Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Forsætisráðherra: ,,Framsóknarbollinn er stofustáss“

Katrín Jak­obs­dóttir sæk­ist eftir not­uðum hús­gögnum.

Forsætisráðherra: ,,Framsóknarbollinn er stofustáss“
For­sæt­is­ráð­herra Íslands og for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs
For­sætiráð­herra Íslands, Katrín Jak­obs­dóttir á marga hluti sem hafa til­finn­inga­legt gildi fyrir hana og fjöl­skyld­una.

For­sætiráð­herra Íslands og for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, Katrín Jak­obs­dóttir er virkur safn­ari. Hún á marga hluti sem hafa til­finn­inga­legt gildi fyrir hana og fjöl­skyld­una. Hún á þó nokkra erfða­gripi sem eiga sér sögu og ylja henni um hjarta­rætur. Henni þykir ein­stak­lega vænt um list­verkin sem syn­irnir hafa fært þeim hjónum.

Upp­á­halds­hönn­uður? ,,Ég fylgist ekki mikið með tísku, hvorki í fötum né öðru, og verð seint sökuð um að hafa mikið vit á þessum geira en ég hef verið mjög ánægð með grósk­una í íslenskri hönnun og hef til að mynda verið mjög ánægð með það sem ég hef keypt hjá Farmers market, Hildi Yeoman, Jör og fleirum.“

Besti mat­ur­inn? „Suð­ur­franskur og norð­ur­a­frískur matur.“

Hvað dreymir þig um að eign­ast? „Mig dreymir nú sjaldan um að eign­ast neitt.“

Hvers getur þú ekki lifað án? „Mér er alltaf kalt þannig að ég verð að nefna ull­ar­peysur og ull­ar­trefla. Fer helst ekk­ert án tref­ils.“

Upp­á­halds­lífs­stíls­búð? „Er IKEA lífs­stíls­búð?“

Upp­á­halds­flík? „Upp­á­halds­flík er gæru­jakki sem góð kona saum­aði fyrir mig fyrir nokkrum árum en í honum verður mér ekki kalt.“

,,Ég fylgist ekki mikið með tísku, hvorki í fötum né öðru, og verð seint sökuð um að hafa mikið vit á þessum geira en ég hef verið mjög ánægð með grósk­una í íslenskri hönnun og hef til að mynda verið mjög ánægð með það sem ég hef keypt hjá Farmers market, Hildi Yeoman, Jör og fleirum.“

Er eitt­hvað sér­stakt sem þú gerir fyrir heim­ilið haustin? „Þegar mikið er að gera er það nú fátt annað en að kveikja á kertum í hauströkkr­inu.“

Hér að neðan eru hlutir sem eru í sér­stöku upp­á­haldi hjá Katrínu.

1. Fram­sókn­ar­boll­inn er stofustáss sem Birkir Jón Jónsson færði mér á Alþingi fyrir nokkrum árum og end­aði í jóla­pakka eig­in­manns­ins sem rekur sín eigin holl­vina­sam­tök fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn enda genetískur Fram­sókn­ar­maður.

Birkir Jón Jónsson færði Katrínu þennan bolla.

2. Píanóið (hér að neðan) er gam­alt, lík­lega frá 1926, en það keypti móð­ur­amma mín fyrir sín fyrstu mán­að­ar­laun í kennslu. Móð­ur­systir mín færði okkur píanóið fyrir nokkrum árum þegar elsti sonur minn hóf nám í píanó­leik og það hefur reynst svona ljóm­andi vel þrátt fyrir háan aldur.

3. Litríku mynd­irnar á veggnum. Hér má sjá nokkur lista­verk eftir syn­ina þrjá en þeir eiga þennan vegg. Hæfi­leikar þeirra innan list­anna liggja á ólíkum sviðum.

4. Eggið á borð­inu fengum við að gjöf á Djúpa­vogi en þetta verk er eftir Sigurð Guð­munds­son mynd­list­ar­mann sem er höf­undur úti­lista­verks­ins Eggin í Gleðivík.

Frá vinstri: Píanó sem móð­ur­amma Katrínar átti, myndir eftir syni hennar og lista­verk eftir Sigurð Guð­munds­son.

5. Áletr­unin á veggnum. Hún er lista­verk eftir Hlyn Hallsson, vin okkar, sem spreyjaði þessi skila­boð á íslensku, sænsku og arab­ísku.

6. Púltið. Þetta púlt var í eigu Sigvalda Guð­munds­sonar, langafa eig­in­manns míns, en það sem er skemmti­legt við púltið er að það hefur að geyma leyni­hólf. Í púlt­inu geymum við eitt og annað sem felur í sér sögu og tengsl við ræt­urnar.

7. Eldhúsið. ABBA-segl­arnir eru keyptir á ABBA-safn­inu í Stokk­hólmi en ég er mik­ill aðdá­andi og læt mig dreyma um að gista ein­hvern tíma á hót­el­inu sem Benny Anderson rekur í Stokk­hólmi.

Frá vinstri: Lista­verk eftir Hlyn Hallsson, púlt sem var í eigu langafa eig­in­manns Katrínar og ABBA-segl­arnir.

Höfundur / Sjöfn Þórð­ar­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi