Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Teiknar heimsfrægt fólk sem er alls staðar á netinu

Teiknar heimsfrægt fólk sem er alls staðar á netinu
|||||

„Mis­mun­andi and­lits­lag fólks er oft það sem veitir mér inn­blástur, einnig svip­brigði og skuggar. Það er mis­mun­andi hvaða ljós­mynd heillar mig hverju sinni,“ segir Anita Ástrós Pét­urs­dóttir. Anita er 23ja ára og útskrifuð af mynd­list­ar­braut frá Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti.

Anita Ástrós.

Anita hefur vakið eft­ir­tekt fyrir myndir sem hún teiknar af þekktum tón­list­ar­mönnum, þar á meðal Rihönnu, Tupac, Bob Marley og Ariönu Grande. Hún segir teikn­ing­ar­á­hug­ann hafa kviknað mjög snemma.

„Ég hef verið að teikna síðan ég var lítil en ég fékk fyrst áhuga á tölvu­teikn­ingu síð­asta árið mitt í Fjöl­braut í Breið­holti út frá áfanga þar sem kennt er á Adobe-for­ritin, Photos­hop, Ill­u­strator og InDesign. Ég fiktaði svo aðeins við að teikna meir í tölvu eftir það en ekk­ert af alvöru fyrr en um mitt síð­asta ár. Þá byrj­aði ég að prófa mig áfram við að teikna á iPad í for­riti sem heitir Procreate og hef verið að nota það mikið síðan,“ segir Anita.

Skemmtilegast að teikna portrettmyndir

Þó að fari mest fyrir teikn­ingum af heims­frægu fólki segir Anita að hún teikni líka önnur við­fangs­efni, allt eftir því hvað fangar hana hverju sinni.

Popp­stjarnan Rihanna.

„Ég byrj­aði á að teikna fólk sem veitir mér inn­blástur á ein­hvern hátt og heillar mig. Oft sé ég líka myndir af þessu fólki sem mér finnst fal­legar og langar til að teikna. Ég er alveg líka að teikna öðru­vísi myndir, eins og tískuskissur og -teikn­ingar til dæmis, en mér finnst skemmti­leg­ast að teikna por­trett­myndir. Og þar sem frægt fólk er alls staðar á net­inu er auð­velt að detta í það að teikna þau.“

Anita teiknar líka eftir pöntun og hefur fengið góð við­brögð við lista­verk­unum sínum.

„Ég hef verið að taka að mér nokkur verk­efni og finnst mér mjög gaman að fá pant­anir frá áhuga­sömu fólki. Ég er til­tölu­lega nýbyrjuð að setja inn myndir eftir mig á sam­fé­lags­miðla en hingað til hef ég fengið jákvæð við­brögð. Það veitir mér líka inn­blástur að fólki líki við það sem ég er að gera,“ segir Anita.

Ætlar að auka við kunnáttuna

Hún stefnir á meira nám í hönnun en hefur frá útskrift úr Fjöl­braut í Breið­holti varið tím­anum í að átta sig á hvaða stefnu hún ætlar að taka í líf­inu.

„Eftir að ég útskrif­að­ist hef ég verið að vinna og ferð­ast einna helst og reyna að finna betur út úr því hvaða háskóla­nám mun henta mér best, en ég stefni lík­leg­ast á graf­íska hönnun eða tísku­hönnun á næst­unni, nám þar sem ég get haldið áfram að auka við kunn­áttu mína.“

Þeir sem vilja fylgj­ast með Anitu er bent á Instagram– og Facebook-síður hennar.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi