Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjónvarpskonan Helga Arnardóttir gengur til liðs við Birtíng

Sjón­varps­konan Helga Arn­ar­dóttir hefur verið ráðin yfir­rit­stjóri útgáfu­fé­lags­ins Birtíngs, sem gefur út frí­blaðið Mannlíf og tíma­ritin Gest­gjafann, Hús og híbýli og Vikuna.

Sjónvarpskonan Helga Arnardóttir gengur til liðs við Birtíng

Helga mun rit­stýra Mannlífi og hafa yfir­um­sjón með áfram­hald­andi staf­rænni upp­bygg­ingu en Birtíngur opn­aði nýverið lífstílsvef­inn man.is, sem er sam­eig­in­legur vefur allra miðla félags­ins.

Hún mun starfa náið með núver­andi rit­stjórum tíma­rita Birtíngs, leiða aukið sam­starf rit­stjórna og marka rit­stjórn­ar­stefnu Mannlífs og man.is. Frí­blað­inu er dreift inn á öll heim­ili á höfu­borg­ar­svæð­inu og er aðgengi­legt til nið­ur­hals á vefnum.

“Ég hlakka til að hefja störf hjá Birtíngi og lít á það sem mikla áskorun að takast á við prent­miðla á þessum tímum og finna þeim tryggan far­veg í síbreyti­legu fjöl­miðlaum­hverfi,” segir Helga. “Það verður spenn­andi verk­efni að leiða nokkur af vin­sæl­ustu tíma­ritum lands­ins inn á nýjar brautir í hinum staf­ræna heimi og koma með ferskt frí­blað mán­að­ar­lega um brýn sam­fé­lags­mál, sem varða okkur öll og mál­efni líð­andi stundar.“

Helga hefur starfað í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kast­ljósi hjá Rík­is­út­varp­inu frá árinu 2014, og auk þess hefur hún fram­leitt og haft umsjón með heim­ild­ar­þætt­inum Mein­særið um rangar sak­ar­giftir í Geir­finns­mál­inu og fjög­urra þátta­röð um leik­feril Eddu Björg­vins­dóttur leikkonu.

Helga starf­aði í 7 ár á Stöð 2 sem frétta­maður í sjón­varpi og útvarpi, vakt­stjóri, frétta­þulur og dag­skrár­gerð­ar­maður í Íslandi í dag. Á Stöð 2 hafði hún umsjón með þátt­unum um Guð­mundar- og Geir­finns­málið, Manns­hvörf á Íslandi og Óupplýst lög­reglu­mál.

Hún hefur starfað við blaða­mennsku allt frá árinu 2002 og hóf störf sem frétta­maður hjá Rík­is­út­varp­inu 2004, þar til hún gekk til liðs við Stöð 2. Hún hlaut MA gráðu í International Journalism frá City Uni­versity of London árið 2010 með áherslu á sjón­varps-og rann­sókn­ar­blaða­mennsku. Hún er með BA gráðu í stjórn­mála­fræði og frönsku frá Háskóla Íslands og stúd­ents­próf frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík.

Gunn­laugur Árnason, stjórn­ar­for­maður Birtíngs: “Helga býr yfir mik­il­vægri reynslu á mörgum sviðum fjöl­miðl­unar. Hjá Birtíngi starfar hæfi­leik­a­ríkt fólk og Helga mun enn frekar styrkja rit­stjórn­arslag­kraft félags­ins.”

Helga hefur störf hjá Birtingi 2. jan­úar næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi