ekki að fasta. Það var eins og lík­am­inn kall­aði frekar á hollan mat heldur en sæt­indi og kökur, sem ég er ansi svag fyrir.

Hins vegar var sama uppá teng­ingnum þegar kom að fimmtu­dags­föst­unni. Hún var svaka­lega erfið. Þúsund sinnum erf­ið­ari en mánu­dags­fastan. Þannig að þegar klukkan sló tólf fór ég rak­leiðis inní eld­hús að næra mig. En í þetta sinn var það ekki kaka og krem sem varð fyrir val­inu til að dúndra blóð­sykrinum uppí tungl og til baka. Ó, nei. Í þetta sinn valdi skyn­sama ég hnetur og eitt­hvað Goji-berja hrá­stykki sem var búið að safna ryki uppí skáp. Jey fyrir mér!

Kvöld­matur.

Vika 3 – Fimm kílómetra hlaup og enginn svefn

Síðasta vikan var klár­lega átaka­minnst. Ég var farin að reyna aðeins meira á mig í rækt­inni þá daga sem ég var að fasta og einn dag­inn hljóp ég meira að segja fimm kíló­metra án þess að finna fyrir höf­uð­verk eða óþæg­indum (#humblebrag).

Það var þó eitt sem var pínu­lítið erfitt. Okkur fjöl­skyld­unni var boðið í mat­ar­boð á mánu­deg­inum þannig að ég ákvað að fasta frekar á þriðju­degi. Ég hefði ekki getað trúað því hvað það var erfitt að skipta um dag til að fasta. Það var eins og föst­urnar mínar væru orðnar partur af lík­ams­klukk­unni og það að skipta um daga var eins og ég myndi henda þess­ari blessuðu klukku í vegg og síðan traðka á henni í her­manna­klossum með stáltá.

Ég var hætt að sofna yfir sjón­varp­inu eins og ég gerði nán­ast hvert ein­asta kvöld fyrir föstu­tíma­bilið mitt og ég kunni vel við alla þessa orku sem ég hafði.

Eina sem skyggði á þessa síð­ustu viku var að ynd­is­lega, tveggja ára dóttir mín átti erfitt með svefn aðfara­nótt föstu­dags og var ég með hana uppá arm­inum bróð­ur­part næt­ur­innar. Þá er ég fyrst að við­ur­kenna að ég nart­aði í kex og súkkulaði á milli þess sem hún vældi í eyrað á mér og klíndi hori í nátt­fötin mín. Mér fannst ég bara eiga það frekar mikið skilið.

Líkaminn hefur gott af gúffpásu

Þegar öllu er á botn­inn hvolft fannst mér mjög gaman að fasta. Það voru margir sem spurðu mig hvort ég hefði eitt­hvað grennst á þessu og ég held ekki. Ég alla­vega finn engan mun á föt­unum mínum. En mun­ur­inn sem ég finn er sá að ég er ánægð­ari með mig. Ég er stolt af mér að hafa getað þetta og sú til­finn­ing finnst mér miklu ynd­is­legri og mann­bæt­andi en nokkur grömm til eða frá. Það kom mér líka á óvart hve mikla orku ég hefði þó ég væri ekki að borða mat. Nú gætuð þið haldið að ég hefði kannski drukkið tólf lítra af kaffi á dag og 250 dósir af Pepsi Max, en svo var ekki. Kaffi­boll­arnir urðu yfir­leitt ekki fleiri en fjórir á dag og dós­irnar í mesta lagi þrjár.

Mér fannst rosa­lega erfitt að neita mér um mat þegar fjöl­skyldan mín var að borða saman kvöld­mat.

Það erf­ið­asta við að fasta er samt ekki svengd­ar­til­finn­ingin. Það er nefni­lega félags­legi part­ur­inn. Það var ofboðs­lega erfitt að setj­ast niður með fjöl­skyld­unni og horfa á þau borða. Maðurinn minn var reyndar mjög klókur að elda bara það sem mér finnst vont á þeim dögum sem ég var að fasta, eins og bjúgu og kál­böggla, þannig að mig lang­aði ekk­ert sér­stak­lega í mat­inn. Það er bara svo stór partur af deg­inum að setj­ast niður, allir saman, borða, hlæja og tala um dag­inn og veg­inn. Þegar ég var ekki að borða þá fannst mér ég ekki vera að taka almenni­lega þátt í þess­ari heilögu stund.

En ætla ég að halda þessu áfram? Já, ég held það bara. Eftir þessar þrjár vikur er fasta komin í hálf­gerðan vana. Þetta er orðið eðli­legt. Mér líður vel af þessu og mér finnst lík­ami minn hafa gott af því að fá smá gúff­pásu.

Hvað segir næringarfræðingurinn?

„Það eru skiptar skoð­anir um föstur hjá nær­ing­ar­fræð­ingum en ég er mjög hlynnt þessu. Það sem ger­ist þegar við föstum er að við erum að hvíla kerfið, hjálpa frumum að heila sig, jafna blóð­syk­ur­inn og end­urstilla horm­óna­starf­semi. Enn­fremur erum við að end­urstilla haus­inn okkar og verðum fyrir vikið með­vit­aðri um það sem við látum ofan í okkur dags dag­lega,“ segir Elísabet Reyn­is­dóttir, nær­ing­ar­fræð­ingur.

Hún segir það hafa góð áhrif á lík­amann að fasta, hvort sem það er í ein­hverja klukku­tíma á dag eða heilu sól­ar­hring­ana, en mælir þó ekki með að fasta í viku, eða lengri tíma, án þess að vera undir eft­ir­liti læknis. 

„Hins vegar er hægt að taka létta föstu í viku eða hálfan mánuð á ári þar sem við hvílum lík­amann á kaffi, unnum mat og kol­vetnum og drekkum frekar vatn og græn­met­is­drykki og borðum hreinan mat. Þannig hreinsum við lík­amann þó við séum að borða mat.“

Elísabet hvetur fólk til að prófa að fasta ef það hefur áhuga á því. 

„Ef að fólk finnur takt til betri heilsu og líður vel þá bara: “Go for it”. Það er engin ein rík­is­leið til. Það er gott að hafa ein­hver við­mið og nýta heil­brigða skyn­semi en svo finnur hver og einn þá leið sem hentar honum best.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi