Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fatahönnuður í Bryggjuhverfinu

Birta Ísólfs­dóttir fata­hönn­uður og kærast­inn Kristján Pétur Sæmunds­son fluttu í Bryggju­hverfið fyrir ári síðan með nán­ast nýfædda dóttur sína. Hvorugt þeirra á teng­ingu í hverfið, hún er frá Hvols­velli og hann úr Árbænum.

Fatahönnuður í Bryggjuhverfinu

„Ég flutti til Reykja­víkur 16 ára til að fara í mennta­skóla og bjó þá með systk­inum mínum sem voru líka í skóla. Við Kristján bjuggum síð­ast á Hverfi­götu í pínu­lít­illi íbúð þar sem við vorum með geggjað útsýni yfir Esjuna og þá var ekki aftur snúið. Þegar við fórum svo að leita okkur að íbúð til að kaupa, því hin var orðin of lítil fyrir þriggja manna fjöl­skyldu, vorum við með tvennt í huga sem okkur fannst verða að vera; útsýni og mikla loft­hæð sem sam­ein­ast hér á efstu hæð í Bryggju­hverf­inu,“ segir Birta og bætir því við að þessir stóru gólf­síðu gluggar í stof­unni hafi heillað mest þegar þau sáu íbúð­ina fyrst. „Útsýnið er æðis­legt í góðu veðri,“ segir hún og við horfum út um þessa fal­legu glugga á grámyglu­legt rok og rign­ingu sem lemur á rúð­urnar fyrir utan en efumst ekki um feg­urð­ina sem blasir við á góð­viðr­is­dögum.

Mynd/Hallur Karlsson

Góð lofthæð setur svip á íbúðina

Birta og Kristján fóru ekki út í neinar stór­fram­kvæmdir áður en þau fluttu inn, kalk­mál­uðu einn stóran eld­hús­vegg gráan og þar með er það nán­ast upp­talið enda ekk­ert sem þurfti að gera, þannig. Íbúðin er sirka síðan um alda­mótin og er rúm­lega 95 fer­metrar með einum stórum svölum út af svefn­her­bergi og öðrum örlitlum út af stof­unni; meira til að geta bara opnað út enda oft rok þeim megin; sjáv­ar­megin. Mikil loft­hæð setur sterkan svip á aðal­rýmið sem telur stofu og eld­hús sem renna saman í eina fal­lega heild. Eld­húsinn­rétt­ingin er svört og hvít og Birta segir okkur að þar sem borð­platan sé úr gleri og frekar óhentug sé planið að skipta henni út fyrir við­ar­borð­plötu, þau ætla jafn­vel að útfæra eyj­una eitt­hvað í leið­inni en ekk­ert sem búið er að negla. Lítill gangur, hjóna­her­bergi, bað og barna­her­bergi er einnig á neðri hæð­inni en uppi er hálf hæð þar sem stórt sjón­varps­her­bergi er, þaðan sem hægt er að horfa niður í alrýmið.

Mynd/Hallur Karlsson

Safnar listaverkum

Birta útskrif­að­ist úr fata­hönnun frá LHÍ árið 2010, flutti í kjöl­farið til New York í eitt ár, kom svo heim og fór að vinna hjá 66°Norður í hönn­un­ar­deild­inni og var þar í þrjú ár. „Það var mjög lær­dóms­ríkt og skemmti­legt. Ég ákvað svo að skella mér í masters­nám í list­kennslu og á núna bara eftir að klára rit­gerð­ina. Það er á döf­inni hjá mér. Ég vann líka hjá NTC sem fram­leiðslu­stjóri en ákvað að hætta þar eftir fæð­ing­ar­or­lof og fara alfarið að sinna minni hönnun,“ segir hún og við dáumst að hug­rekk­inu; að segja upp vinn­unni til að láta draum­inn ræt­ast sem virð­ist ætla fara vel af stað hjá Birtu og Krist­jáni.

Eftir að hafa kíkt heim til þeirra í Bryggju­hverf­inu þar sem Hallur ljós­mynd­ari tók nokkrar myndir var ákveðið að keyra niður á Hall­veig­ar­stíg þar sem Birta er með vinnu­stofu og reyna að fanga stemn­ing­una þar og sjá hönn­un­ina sem mun verða sýnd í Epal á Hönn­un­ar­Mars. Vinnu­rýmið er skemmti­legt og það verður gaman að fylgj­ast með S. Stef­áns­son Studio í fram­tíð­inni.

Mynd/Hallur Karlsson.

Hanna undir merkinu merkinu S. Stefánsson & Co

Birta og Kristján hafa hannað undir merk­inu S. Stef­áns­son & Co sem byggir á yfir 60 ára fjöl­skyldu­sögu æðaræktar í Hrísey. Afi Krist­jáns stofn­aði upp­haf­lega S. Stef­áns­son & Co og seldi dúnsængur og fleira en var svo aðal­lega heild­sala fyrir hinar ýmsu vörur. Parið ætlar að fara að hanna undir öðru merki til að aðgreina sig frá hinu upp­runa­lega og mun það heita S. Stef­áns­son Studio. Birta hannar hágæða úti­vi­starfatnað sem er ein­angr­aður með íslenskum æðar­dúni frá eyj­unni fögru sem hún segir að þau heim­sæki eins oft og þau geti því þau tína sjálf dún­inn sem þau nota í fram­leiðsl­una. „Eins og er er bara hægt að kaupa vör­urnar okkar á síð­unni okkar www.sstefansson.co.“

Mynd/Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni