Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjálfbær hönnun sem stenst tímans tönn

Danska hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Gejst var stofnað í Óðins­véum í Danmörku árið 2013 af hönn­uð­unum Søren Nielsen og Niels Grubak Iversen. Ástríða fyrir end­ing­ar­góðri hönnun var kveikjan að stofnun fyr­ir­tæk­is­ins en fyr­ir­tækið ein­setur sér að hafa sjálf­bærni að leið­ar­ljósi. Mark­miðið var að skora á hefð­bundna nálgun og hönn­un­ar­að­ferðir og skapa vörur sem stæð­ust tím­ans tönn bæði hvað varðar hönn­un­ina sjálfa og efn­is­val.

Sjálfbær hönnun sem stenst tímans tönn

Orðið gejst merkir eld­móður og er það grund­völlur fyr­ir­tæk­is­ins sem end­ur­spegl­ast í hönn­un­inni á metn­að­ar­fullan hátt. Hönnun fyr­ir­tæk­is­ins er inn­blásin af skand­in­av­ískum lífs­stíl og sam­anstendur af alls kyns heim­il­is­vörum sem fjölgar ár hvert.

Árið 2017 urðu breyt­ingar á eign­ar­haldi fyr­ir­tæk­is­ins en þá gekk Thomas Heunicke til liðs við Gejst en hann hafði áður starfað fyrir By Lassen sem flestir þekkja. Á sama tíma seldi Niels Grubak Iversen hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu og leit­aði á önnur mið. Snemma árs 2018 bætt­ust svo Nadia Lassen og Peter Øster­berg í hóp­inn en þau voru bæði hlut­hafar í By Lassen til árs­ins 2016. Gejst hefur einnig fengið til sam­starfs við sig þekkta hönn­uði á borð við Michael Rem og hönn­un­arteymið Böttcher & Kayser.

Vegglistaverk og segulmagnaður verðlaunastjaki

Ein fyrsta varan sem Gejst setti á markað er Underground-snag­inn. Eins og nafn sna­g­ans gefur til kynna er hann inn­blás­inn af neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfi Lundúna og sést það glögg­lega á lögun hans. Að sögn Gejst er ekki um neinn venju­legan snaga að ræða heldur þjónar hann til­gangi vegg­lista­verks á sama tíma og nota­gildið er ótví­rætt. Sna­g­arnir koma í mattri áferð, ýmist hvítir eða svartir og með eik­ar­hnúðum.

Á und­an­förnum árum hefur Gejst verið hvað þekkt­ast fyrir hönnun Michael Rem á Molekyl-kerta­stjak­anum sem sam­anstendur af 40 stálkúlum í tveimur stærðum. Kúlurnar eru seg­ul­magn­aðar og er hægt að raða þeim saman á marga vegu. Hug­mynda­flugið eitt ræður för og verða því engir tveir stjakar eins en einnig er hægt að raða fjórum stjökum saman og mynda prýði­legan aðventu­krans. Stjak­arnir koma í þremur litum; svörtu, króm og brass. Michael hlaut hönn­un­ar­verð­launin German Design Award árið 2017 fyrir Molekyl-stjak­ann.

Smáhlutahillur og dulúðleg gróðurhús

Nýjustu vör­urnar úr smiðju Gejst eru meðal ann­ars Nivo-vegg­hillur, Nebl-gróð­ur­hús og nýir litir og auka­hlutir fyrir Flex-skipu­lags­hill­urnar. Allar þessar vörur eru nýkomnar á mark­að­inn eða vænt­an­legar á næstu vikum.

Nivo-vegg­hill­urnar eru fyrsta hönnun þýska teym­is­ins Böttcher & Kayser fyrir Gejst.

Nivo-vegg­hill­urnar eru hann­aðar af þýska teym­inu Böttcher & Kayser fyrir Gejst.

Hreinar línur ein­kenna hönn­un­ina og eru þær án alls óþarfa­skrauts. Fest­ingar eru úthugs­aðar og hvergi sjá­an­legar sem gefur hill­unum fág­aðra og stíl­hreinna yfir­bragð.

Nebl er nokk­urs konar gróð­ur­hús hannað af Michael Rem. Nafnið er dregið af þýska orð­inu Nebel sem merkir þoka og er hún aðal­inn­blástur hönn­un­ar­innar. Gróð­ur­húsið sam­anstendur af ker­am­ik­botni sem plantan stendur á og kúpli úr möttu gleri og koma gróð­ur­húsin í tveimur stærðum og litum, svörtu og gráu. Gróð­ur­húsin hafa yfir sér dulúð­legt yfir­bragð og verða fáan­leg frá og með nóv­em­ber næst­kom­andi.

Flex-skipu­lags­hill­urnar koma nú í fleiri litum og til þess að svara eft­ir­spurn­inni hafa fleiri auka­hlutir litið dags­ins ljós. Hill­urnar eru seg­ul­magn­aðar og því auð­velt að festa hluti við þær en einnig er hægt að raða ofan á þær. Meg­in­til­gang­ur­inn er að finna smá­hlutum heim­il­is­ins pláss svo þeir fái að njóta sín hvað best á smekk­legan hátt. Hill­urnar henta vel í hvaða rými sem er, eld­húsið, skrif­stof­una eða svefn­her­bergið svo eitt­hvað sé nefnt.

Gejst er ungt og upp­renn­andi fyr­ir­tæki sem vert er að fylgj­ast með en nú þegar hefur það skapað sér stóran sess í hönn­un­ar­heim­inum og hlotið mikið lof fyrir vörur sínar.

Flex-skipu­lags­hill­urnar eru seg­ul­magn­aðar og því auð­velt að koma skikk á hlut­ina.
Underground-snag­inn vísar í neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfi Lundúna.

Texti / Stefanía Alberts­dóttir
Myndir / Frá fram­leið­endum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni