Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýuppgerð 50‘s íbúð með upprunalegu eldhúsi

Síðla nóv­em­ber­mán­aðar kíktum við í heim­sókn til Hildar Rutar Ingi­mars­dóttur en hún býr í nota­legri íbúð í Laug­ar­nes­hverf­inu ásamt unnusta sínum og tveim börnum.

Nýuppgerð 50‘s íbúð með upprunalegu eldhúsi

Húsið var byggt árið 1959 og ber íbúðin sem er 80 fm greini­leg merki um það, með fal­legum skraut­listum og ávölum línum. Fjöl­skyldan flutti inn fyrir um ári síðan og tóku eig­end­urnir íbúð­ina nán­ast alveg í gegn, en ákváðu þó að halda í allar inn­rétt­ingar og inn­byggða skápa og fríska heldur upp á það með hvítri máln­ingu.

„Okkur þótti upp­runa­lega inn­rétt­ingin svo fal­leg og renni­hurð­arnar skemmti­legar, svo við ákváðum að setja nýja borð­plötu á bekk­inn og skipta um öll tæki frekar en að splæsa í nýja inn­rétt­ingu – þetta var svaka­leg vinna en auð­vitað vel þess virði,“ segir Hildur.

Fjöl­skyldan bjó áður í Bryggju­hverf­inu en hún segir þau kunna mun betur við sig í Lauga­nes­inu, enda sé bak­arí, sund­laug og barn­væna kaffi­húsið Kaffi Lauga­lækur handan við hornið.

Innanhússinnblástur frá veitingastöðum

Breytt­ist stíll heim­il­is­ins mikið við flutn­ing­ana? „Já, við höfum verið dug­leg að end­ur­nýja hús­gögnin síð­ast­liðið ár; sófann, borð­stofustól­ana og ljósin sem dæmi. Ég var orðin svo­lítið leið á borð­stofu­borð­inu og ákvað að lakka eik­arplöt­una dökka svo það myndi passa betur inn í stof­una og við vegg­fóðrið, ég fæ mestan inn­blástur fyrir heim­ilið við það að fara út að borða, en á veit­inga­stöðum er oft búið að skapa svo nota­lega stemn­ingu og ég vildi reyna að ná því í stof­una hér heima.“

Vegg­fóðrið bak­við borð­stofu­borðið er úr Esja Dekor.

Hildur lýsir stílnum sínum sem skand­in­av­ískum og kósí og seg­ist um þessar mundir hríf­ast meira af dekkri tónum í bland við græna liti, ásamt því að vera með æði fyrir fal­legum plöntum til að lífga upp á heim­ilið. Henni þykir einnig mik­il­vægt að nýta þá hluti sem hún á og finnst gaman að blanda saman eldri hlutum með sögu við nýrri heim­il­is­muni, en passar þó að hafa ekki of mikið uppi við í einu og er dug­leg að setja hluti í geymslu eða gefa yngri systrum sínum það sem hún er hætt að nota.

Eitt af aðal áhuga­málum Hildar er að nostra við heim­ilið og sem betur fer hafa hún og unnust­inn svip­aðan smekk þegar kemur að inn­an­stokks­munum.

Áður en þau fluttu inn skiptu þau um gól­f­efni, par­k­etið er frá Agli Árnasyni.

Eru ein­hverjar versl­anir sem þú heill­ast frekar af en aðrar? „Ég er mjög hrifin af öllu úr Heima­hús­inu og Pennanum og svo er ég ótrú­lega ánægð með komu HM Home hingað til lands, en það er svo gaman að geta keypt sér fal­lega hluti á góðu verði.“

Aðspurð hvort ein­hver hlutur á heim­il­inu sé í upp­á­haldi svarar Hildur að það sé par af mess­ing­kerta­stjökum sem voru í eigu langömmu hennar og myndin af New York sem hangir yfir sóf­anum. „Kærast­inn minn bað mín efst í Rockafeller Center í New York í fyrra og á mynd­inni er akkúrat útsýnið sem við höfðum yfir borg­ina á því augna­bliki. Mér þykir gaman að hafa hluti uppi við sem hafa per­sónu­lega merk­ingu fyrir okkur.“

Sófinn er úr Heima­hús­inu og myndin úr Rockafeller Center kveikir sér­stakar minn­ingar hjá Hildi og unnust­anum.

Hildur nefnir að á næsta ári muni þau fjöl­skyldan lík­leg­ast leita sér að stærra fram­tíð­ar­hús­næði, því dóttir þeirra þurfi eigið her­bergi fyrr eða síðar. „Við erum strax byrjuð að líta í kringum okkur og munum pott­þétt fara aftur í ein­hverjar fram­kvæmdir en það er svo skemmti­legt að geta valið gól­f­efnið og flís­arnar sjálfur og gert hús­næðið alveg að sínu. Það er svo mikið rót að flytja, svo núna ætlum að leita að hús­næði sem er til fram­búðar.“

Þess má geta að Hildur gaf út vin­sæla mat­reiðslu­bók fyrir um tveimur árum sem bar nafnið Avocado. Spurð út í hvort það sé í kort­unum að gefa út fleiri bækur segir hún: „Já, ég ætl­aði að reyna fyrir þessi jól, en svo varð ég ólétt og plönin breytt­ust aðeins. Stefnan er þó að gefa út aðra bók á kom­andi árum og taka þá fyrir annað hrá­efni eins og ég gerði með Avocado-bók­ina.“

Lampann í for­stof­unni ættu flestir að þekkja, en hann er frá versl­un­inni Snúrunni.

Ljós­myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni