Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heilandi að taka þátt í sögu annarra

Steinunn Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur hjálpar fólki að skrifa sig frá erf­iðum til­fin­ingum.

Heilandi að taka þátt í sögu annarra
|

Steinunn Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur leið­beinir fólki sem vill losa sig frá erf­iðum til­finn­ingum með skap­andi skrif­legri tján­ingu á rit­mennsku­nám­skeiði við Heilsu­stofnun Nátt­úru­lækn­inga­fé­lags Íslands í Hvera­gerði. Hún trúir á gagn­semi þess og seg­ist sjálf hafa grafið eftir eigin sorg þegar hún skrif­aði Tíma­þjófinn.

„Við byrjum á því að skrifa um og fjalla um erf­ið­leika og skugga en svo fikrum við okkur í átt­ina að ljós­inu, skrifum um það sem er jákvætt og þakk­ar­vert og reynum að byggja á því til fram­tíðar,“ segir Steinunn.

„Mark­miðið er að lífs­byrði þátt­tak­enda létt­ist með því að þeir nái að tjá sig um erf­iðar hugs­anir og til­finn­ingar í rit­uðu máli.  Með því að vinna úr þessum erf­iðu til­finn­ingum skrif­lega þá næst önnur nálgun heldur en með ein­ungis þráð­beinni munn­legri tján­ingu – sem er auð­vitað óhjá­kvæmi­leg líka á svona nám­skeiði,“ útskýrir Steinunn þegar blaða­maður grennsl­ast fyrir um nám­skeiðið. „En eitt af því undra­verða sem ég hef séð á fyrri nám­skeiðum er svo hvernig hóp­ur­inn verður að upp­bygg­ing­ar­afli sem er mjög sterkt.“

Þessi aðferð, að skrifa sig frá erf­iðum til­finn­ingum, hefur sýnt sig að hún beri árangur?  „Ég fann það auð­vitað ekki upp að rit­mennska gæti hjálpað fólki til að ná tökum á and­legum sárs­auka og til þess að vinna úr áföllum, erf­ið­leikum og sorg.  Þannig að aðferðin er má segja við­ur­kennd, heilt yfir. Hins vegar hef ég fundið út mína eigin útgáfu og útfærslu. Og það hlýtur að vera leitun að leið­bein­anda sem hefur mína löngu reynslu af rit­störfum, hálf öld, takk,“ segir hún og kveðst þess utan eiga í sínum reynslu­banka ýmis­legt nýti­legt, allt frá háskóla­nám­inu til alls konar lífs­reynslu, sem sé að hluta til afskap­lega sárs­auka­full. „Og mér mundi auð­vitað ekki detta í hug að leið­beina á svona nám­skeiði nema af því að ég er opin fyrir öðrum og mig langar ein­læg­lega til þess að verða náung­anum til gagns og gam­ans.“

„… mér mundi auð­vitað ekki detta í hug að leið­beina á svona nám­skeiði nema af því að ég er opin fyrir öðrum og mig langar ein­læg­lega til þess að verða náung­anum til gagns og gam­ans.“

En hefur aðferðin langvar­andi jákvæð áhrif á and­lega heilsu fólks? „Ja, eitt get ég sagt með vissu í ljósi þess að ég hef gert þetta áður og það er að skamm­tíma­á­hrifin á nám­skeið­unum hafa verið ótrú­lega upp­lyft­andi og upp­lífg­andi.  Sumir hafa viljað koma aftur, þar á meðal ein eldri kona sem hafði þau orð við mig að nám­skeiðið væri ein­stakt, maður færi „út úr sinni sögu.“  Og þetta var eitt af því góða sem ég sá ekki fyrir að er „heilandi“ ef ég má nota það orð að taka þátt í sögu ann­arra.“

Gróf eftir sinni eigin sorg

Þegar hún er spurð hvort hún hafi sjálf skrifað til að losa sig frá erf­iðri reynslu eða erf­iðum til­finn­ingum seg­ist Steinunn ekki eiga gott með að svara þeirri spurn­ingu. Hún hafi fyrst byrjað að skrifa í kringum tólf eða þrettán ára aldur í til­finn­inga­um­róti og þyngslum ung­lings­ár­anna. Sé hún að skrifa sig frá ein­hverju sé það ósjálfrátt. Það sé ekki til­gang­ur­inn með skrif­unum, hvort sem það er í ljóði eða skáld­sögu.

„En ég hef séð það á prenti oftar en einu sinni að Alda Ívarsen í Tíma­þjófnum sé ein­hver harm­ræn­asta per­sóna í seinni tíma bókum á íslensku. Og ég get alveg full­yrt að ég hafi grafið eftir minni eigin sorg þegar ég bjó Öldu til,“ við­ur­kennir hún.

En hvernig stóð eig­in­lega á því að þú fórst að af stað með þetta nám­skeið? „Þetta byrj­aði nú þannig að mér bauðst að vera fyrsti stað­ar­rit­höf­undur við Háskól­ann í Strass­borg, flytja þar fyr­ir­lestra og kenna skap­andi skrif. Í fyrstu umferð komu fimmtán úrvalsnem­endur með mjög ólíkan bak­grunn og þarna mynd­uð­ust mögnuð tengsl bæði þeirra á milli og milli mín og hóps­ins. Nokkrir voru ákaf­lega feimnir í byrjun, en í pakk­anum var meðal ann­ars að allir þurftu að standa upp og lesa upp­hátt.

„Ég hvet þátt­tak­endur til þess að nota húmor í skrif­unum þegar líður á nám­skeiðið, enda er húmor sammann­leg tækni til þess að lifa af erf­ið­leika,“

Smám saman varð ég vitni að hrein­asta undri, já ég kalla það bara undur, því ég var svo upp­numin og hissa þegar nem­end­urnir sem mest voru til baka fóru að blómstra. Og þá laust þeirri hug­mynd niður í koll­inn á mér hvort fólk sem glímir við erf­ið­leika, er nið­ur­dregið, gæti í hópi og með leið­bein­anda mögu­lega skrifað sig frá erf­iðum til­finn­ingum.“

Fikrum okkur í áttina að ljósinu

Að sögn Stein­unnar koma þátt­tak­endur á Rit­mennsku­nám­skeiðið á NLFÍ í Hvera­gerði að morgni föstu­dags­ins 2. febr­úar og stendur nám­skeiðið þar til síð­degis á sunnu­degi, 4. febr­úar. Inni­falið er gist­ing í tvær nætur, aðgangur að sund­laug, tækja­sal og allur matur á staðnum. Þátt­tak­endur skrifa meðan á nám­skeið­inu stendur og farið er yfir text­ana í hópnum.  „Við byrjum á því að skrifa um og fjalla um erf­ið­leika og skugga en svo fikrum við okkur í átt­ina að ljós­inu, skrifum um það sem er jákvætt og þakk­ar­vert og reynum að byggja á því til fram­tíðar. Ég hvet þátt­tak­endur til þess að nota húmor í skrif­unum þegar líður á nám­skeiðið, enda er húmor sammann­leg tækni til þess að lifa af erf­ið­leika,“ segir hún og bætir við að frá hennar bæj­ar­dyrum séð sé nám­skeiðið haldið við kjörað­stæður þar sem þátt­tak­endur hverfa úr amstri hvers­dags­ins, á þennan ein­staka stað sem Heilsu­stofnun NLFÍ í Hvera­gerði sé.

En nú er þetta helg­ar­nám­skeið, er ekki við­búið að þeir sem sækja það þurfi að halda áfram með vinn­una að því loknu? „Ég legg til að fólkið mitt byrji hvers­dag­inn sinn á því að skrifa, þó ekki sé nema eina línu.  Svo er það undir hverjum og einum komið hvernig hann vinnur úr lífs­reynsl­unni á nám­skeið­inu og leið­bein­ing­unum,“ svarar hún og segir það út af fyrir sig magnað að senda þátt­tak­endur heim létt­ari á brún eftir nám­skeiðið.

Texti / Roald Eyvinds­son
Myndir / Sig­tryggur Ari Jóhanns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi